29.08.2013 00:34

Skólinn lagfærður

Nýtt þakjárn og andyriri byggt við Barnaskólann á Eyrarbakka, en skólinn var settur í síðustu viku.

26.08.2013 22:27

Framkvæmdir við Eyrargötu

Í sumar hefur verið unnið að undirbúningi fyrir nýja gangstétt við Eyrargötu vestan Háeyrarvegar. Hefur sú vinna verið með hléum og mörgum þótt hægt ganga, en nú virðist kominn einhver skriður á verkið, búið að setja niður nýja ljósastaura og langur lagnaskurður hefur verið grafinn og brýr byggðar fyrir hvert hús. Vonandi lýkur verkinu fyrir veturinn.

23.08.2013 17:03

Leikmynd að fæðast

Eins og sjá má er komið heilt hús á Kaupmannstúnið, en það er hluti af leikmynd vegna norsku kvikmyndarinnar "Död snö 2" og væntanlega mun skriðdreki mæta á svæðið þegar tökur hefjast á næstu dögum. Miklar sprengingar og gauragangur munu að sjálfsögðu fylgja, enda um stríðsmynd að ræða og margir drepnir, en bara í þykjustunni.

19.08.2013 15:09

Óvenju mikið um álft

Óvenju mikið hafa álftir og andfuglar verið við strönd þorpsins í sumar. Jafnvel svo að skipti hundruðum saman, mest ungálftir, líklega ófleygar í sárum um þessar mundir. Álftapar með fimm unga siglir hér framhjá ljósmyndara BB þar sem þær halda sér í lygnu innan við brimið.

16.08.2013 01:13

Þar sem vegurinn endar

Bakkinn í svipmyndum. Snoturt myndband af húsum fólki og fénaði. Ath. að það getur tekið a.m.k. 2 mínútur að hlaða bandinu niður, en það er alveg þess virði.

.


Horfa á myndband: smellið á auða boxið til vinstri.

12.08.2013 11:14

Söguskilti

Skilti með ljósmyndum var nýverið sett upp við Stað á Eyrarbakka og segir þar frá hafnargerð og útgerð á árunum áður. Skiltið var vígt í tengslum við Aldamótahátíðina sem fór fram um liðna helgi. Margt var um að vera á Bakkanum enda viðburðir af ýmsu tagi jafnan á þessari bæjarhátíð sem nú var haldin í fimta sinn.

22.07.2013 20:15

Stríðsmynd tekin upp á Eyrarbakka

Ef öll tilskilin leyfi fást verður Eyrarbakki sögusvið kvikmyndar sem gerist í síðari heimstyrjöldinni. Atburðirnir eiga að gerast í Noregi en hagkvæmara þykir að taka upp meginefni myndarinnar hér á landi. Það er Sagafilm sem stendur að undirbúningi fyrirtækisins með norskum kvikmyndagerðarmönnum sem munu reisa hér allmikið kvikmyndasvið stríðsáranna, og m.a. mun alvöru skriðdreki leika stórt hlutverk á Bakkanum. Áætlað er að tökur muni hefjast í síðari hluta ágúst og standa fram í september. Þess er skemst að minnast að fyrir ári var tekin hér upp að stórum hluta sænsk kvikmynd, en fyrsta kvikmyndaskotið þar sem Eyrarbakki kom við sögu sem sviðsmynd var í íslensku kvikmyndinni Brekkukotsannál á 7. áratugnum. Þorpið og umhverfi þess þykir búa yfir eftirsóknarverðu og jafnvel dularfullu myndrænu sviði, svo hver veit nema "Hollywood" norðursins leynist hér.

17.07.2013 23:10

Eyrarbakki og náttúran

Fjölbreytt náttúran á Bakkanum er ferðamönnum hvatning til að staldra við og njóta umhverfisins. Þetta kort ætti að hjálpa til að finna áhugaverða staði til að munda myndavélina, en húsin, fjaran, víðáttumikil náttúra og fjöllin í kring hafa einmitt svo skemtilega myndrænt yfirbragð.

04.07.2013 21:06

Bardús á Bakkanum

Aðstöðuhús við tjaldsvæði
Aðstöðuhús rís við Tjaldsvæðið, en björgunarsveitin hefur haft umsjón með því síðustu ár.
Sjógarðsstígur
Göngustíg hafa ungmennin í sumarvinnunni á Eyrarbakka útbúið á Sjógarðinn á milli menningarsetranna "Gónhóls" og "Staðs", en á þeim síðari er Geiri-Staðarhaldari byrjaður á rampi með útsýnispalli uppi á garðinum.
Eyrargata
Gangstéttarlagning sveitarfélagsins er komin af stað á ný þar sem frá var horfið síðasta haust.

22.06.2013 23:55

15.Jónsmessuhátiðin

Jónsmessuhátíðin var haldin í 15. sinn á Bakkanum í dag og var þar margt um manninn í blíðskapar veðri. Hátiðin hófst kl 9 með flöggun að venju, en síðan tók við samfelld dagskrá til kvölds. Uppákomur voru í Byggðasafni Árnesinga, skottsölur, handverksmarkaðir, skemtanir, leikir og söguganga svo dæmi sé tekið. Þá kom út bókin "Saga bátanna" á Bakkanum sem Vigfús Markússon gefur út, en þar er rakin saga þeirra og afdrif. Hátíðinni lauk svo formlega með hinni víðfrægu "Jónsmessubrennu" í fjörunni.

23.05.2013 20:52

Skýrsla um björgun við Stokkseyri

"Sunnudaginn 8. april 1923 var mb. Svanur frá Stokkseyri i fiskiróðri og  flaggaði nauðsflaggi; sást það úr landi, var þá nálægt hádegi, og allir aðrir komnir i land er á sjó fóru um morguninn. Eftir nokkurn tíma varð Þórarinn Guðmundsson formaður á "mb.Frið" til búinn Svan til hjálpar, en hann krafðist þess að annar bátur kæmi með sér til hjálpar; fór ég undirritaður (Guðm. Karl Guðmundsson frá Gamla-Hrauni) þá með honum á mb. Baldur. Náðum við fljótt í Svan; hafði vél hans stansað og drógum við hann inn að Stokkseyrarsundi, en lengra var eigi mögulegt að koma tveim bátum við til að draga Svan. Vindur var snarpur á suðaustan og allmikið brim. Slepti nú Svanur dráttartaug Baldurs, en Friður bjóst til að draga Svan inn sundið, en ég til að bíða fyrir utan brimgarðinn á meðan. Þá er Friður er kominn með Svan nálægt hálfa leið inn sundið slitnar dráttartaugin milli bátanna. Friður gat ómögulega snúið við vegna þrengsla,rak þvi Svanur hjálparlaus fyrir straum og vindi þvert af leið, vestur í brimgarðinn; gáfu þá skipverjar af Svan neyðarmerki; brá ég þá strax við og fór með fylsta hraða af stað, en þar ég var staddur nokkuð út á þegar Svanur slitnaði aftan úr Frið, hafði Svan rekið all-langt af leið, og var kominn svo langt vestur í brimgarðinn, að ég taldi hina mestu hættu að hálgast hann; þó réði ég af að reyna það, vék af leiðinni, og þrátt fyrir að brotsjóir féllu bæði dýpra og grynnra, tókst mér að komast svo nærri Svan, að auðið varð að kasta til hans dráttartaug, og síðan að draga hann inn á rétta leið til lands. Það mátti sannarlega heldur ekki seinna vera að i Svan næðist, þar um geta borið bæði skipverjar beggja bátanna, og alkunnir formenn og aðrir, sem úr landi voru áhorfendur. En guði sé lof að mér og skipverjum mínum tókst að koma Svan og skipshöfn hans heilum á húfi til lands, jafn illa og áhorfðist". Að þessi skýrsla sé sannleikanum samkvæm er ég fús til að staðfesta hvenær sem þurfa þykir.

Stokkseyri 10. mars 1923.

Guðmundur Karl Guðmundsson.

Ægir 1908

09.05.2013 21:43

Sú var tíðin, 1927

 Upp voru runnir hallæristímar fyrir Eyrbekkinga og Stokkseyringa. Stórverslunin var í kalda koli á báðum stöðum og upp leyst. Verslunarhús Stokkseyringa brunnin til ösku. Burðarás útgerðarinnar, sparisjóðurinn hruninn. Ótíð hamlaði róðrum stórum hluta vertíðar, svo ágóðinn var lítill sem enginn. Landbúnaður og garyrkja var þá eina bjargræðið um sinn. Kreppa ein blasti hinsvegar við með alla sína hnignun, og til að bæta grá ofan á svart, henti hörmulegt sjóslys og átta sjómenn féllu í valinn. Efiðleikar urðu með rekstur rafstöðvarinnar, og stefndi í óefni. Sitthvað ávannst í framfaramálum, þrátt fyrir allt: Símasamband komst á milli Eyrarbakka og Selvogs, sjómönnum héðan til öryggis er sóttu vestur á "Forir". Kvenfélagið fékk því áorkað að símasamband fékst að næturlagi við Tryggvaskála, svo unt yrði að kalla lækni upp til sveita, ef mikið lá við.  Svo einhverstaðar í höfuðstaðnum skaut upp þeirri hugmynd að tómri sjúkrahúsbyggingunni okkar mætti breyta í betrunarhús og letigarð fyrir vandræðafólk úr Reykjavík. Kom þá dómsmálaráðherra hingað til að kanna aðstæður. Fleiri hugmyndir komust á kreik, t.d. að hefja þangbrennslu í stórum stíl. Kosið var til Alþingis og gengu yfir 300 mans til kjörklefans hér. Íbúar voru þá 701 og hafði fækkað um 53 frá fyrra ári. Á undangengnum fjórum árum höfðu íbúar á Eyrarbakka og Stokkseyri fækkað um 150 á hvorum stað. Eyrbekkingarnir fóru til Reykjavíkur, en Stokkseyringarnir til Vestmannaeyja. Hin svokallaða "borgarastétt" var nú að mestu horfin.

Verslun: Bændur hér í nærsveitum gerðu núorðið stórinnkaupin í Reykjavík, enda hægara um vik á bílaöldinni. Austanbændur fengu skip að Hallgeirsey og víðar í austursýslum. Það leiddi til þess að verslunin á Eyrarbakka varð í kalda koli. Fyrir stærstu verslun suðurlands, "Heklu" var ekki annað að gera en að reyna að sitja fyrir nærsveitarbændum og bregða fyrir þá fæti, með því að flytja verslunina að þjóðbrautinni eða deyja ella. Því tók Guðmundur Kaupfélagsstjóri það ráð að flytja verslunina á Selfoss, undir merkjum Kf. Höfn, en kaupfélagið (Samvinnufélagið) Hekla var leyst upp. [Hús öll voru seld eða leigð og vörubirgðir, vefnaðarvörur seldar á útsölu í Reykjavík.] Þá var Andrés Jónsson verslunarmaður hættur með búð sína hér og fluttur í höfuðstaðinn. Samt sem áður voru ekki allir verslunarmenn hér við ströndina af baki dottnir, þó bændaverslunin væri liðin tíð. Otto Guðjónsson klæðskeri kom sér fyrir í Skjaldbreið, húsi Guðmundar og saumaði föt á sunnlendinga. Ólabúð, verslun Ólafs Helgasonar átti sína föstu viðskiptamenn á austurbakkanum, auk þess sem þar var rekin leigubifreiðaþjónusta. Ágæt byggingavöruverslun var í timburverslun Sigurjóns P Jónssonar. Guðlaugur Pálsson átti sína föstu viðskiptamenn á vesturbakkanum. Aðrir höndlarar voru líka enn á róli þó illa horfði með framtíðina.  Á Stokkseyri hélt Ásgeir Eiríksson o.fl. sínu striki, en verslun þar átti í sömu vök að verjast. Bakarí var nú eitt hér eftir í brauðgerðarhúsinu, er keypt hafði Lars Lauritz Andersen bakari af Kf. Heklu. Hafði hann fyrrum verið bakari hjá Lefolii og Einarshafnarverslun. Hvað sem öllu leið þá var bændaversluninni á Eyrarbakka með öllu lokið, en hún hófst árið 1578 þegar danir settu hér upp selstöðuverslun.

[Johan Chr. Sunckenberg, keypti Eyrarbakkaverslun og jarðirnar Einarshöfn og Skúmsstaði 25. júlí 1795 af hinni konunglegu íslenzku- og finnmersku-verzlunarnefnd, fyrir 319 rd. 85 sk. Verzlunarstjóri Sunckenbergs var þá Niels Lambertsen. Þegar Sunckenberg dó, gerðist Lambertsen kaupmaður á Eyrarbakka og keypti jarðirnar af búi Sunckenbergs, 16. marz 1807, fyrir sama verð.  Verslunin kemst í eigu Lefolii árið 1868]

GullfossSkipaferðir: "Bro" kom hingað til Eyrarbakka og Stokkseyrar á vegum Eimskipafélagsins með vörur að utan. Þá kom norska kolaskipið "Aglo" en þegar það var að leggja af stað héðan þann 13. júlí til Grindavíkur að sækja fiskúrgang, bilaði vél þess og skipið strandaði, og gekk kjölur þess undan, en veður var stilt og brimlaust. Skipið náðist út aftur 16. ágúst, eftir að viðgerð á því hafði farið fram. "Aglo" var seglskip með hjálparvél og var um 250 tonn. Gullfoss kom hér við tvö skipti frá útlöndum. Lefolii eldri, gerði skipaleguna

[Nokkuð örugg skipalega var á Eyrarbakka frá 1868  sem J.R.B. Lefolii lét útbúa með öflugum járnhlekkjafestingum, þvert um lónin, sem skipin gátu svinglað við og snúist sem vindhani. Áður voru skipin "svínbundin" við skerjafestur, og gat komið fyrir að skip slitu sig frá. Bryggju lét hann byggja, með sporbraut heim að vöruhúsinu. Var ekið þar nokkrum þungum hlössum í senn, og heilum förmum, á brautarvögnum, áratugum saman, meðan kolin voru borin á bakinu í Reykjavík.]

TölvumyndSlys: Snemma dags 5. apríl fóru allir bátar á  Eyrarbakka að vitja um net sín. En vegna roks og brims gátu þeir ekki vitjað um öll netin, og lögðu því til lands aftur. Þá voru tvo flögg dregin á stengur í landi til aðvörunar fyrir sjómenn héðan um að leita sem skjótast til lands, því sjór var tekinn að brima [Þrjú flögg táknuðu ófær sund]. Klukkan að ganga tvö e.h. voru allir bátar komnir, að undanteknum þremur. Einn þeirra var "Framtiðin". [Sæfari 1] Kom hún um kl. 1:30  upp að brimgarðinum og sætti lægi [beið nokkra stund við Bússusund]. Þá var kominn hornriðabrim [ afar háar kviköldur og hvítfyssandi fallsjóir, bæði af hafsjó og stormöldu].  Báturinn lagði inn við hentugt lag og er hann var kominn nokkuð inn á sundið [við "Brynka"2] skall yfir hann svo hár og mikill brotsjór, að hann bar ekki undan, og sást báturinn ekki framar - sökk á svipstundu. Á bátnum voru 8 menn, þeir hétu: Guðfinnur Þórarinsson, formaður, kvæntur, tveggja barna faðir. Páll Guðmundsson, (rennismiðs Jónssonar) Leifseyri, kvæntur, 6 barna faðir. Víglundur Jónsson, Björgvin (Smáskamtalæknis Ásgrímssonar) giftur, átti tvö börn. Sigurður Þórarinsson, (sjómanns Jónssonar) Vegamótum, ógiftur. Kristinn Axel Sigurðsson,(Sigmundssonar) Túni, ógiftur, hann var 20 ára. Jónas Einarsson, Garðhúsum, aldraður maður, átti uppkomin börn. Gísli Björnsson, Litlu-Háeyri, ógiftur. Ingimar Jónsson, (Fæddur 1904, Skósmiðs Guðbranssonar) Sandvik, var hjá foreldrum sínum. Allir þessir menn voru af Eyrarbakka, alvanir sjómennsku og einvala lið3.

[1. Guðfinnur hafði þá nýverið keypt hlut Kristins Vigfússonar í bátnum "Framtíðin" með mági sínum Sigurjóni Jónssyni  fiskimatsmanni og nefndi hann "Sæfara" eftir eldri báti hans sem gjörónýtist í vonsku veðri á síðustu vertíð.]

[2. Utarlega á sundinu er boði, sem "Brynki" nefnist. Afar sterkur vestur-straumur (í vesturátt) er í sundinu og ræður útfallið og fráfallið úr Ölfusá, miklu, hvað strauminn snertir, svo og vindurinn, sem var afskaplega harður af austan þennan dag. Þegar lagt er inn á sundið, þarf að gæta þess, að vera svo vestarlega "í sundkjaftinum", sem mögulegt er og sneiðskera það síðan alla leið inn úr, hálf-flötu skipi fyrir sjóunum og er skerið "Brynki" þá einna hættulegast, enda varð sú raunin á, þegar báturinn fór þar framhjá tekur brot sig upp í skyndi, án þess þó að falla, en skellur svo hart á hlið bátsins að hann veltur um og sekkur ofan í brimgarðinn. Er það talið orsökin til þess að svona fór, að boðinn var hár og svo þunnur og sjólítill, að báturinn hafði ekki nægan sjó til stuðnings á hléborða.]

[3 Verkamannafélagsið Báran á Eyrarbakka fékk Rikarð Jónsson til að gera skjöld til minningar um sjómennina, er fórust mað Sæfara. Efnið í skildinum; er eik. Þar halda tvær hafmeyjar á hörpudiski, en utan um hann slöngva þær þarablöðum. Í hörpudískinum er silfurplata, og eru þar á grafin nöfn hinna föllnu vikinga. Skjöldurinn er alveg einstakur í sinni röð. Verkamannafélagið Báran gaf kirkjunni síðan skjöldinn og er hann þar enn í dag. Meira en 20 íslenskir sjómenn drukknuðu á þessu sama ári]

Svo orti Maríus Ólafsson um slys þetta:

Harmafregn minn huga grípur.

Hetjur lít með víkingsbrag

inn á sundið báti beita;

brimið virðist gefa lag.

Horfi eg á hafsins ógnir,

háan rísa öldufald.

Sé ég Ægi æðisgenginn

yfirstiga mannlegt vald.

Samfélagið: Á Eyrarbakka að tilhlutun Alþýðusambands Íslands  var stofnað fulltrúaráð meðal jafnaðarmanna í Árnessýslu. Verklýðsfélögin "Báran" á Eyrarbakka og "Bjarmi" á Stokkseyri voru þáttíakendur í fulltrúaráðinu, og áttu sæti í því stjórnir beggja félaganna. Í stjórn voru kosnir: Ingimar Jónsson, prestur að Mosfelli í Grímsnesi, Bjarni Eggertsson búfræðingur, Eyrarbakka, Guðmundur Einarsson verkamaður, Stokkseyri, Bergsteinn Sveinsson verkamaður, Eyrarbakka, og Nikulás Bjarnason verkamaður, Stokkseyri. Ungur skáti Eiríkur J. Eiríksson, 16. ára tók að þýða skátabók "Ég lofa" af dönsku eftir "Wilhelm Bjerregard" og var góður rómur gerður að.

Samgöngur: Bifreiðastöð Eyrarbakka sem Ólafur Helgason átti, var nú  gerð út frá Lækjartorgi í Reykjavík. B.S.R og Steindór veittu stöðinni hörku samkeppni.

Sjávarútvegur: Vel fiskaðist þegar gaf á sjó, en ótíð mikil hamlaði veiðum oft á tíðum. Þegar upp var staðið gaf vertíðin lítið sem ekkert í aðra hönd. Haustvertíðin var stopul, en ýsuafli góður þegar gæftir voru, 3 bátar réru. Nokkuð betur gekk á Stokkseyri, en þaðan réru 10 bátar.

Landbúnaður: Búnaðarfélagið hér lagði inn umsókn um að fá að kaupa "þúfubana" til að slétta tún.

Heilsufar: Kighósti kom upp á Eyrarbakka og Stokkseyri, en væg nema börnum nokkrum sem bólusett höfðu verið. Heilsufar annars með ágætum.

Látnir: Margrét Jónsdóttir, bústýra Einarshöfn (89?), Sigríður Jónsdóttir, Litlu-Háeyri (86), Guðbjörg Árnadóttir, Torfabæ (84), Sólveig Magnúsdóttir, Kaldbak (78), Ingibjörg Jónsdóttir, Einarshöfn (77), Kristbjörg Einarsdóttir, Skúmstöðum (77), Guðbjörg Gunnarsdóttir frá Litlu-Háeyri (64) [bjó í Hafnarfirði], Jónas Einarsson, sjómaður Garðhúsum (60) [fórst með "Sæfara"], Guðfinnur Þórarinsson, formaður Eyri (45) [fórst með "Sæfara"], Sigurður Þórarinsson Vegamótum (40) [fórst með "Sæfara"] Gísli Björnsson, þurrabúðarmaður Litlu-Háeyri (39) [fórst með "Sæfara"], Páll Guðmundsson, sjómaður Leifseyri (31)[fórst með "Sæfara"], Ingimar Jónsson, sjómaður Sandvík (23)[fórst með "Sæfara"], Kristinn Sigurðsson, sjómaður Túni (19)[fórst með "Sæfara"], Gestur Jónsson, Nýjabæ (17), Vilhjálmur Kristinn Þorbjörnsson, Blómsturvöllum (1).

[Eyrbekkingar fjarri: Guðmundur Sigurðsson fyrrum sparisjóðsstjóri á Eyrarbakka. Jakob Bjarnason (f.1874 í Sviðugörðum Gaulverjabæ) undirforingi í lögreglu Seattle U.S.A. Hann var maður mikill í vexti og bar höfuð og herðar yfir annað fólk. Bar hann viðurnefnið "Big Jake". Jakop Andreas Lefolii kaupmaður, í danmörku. Ásgrímur Adólfsson í Washington Island, Wis., U. S. A. en hann var frá Stokkseyri, og kona hans frá Eyrarbakka.]

Sveitin og Sýslan:  Mjólkurbúi fyrir Sunnlendinga var fundinn staður í "Flóanum" austan við Selfoss.

Tíðin: Í febrúar komst hitinn í 8°C og mesta frost -11°C. Í mars var ekkert frost á Bakkanum, og hæst fór hitinn í 10°C. Apríl var úrkomusamur, 30% yfir meðallagi. Mánuðurinn var frostlaus og mestur hiti 9,5°C. Í maí steig hitinn í 18,5 stig, en frost mældist mest -4,8°C. Heldur bætti í hitabylgjuna er kom fram í júní, mældist þá 21.7°C og í júlí 25,8 stig og 20 stig í ágúst. Enn var hlýtt í byrjun september og bar hæst 18,9°C, en svo kom frostið er á leið. Í oktober var mest frost -6,3 stig.

Heimild: Morgunbl. Vísir, Alþýðubl.Lögberg, Lögrétta, Heimskringla,Tíminn. gardur.is

Tímarit: Samvinnan, Veðráttan, Ægir, Verkamaðurinn.

30.04.2013 22:59

Sú var tíðin, 1926

 Árið 1926 var síður en svo auðvelt ár fyrir íbúa strandarinnar. Taugaveiki, sjóhrakningar í tvígang, stórbruni á Stokkseyri, samdráttur í verslun og fólksfækkun. Þorpsbúar létu þó ekki deigan síga. Sjógarðar sem féllu í flóði fyrra árs voru nú endurnýjaðir að fullu. Skólpræsi voru hér ekki komin en almennt voru kamrar við hvert hús. Brunnvatnið var enn við líði, en brunnarnir ótryggir margir hverjir. Sjúkrahúsbyggingin hafði nú staðið auð í ára raðir vegna fjárskorts og allar rúður í því brotnar. Samþykkti sýslan nú að veita fé til að fullgera "Eyrarspítala". [ Í desember var húsnæði spítalans, (Litla-Hraun) auglýst á uppboði hér á Eyrarbakka] Útvarpstæki voru mjög farin að riðja sér til rúms um þessar mundir. Járnbrautarhugleiðingar voru ekki alveg horfnar úr umræðunni, þó ekkert hafði áunnist í þá átt í allmörg ár og enn var rætt um byggingu hafnar í Þorlákshöfn með sama árangri. Deilt var hart um hvar byggja ætti Héraðsskóla sunnlendinga, en valið stóð um Reykjafoss í Ölfusi, eða að Laugarvatni, var þá samþykkt að leysa málið með undirskriftasöfnun um hvor staðurinn yrði fyrir valinu. Framræsla á mýrinni var talsvert í umræðunni og leiðir til fjármögnunar á því stórvirki. Eyrbekkingar og aðrir landsmenn gengu að kjörborðinu í tvígang og var kjörsókn þannig: Á Eyrarbakka kusu 170 af 270 á kjörskrá, á Stokkseyri 80 af 240, í Sandvíkurhreppi 28 kjósendur. Annars var kjörsókn dræm í sýslunni. Í síðari kosningunum sem voru til Alþingis kusu 130 á Eyrarbakka. Bátabryggjan var fullgerð, steinsteypt og að nokkru leyti með járnbindingum. Hún var 70 m löng, 6 m breið og náði hún fram að stórstraumsfjöru. Bryggjan kostaði öll um 33.000 kr. Í flestum minni verslunarstöðum landsins var fólksfjölgun, en á öðrum fækkaði fólki stöðugt til nálægra kaupstaða. Eyrarbakki og Stokkseyri fóru ekki varhluta af nálægð sinni við Reykjavík, með batnandi samgöngum. Á Eyrarbakka bjuggu nú 754 að jafnaði á árinu 1926 og hafði fækkað um 54 frá fyrra ári. Margt kemur til, bílaöldin var runnin upp, togaraútgerðir og fiskvinnsla í stæstu kaupstöðum við Faxaflóa, tækniframfarir og vélvæðing ýmiskonar, atvinnumöguleikar, menta og heilbrigðisstofnanir á sömu stöðum, en á meðan að Árnessýsla fékk litlu áorkað í sömu átt og enn flest sem áður var í búskaparháttum og sjósókn. Hafnleysið hrjáði þegar millilandaskipin stækkuðu og vélvæddust og þurftu meiri þjónustu við land en áður.

Verslun: Þrátt fyrir töluverða fólksfækkun undangengin ár voru verslanir hér enn margar, svo sem Kf. Hekla sem barðist í bökkum, nú sem aldrei fyr1, Verslun Andrésar Jónssonar, Timburverslun Sigurjóns P Jónssonar, Verslun Guðlaugs Pálssonar, Verslun Ólafs Helgasonar. Hinsvegar dró Jóhann V Daníelsson verslun sína saman á þessu ári, með því að selja út allann vörulager. Flutti hann síðan til Reykjavíkur. Steinolíuútibúið hóf að selja bensín um þessar mundir.

1.[ Kaupfélagið Hekla hafði nú starfað á Eyrarbakka í 22 ár og var í upphafi lítið og fámennt félag sem óx fljótt fiskur um hrygg og efldist mjög fram undir fyrra stríð. Félagið keypti Lefolii verslun árið 1919 og landeignir þess. Gekk það svo í Samvinnufélögin 1922. Um nokkurt árabil hafði reksturinn verið í járnum og ólukkan elti. Félagið varð fyrir margvíslegu tjóni og þurfti að sæta afarkostum á aðfluttningsgjöldum. Verðhækkun, gengistap, hávextir og aukin samkeppni sökktu því í skuldafen. Til að bæta gráu ofan á svart, þá fórst kolaskip er til þess átti að koma og oft þurfti að afskrifa ýmsar vörur sem skemdust í flutningi. Eignir félagsins utan verslunarrekstrar voru helst: Jarðir tvær (Einarshöfn og Skúmsst.), með hafnrétti, skipt í leigulönd, nálægt 50 þurrabýla. Íbúðarhús tvö, peningshús, hlaða, skemmur nokkrar, bökunarhús, íshús, sölubúðir tvær stórar og fjögur vöruhús mjög stór. Fjöldi manna starfaði hjá félaginu. Mikil kreppa blasti því við Eyrbekkingum nú þegar Sparisjóðurinn var fallinn og hugsanlegs gjaldþrots Kf. Heklu]

Stórbruni á Stokkseyri: Aðfaranótt 10. desember 1926 brunnu Ingólfshúsin á Stokkseyri til kaldra kola. Ingólfshúsin samanstóðu af 7 verslunar og pakkhúsum. Þar á meðal íshús fullt af kjöti og fiski. Íbúðarhús tvö voru einig á torfunni. Margir urðu þar fyrir geysilegu tjóni, svo sem Ásgeir kaupmaður Eiríksson sem tapaði vörum sínum í eldinn þrátt fyrir að þeim hafi verið bjargað útfyrir. Magnús Gunnarsson, en vörum hans var rutt út og tvístrað hingað og þangað, út í kirkjugarð og um allar trissur þó ekki brynni hjá honum. Sigurður Heiðdal og Böðvar Tómasson, Jón Sturlaugsson og Jón Jónsson, töpuðu ýmist veiðarfærum báta sinna, útbúnaði öllum og beitu. Jón Jónasson hreppstjóri misti nær fulla hlöðu af heyi. Hafði sparisjóður [Árnessýslu] Eyrarbakka þá aðeins nokkrum dögum fyr, selt eða leigt eitt húsið, en tveir ungir menn hugðust hefja þar verslun. [Ingólfsfélagið varð gjaldþrota um 1924]. Þegar eldsins var vart var þeyttur brunalúður. Stokkseyringar og Slökkviliðið á Eyrarbakka, sem og þorpsbúar, allir sem vettlingi gátu valdið, þustu á vettvang með öll slökkviáhöld sem fyrir fundust í þorpunum ásamt dælum slökkviliðsins, en þrátt fyrir það varð ekkert við ráðið. Svo magnaður var eldurinn í verslunarhúsunum að nálægir símastaurar fuðruðu upp sem eldspítur. Sex önnur nálæg íbúðarhús tókst að verja, en í einu þeirra var símstöð Stokkseyrar. Þegar eldtungurnar náðu sem hæst, var talið glójart og lesljóst allt undir Ingólfsfjall að sögn.

[Slökkviliðsstjóri var Einar Jónsson. Húsin sem brunnu voru: Ingólfshúsið, í fyrstu bygt af Grími Gíslasyni í Óseyrarnesi.  Íshús Jóns Sturlaugssonar. Zöllnershús, afar stórt og vandað pakkhús reist af Copland og Berrie um 1900. Varmidalur, verslunarbúð Ásgeirs Eiríkssonar. Heyhlaða og nokkrir geimsluskúrar undir veiðarfæri. Tjón Stokkseyringa var gríðarlegt í öllu tilliti. Húseignirnar voru auglýstar til sölu í nóvember 1926, í heilu lagi eða hver fyrir sig, með lóðarétti eða til niðurrifs.]

 

Skipakomur: Lagarfoss kom hér við miðsumars og Gullfoss losaði í Þorlákshöfn vörur til Eyrarbakka, ásamt farþegum nokkrum, en aðrar skipa og bátaferðir er ókunnugt um. Vélbátaferðir voru þó nokkuð tíðar frá Eyrarbakka og Stokkseyri til Vestmannaeyja, sem og til Reykjavíkur.

Sjávarútvegur: Vertíðin byrjaði hægt hjá mótorbátum, en ágætur ýsuafli á róðrabátum. Í mars og apríl aflaðist með ágætum, þá er gaf á sjó. Þeir sem sóttu vestur á Selvogsbanka náðu oft góðum afla. Um haustið veiddist mikið af síld í reknet, og var mikið af því saltað í tunnur en einnig ísfryst í beitu. Hámeri spillti þó veiðinni mikið og stórfiskur var um allann sjó utan skerja. Um miðjan september voru kominn um 40 tonn af síld á land. Sæmilegur fiskafli var á haustvertíð.

[300 síldartunnur voru fluttar út héðan]

 

Sjóhrakningar: Þann 13. apríl 1926 reru 17 bátar af Eyrarbakka og Stokkseyri og fóru flestir vestur undir Selvog (2 ½ klst sigling frá Stk). Þegar á daginn leið gerði landsynningsrok og brim svo mikið, að aðeins 8 bátarnir gátu lent heima, en hinir urðu að láta fyrirberast úti á rúmsjó. þegar sýnt þótti, að bátarnir næðu ekki landi var símað til stjórnarráðsins og það beðið að hlutast til um það, að skip á þessum slóðum, sem til næðist yrðu beðin að koma bátunum til hjálpar. Var þá strax sent skeyti til allra skipa á þessu svæði og þau beðin að líta eftir bátunum. Strax um kvöldið voru fimm íslenskir togarar komnir á vettvang til hjálpar, þeir Skallagrímur, Belgaum, Hannes ráðherra, Earl Kitchener og Gyllir. Tók Gyllir einn bátinn "Trausta" frá Eyrarbakka og dróg hann til Reykjavíkur, en Skallagrímur bjargaði áhöfninni af "Öðlingi", einig frá Eyrarbakka. Liðaðist hann sundur og sökk, en skipverjar komu með Skallagrími til Reykjavíkur. Belgaum, Hannes ráðherra og Earl Kitchener fylgdu hinum 7 bátunum, sem eftir voru til Vestmannaeyja. Þann 8. apríl gerðist viðlíka atburður þegar allir bátar Stokkseyringa og Eyrbekkinga lokuðust úti vegna brims, en að þessu sinni var ekki skaðræðis sjór, en allhvöss norðanátt svo menn biðu rólegir af sér brimhretið. Það var svo ekki fyrr en daginn eftir og fram á kvöldið sem bátarnir náðu lendingu. Svo óheppilega vildi til að "Trausti" brotnaði þá mikið í lendingunni. Er hér var komið höfðu Eyrbekkingar tapað tveim vélbátum frá veiðunum.

["Öðling" áttu Árni Helgason í Akri, Guðmundur Guðmundsson og Sigurður Guðmundsson á Litlu Háeyri, sem var þá háseti á Skallagrími og í þeirri einkennilegu stöðu að heimta skipverja og nágrana úr helju. Formaður á "Trausta", var Jón Jakopsson í Einarshöfn en átta voru í áhöfn hans. Skipstjóri á "Gylli" var Ingvar Einarsson frá Reykjavík. Þótti þessi hjálp frá togurunum mikið afrek enda einsdæmi hve mörg mannslíf voru hér í húfi, eða um 100 manns og engan þeirra sakaði. Á "Hannesi Ráðherra" var skipstj. Guðm. Markússon, og "Earl Kitchener",  var skipstjóri Alexander Jóhannsson, en þeir aðstoðuðu Friðrik Sigurðsson, form. á vélb. "Svanur" og  Jón Helgason, form. á vélb. "Freyr" að koma bátum sínum ólöskuðum til Vestmannaeyja.]

Samfélag: U.M.F.E tók upp á þeirri nýbreittni að halda einskonar kvöldvökur, þar sem piltarnir hnýta net, skera í tré o. fl. Stúlkurnar sauma, prjóna o. s. frv. Á meðan las einn upphátt: Þjóðsögur, kafla úr íslendingasðgum, kvæði o, fl.  Á miðri vöku var drukkið kaffi. Allir höfðu með sér kaffi mal að heiman, sykur og brauð, og var öllum forðanum steypt saman. í vökulokin var húslestur og sálmar sungnir. Þessi háttur varð mjög vinsæll í báðum deildum (aldursflokkum). Í félaginu voru þá 150-160 félagar.  Stofnuð var ný stúka á Eyrarbakka með 24 félögum. Hét hún "Alda" en stúkan, sem var hér áður, "Eyrarrósin" féll niður. Glímukappar komu og héldu sýningu fyrir þorpsbúa, áður en farið var utan til Danmerkur, en þar stóð til að kynna íslenska glímu. Á meðal þeirra var Björn Blöndal Guðmundsson verslunarmaður og Kári Sigurðsson trésmiður, báðir frá Eyrarbakka. Þeir komu svo heim með Gullfossi og stigu í land í Þorlákshöfn. Í skátafélaginu Birkibeinum voru 21 skáti, en félagið var nú 5 ára. Ketill Gíslason var flokksforingi. Félagið var fátækt og átti erfitt um vik með að afla sér styrkja til að efla félagið. Pólitískir forustumenn heimsóttu Bakkann, svo sem kratinn Jón Baldvinson o.fl. Þá kom hér Dr. Heinrich. Erkes, háskólabókavörður í Köln og alþekktur Íslandsvinur á þessum árum. Hingað komu líka skátar úr Reykjavík, "Væringjar" og komu þeir fótgangandi alla leið. Flöskuskeyti rak hér á fjörur og var það frá erlendu skipi. Rauðikrossin hélt hér hjúkrunarnámskeið í boði kvenfélagsins, 33 stúlkur sóttu. Leiksýningar vorur reglulega haldnar í samkomuhúsinu Fjölni af leikfélaginu hér.

Samgöngur: Sigurður Óli Ólafsson var með fastar ferðir milli Eyrarbakka og Reykjavíkur þrjá daga í viku, bæði með fólk og flutning.  Bílafloti hans var, Ford fólksbíll, Overland fólksbíll, Dodge vöruflutningsbifreið, tveir Cevrolet hálfkassar og nýr Buick. [Eitthvað af þessum bílaflota var til sölu.] Vörubílastöðin í Reykjavík sendi hingað vörur eftir þörfum. Aðrir í þessari samkeppni um farþeganna var Bifreiðastöð Steindórs með Buick bifreiðar og Bifreiðastöð Reykjavíkur, sem var aðalega útbúinn Fíat-bifreiðum.

Heilsufar: Taugaveiki kom upp á heimili Gísla héraðslæknis og Aðalbjörgu konu hans og þrem öðrum húsum. Höfðu 5 til 10 manns tekið veikina. Unglingsstúlka, fósturdóttir þeirra læknishjónanna, Vígdís Ólafsdóttir lést fljótlega af völdum veikinnar og nokkru síðar dóttir þeirra, Valgerður Aðalbjörg, 7 ára, og síðan Karen Ólafsdóttir í Garðbæ, er þar lá þar veik.  Var talið að smitið hafi borist með mjaltakonu einni er stundaði kýrnar á Garði, ( þar voru tvær kýr) og í mjólk er keypt var til heimilis læknisins. Gerðar voru fyrirbyggjandi ráðstafanir með aðstoð landlæknis. (Auk Gísla Péturssonar var læknir hér Lúðvík Nordal). Ljótt slys varð um áramót, þegar drengir voru að leika sér að því að sprengja flugelda, og tókst svo hrapallega til, að einn drengurinn misti tvo fingur af annari hendi.

Látnir: Guðríður Guðmundsdóttir, Vinaminni (81), Jón þurrabúðarmaður, Guðmundsson, Eyvakoti (78), Gísli bóndi Ólafsson, Stekkum (71), Valdís Vigfúsdóttir Skúmstöðum (Götuhúsum), Ástmundur rafvirki Guðnason, Einarshöfn (25), Karen Ólafsdóttir Garðbæ (22), Vígdís Ólafsdóttir Læknishúsi (20), Ásmundur Guðnason togarasjómaður frá Einarshöfn,(26) eftir langvarandi vanheilsu. [Hann var einkasonur Guðna Jónssonar og Sigríði Vilhjálmsdóttur], Valgerður Aðalbjörg Gísladóttir, Læknishúsi (7).

[Ásgeir Blöndal fv. héraðslæknir f. 1858. Valgerður Magnúsdóttir,Vívatson í Norður Dakota f.??. Kristín Helgason í Chicago f.1838]


Sveitin: Skemtisamkoma var haldin við Ölfusárbrú þann 22. ágúst, en mánuði áður hafði komið þar við þýsk hljómsveit, Hamburger Philharmonisches Orchester. Um miðjan desember stóðu þar 10 bílar fastir í snjó og komust hvergi og urðu 30 manns að gista í Tryggvaskála af þeim sökum. Þá varð bruni við Ölfusá (Selfossi). Brann þar vörugeymsluskúr sem verslunin Höfn (útibú Heklu) átti og voru aðallega geymd í skúrnum kol, steinolía og bensín. Skúrinn brann til ösku.

 

Tíðarfar og náttúra: febrúar  var mjög hlýr, hæst fór hitinn hér í 8,3°C. Í mars var úrkomusamt og talsvert yfir meðallagi. Í apríl fór hitinn hæst í 12,3°C. Í maí 17.9°C hæst, en stormasamt var þó þennan mánuð. Sæörnin (Haförn) var að hverfa úr Árnessýslu. Nokkrir ernir höfðu á árunum áður hafst við í Ölfusi og afréttum Gnúpverjahrepps en drepist flestir af refaeitri. Nú var talið að aðeins einn eða tveir Sæernir væru eftir í Sýslunni og héldu þeir til í Ölfusi. Í júní mældist hæst 20°C, og hagstæð tíð. Vinna hófst við að hefta sandfok og girða sandgræðslureitinn á ný eftir sjávartjón síðasta vetrar. Þá var safnað talsvert af melfræjum um haustið til frekari uppgræðslu. Í júli var heitast 20,7°C á Eyrarbakka, en annars var úrkomusamt. Í ágúst fór hitinn í 19.1°C, annars votviðrasamur. Kartöfluræktun var hér mikil sem áður og var uppskeran mestmegns seld í verslunum í Reykjavík. Snemma í september fór hitinn í 16.1°C en um miðjan kom frostið. Í lok oktober mældist 10 stiga frost, en mánuðurinn var kaldur, sem og nóvember, en þá mældist 9 stiga frost og í desember var það mest -11°C. Sjógangur var mikill og brotnaði sjógarður vestan við þorpið [80m kafli] og árabátur sem þar var. Einnig bryggja nokkuð.

Aths. Þar sem heimildir í blogþáttunum "Sú var tíðin" eru unnar mestmegnis úr fréttum blaða og tímarita er ekki hægt að ábyrgjast að heimildir þessar séu áræðanlegar í öllum tilvikum. Leitast er við að telja ekki upp atriði eða atvik sem augljóslega eru röng, eða mikill vafi leiki á, ella hafi komið í ljós leiðrétting eða gagnrýni annarstaðar í sömu heimildargögnum.

Heimild: Dagblöð og vikurit 1926: Aldan, Morgunblaðið, Vísir, Ísafold, Dagblað, Verkamaðurinn, Tíminn,

Önnur rit: Árbók Héraðssambandsins Skarphéðins - 1926. Templar, Hlín,Veðráttan, Búnaðarrit, Óðinn, Liljan, Íþróttablaðið, Tímarit verkfræðifélagsins, Ægir, Samvinnan,

21.04.2013 11:40

Sú var tíðin, 1925

Tilgátumynd Íbúar voru 808 á Eyrarbakka árið 1925 og hafði fækkað um 35 frá fyrra ári. Reykjavík sogaði til sín fólk héðan af ströndinni. Þurrabúðir og kot voru smám saman að leggjast í eiði. Höfuðstaðurinn dró til sín námsmenn, sem og verkafólk til ýmsra starfa og sjómenn. Á Bakkanum vonuðust menn eftir símalínu allt vestur til Reykjanes, því bátar héðan fóru oft vestur að Sandgerði til veiða, en 16 ár voru nú liðin síðan símstöð var opnuð á Eyrarbakka. Íslenska sjóstakka vildu sjómenn hér fá í tilraunaskyni í stað erlendra. Bryggjugerðin var hinsvegar mesta framfara skrefið um þessar mundir.

Sjávarútvegur: Aflalaust var við ströndina í janúar,febrúar og mars, en einhverjir bátar reyndu fyrir sér þegar gaf á sjó. Vertíðin hófst svo fyrir alvöru 20. mars og gerðu 24 mótorbátar út frá Eyrarbakka og Stokkseyri. Aflaðist strax ágætlega og menn töluðu um "aflahrotu" hér sunnanlands. Í aprílbyrjun var slíkur landburður af fiski að menn hér mundu ekki annað eins. Heldur dró úr fiskigengd er á leið vertíðina. 3.520 skipspund komu á land á Eyrarbakka og Stokkseyri þessa vetrarvertíð og rúm 500 í Þorlákshöfn. Ekkert aflaðist um sumarið. Útgerðin hér við ströndina vildi láta koma á landhelgisgæslu á fiskimiðum Stokkseyrar og Eyrarbakka, en enskir togarar voru orðnir aðgangsharðir hér á miðunum. Stofnaður var lendingasjóður til að standa straum af hafnargerð er fram liðu stundir.

SkaftfellingurSkipakomur: Mb. Skaftfellingur kom hér 21. maí og síðan eina ferð í mánuði yfir sumartímann.  Mb. Úlfur hafði boðað komu sína, en sneri frá vegna vélarbilunar. "Villemoes" kom með steinolíu til útibús Landsverslunar. "Annaho" kom með salt til Eyrarbakka og Stokkseyrar. "Svanur" kom seint í nóvember með kol til kf. Heklu.

[í Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslum höfðu kaupmenn fengið  hafskip með vörur beint frá útlöndum undangengin þrjú ár, sem skipað var upp á Skaftárós, Vík, Holtsós, Hallgeirsey og í þykkvabæ. Það var Ásgeir Jónasson skipstjóri frá Hrauntúni sem fyrstur sigldi skipinu Borg á þessa staði.]

Sjóslys: Enska togveiðiskipið "Viscount Allenby" strandaði við Þorlákshöfn í brimi og svarta myrkri. Áhöfnin 10 menn björguðust með aðstoð Þorleifs Guðmundssonar og hans manna í Þorlákshöfn [alls 4 menn auk Sigurðar Þorleifssonar sem var 13 ára]. Náðu sjómennirnir að handstyrkja sig á kaðli til lands þar sem þeir voru gripnir úr brimlöðrinu. Skipið sökk skömmu síðar. [Skipstjórinn var Mr. Thomas Wren]

Verslun: Kanpfélagið Hekla á Eyrarbakka byrjaði að byggja bús við Ölfusárbrú. Þar var væntanlegt útibú frá félaginu. [ Kaupfélagið Höfn] C. Pedersen lyfsali á Eyrarbakka fór héðan alfarinn erlendis en áður seldi hann lyfjabúð sína dönskum lyfjafræðingi.

Landbúnaður: Kartöfluræktun á söndunum var orðinn stór útvegur um þessar mundir. Fjár og kúabúskapur var jafnan til hliðar við önnur störf.

Samgöngur: Bifreiðastöð Reykjavíkur og Steindór héldu einkum uppi samgöngum milli Eyrarbakka og Reykjavíkur yfir sumartímann.

Samfélag: Heimilisiðnsýning var haldin hér fyrir tilstulan U.M.F.E. Glímukappar U.M.F.Í héldu sýningu í Fjölni. Á meðal þeirra var Árnesingurinn, Sigurður Greipson, en hann var einnig með íþróttakennslu hér á Eyrarbakka og Stokkseyri. Söngfuglinn Sigurður Birkis söng sig inn í hjörtu Eyrbekkinga og Stokkseyringa. Jón Jónsson læknir stundaði tannlækningar hér um mánaðar tíma. Þann 6. febrúar voru húsmæður á Eyrarbakka boðaðar á fund, sem halda átti vegna sögusagna um að stofna ætti "her" hér á landi til að berja á alþýðunni. Hvort þessi skröksaga alþýðuleiðtoga landsins hafi fengið Eyrbekkskar húsmæður til að storma á fundinn er hinsvegar ekki vitað. Hvort þessar skröksögur hafi orðið Bjarna Eggerts oddvita að yrkisefni er hann samdi Alþýðustökur sínar einnig óljóst:

Oft eru kvæðin efnissmá

og ekki á réttum nótum.

sem að kveðin eru á

eykta- og gatna-mótum.

 

En þó er gull og gersimar

geymd í þessum sjóðum

og margt af slíku metið var

móti bestu ljóðum.

En það voru fleiri sem kunnu að kveða á Bakkanum, svo sem Sigfús Guðmundsson snikkari sem kvað yfir spilum:

Að spila "vist" er lífsins list

lífgun tvistu sinni,

eins og kyst sé refla-rist

rjóð í fyrsta sinni.

Íþróttamót var haldið að Þjórsártúni og í 100 m. hlaupi fékk 2. verðlaun Kári Sigurðsson, U.M. F. Eyrarbakka (13 1/5 sek.). Annars voru Hrunamenn hlutskarpastir í flestum greinum. Þá var haldin þar iðnsýning í tengslum við mótið. Vefnaður frú Herdísar Jakobsdóttur og nemenda hennar á Eyrarbakka, vakti mikla eftirtekt, einkum fyrir smekkvíslega litablöndun og fögur munstur og mikið þótti og varið í prjónanærföt frá bankastjórafrúnni á Selfossi. Aðalsteinn Sigmundssom skólastjóri sendi út áskorun til Eyrbekkinga, bæði heima í héraði og utanhéraðs um að styrkja skólann, sem ekki var vanþörf á. Söngfélagið Þrestir úr Hafnafirði tók lagið hér á Bakkanum. Þórdís Símonardóttir ljósmóðir settist í helgan stein. Hafði hún þá tekið á móti um 1.500 börnum.

Látnir: Ólafur Teitsson hafnsögumaður Skúmstöðum (86), Magnús Ormsson (83), hann var um langt skeið hafnsögumaður og formaður hér á Eyrarbakka. Sesselja Ólafsdóttir skúmstöðum (73), [ekkja Ebenesers Guðmundssonar gullsmiðs], Jón Hannesson bóndi Litlu-Háeyri (72) Árni Árnason þurrabúðarmaður í Stíghúsi (60), Sigurður Pálsson Laufási (28), [Hann andaðist á Franska spítalanum í Fáskrúðsfirði], Guðríður Guðmundsdóttir Háeyrarvöllum (1).

[Sigurður Eirlksson er um tíma bjó á Eyrarbakka. Hann stofnaði sjómanna félag á Eyrarbakka og Stokkseyri og í Keflavík.]

Sýslan og sveitin: Hugmyndir voru uppi um stofnun héraðskóla Suðurlands að Reykjafossi [nú Hveragerði] í Ölfusi. Skemtisamkomur voru oft í Tryggvaskála við Ölfusárbrú, en þar rak Guðmunda Níelsen veitingahús.

Tíðarfar og náttúra: 14-21 janúar gerði stormviðri og stórsjó. Þann 21. braut sjórinn og eyddi sjávarvörnum við Stokkseyri, Eyrarbakka og Grindavík og flæddi langt upp á land og gerði mikið tjón. Fólk margt flýði úr húsum sínum. Sjógaðurinn frá Stokkseyri að Hraunsá lagðist allur undan sjóganginum. Sömu leið fór sjógarðurinn frá Eyrarbakka og vestur á Óseyrarnes, sem og garðar fyrir Hrauns löndunum féllu víðast. Girðingar allar í sandgræðslunni þar fyrir innan eiðilögðust og hálfgróin sandgræðslureiturinn fyllti af sandi. Steinolíuport kf. Heklu fauk að miklu leyti og skemdir urðu algerar á innsiglingamerkjum [Sundvörðum] og nýlegum ljósabúnaði þeirra. Matjurtagarðar Eyrbekkinga er lágu fleiri hndruð metra með sjógarðinum og biðu sáningar urðu fyrir einhverjum skakkaföllum. Heyskaðar höfðu einnig orðið hér í grend og lítil hlaða fauk á Stokkseyri. Foktjón varð víða í uppsveitum. Úrkomusamt mjög var í Mars, Júní og júlí. Lóan kom þann 2. apríl, en það er sá dagur sem hún hefur oftast komið á  að meðaltali. Nóvember var fremur hlýr á Bakkanum.

Ýmislegt: Það gat verið erfitt verk og ekki hættulaust að sveifa bifreið í gang, en það fékk Guðmundur Halldórsson úrsmiður að reyna, þegar hann ætlaði í smá sunnudagsbíltúr. Þegar bifreiðin hrökk í gang snerist sveifin með af afli og braut handlegg hans mjög illa sem auk þess fór úr liði við úlnlið.

Heimildir, dgablöð 1925: Vísir, Morgunblaðið, Ísafold, Dagblað,Tíminn,

Tímarit 1925: Veðráttan, Ægir,

15.04.2013 17:15

Sú var tíðin, 1924


Íbúar á Eyrarbakka árið 1924 voru 843* og hafði þeim fækkað um tæp 11% frá fyrra ári. Samskonar þróun átti sér stað á Stokkseyri. Vinnuaflsskorturinn í Reykjavík hefur ráðið mestu um fólksfækkun hér, þar sem atvinna við ströndina var meira árstíðarbundin og annars stopul. Sjúkrahúsbyggingunni sem var nær lokið var nú í biðstöðu þar sem fé skorti til áframhaldandi framkvæmda. Vonir stóðu til að "Eyrarspítali" yrði útbúinn röntgentækjum þegar framkvæmdir kæmust aftur í gang. Engin vatnsveita var komin á Eyrarbakka, og var það farið að há framtíðarþróun þorpsins, en þannig vatnsöflun var hér ýmsum örðuleikum bundin. Brunnvatnið varð því enn að nota sem fyr.

Atvinna: Atvinna var næg á meðan vertíðinni stóð. En búist var við almennu atvinnuleysi yfir sumarið, þar sem gert var ráð fyrir, að  framkvæmdir við Flóáveituna myndu liggja niðri þetta árið, en við hana unnu að jafnaði fjöldi manna af Eyrarbakka og Stokkseyri. Eitthvað var þó unnið við vegavinnu á Eyrarbakkavegi, suðurlandsveg og í uppsveitum sýslunnar. Vinna við bryggjuframkvæmdir voru líka einhverjar, en oft var hagur manna þröngur. Ungir menn héðan einhverjir réðu sig til sjós fyrir "sunnan", þá einkum á togara og landvinnu, en eftirspurn eftir duglegu verkafólki var mikil á Reykjavíkursvæðinu og ásókn í fólk héðan. Kom það sjaldnast aftur sem farið var.

Verslun og þjónusta: Sparisjóður Árnessýslu fjármagnaði kaup á nær öllum mótorbátum sem gerðir voru út hér í sýslunni auk veiðarfæra og reindist það heldur bratt veitt. Átti hann nú í vanda vegna rekstrartaps og varð að leita á náðir ríkisins. Tap sjóðsins umfram eignir nam þá um 14 %, eða tæp 500 þúsund kr sem á vantaði. Var þá lagt til að sjóðurinn mundi sameinast Landsbankanum og var það samþykkt á hluthafafundi gegn 75 % tryggingu innistæðna1. Tapið orsakaðist sumpart af því að vertíðin 1923 brást að mestu og síðan vegna mikils verðfalls á fiski. Almennt voru bankar landsins (Landsbanki og Íslandsbanki) að tapa af sömu ástæðum og einnig vegna gengistaps. Órói var enn vegna olíusölunnar hér, en landsverslun seldi olíufatið héðan 9 kr. dýrari en í Reykjavík. Olían fékst þá lækkuð nokkuð, eða svo munaði 7 kr. Olíuportið kölluðu gárungarnir "Héðinsskans".

Skipaferðir: Skipakomur höfðu verið  venju fremur miklar, þetta sumar. Eimskipið "Gullfoss" kom til Eyrarbakka 11. júli og náði að skipa upp megninu af þeim vörum er hingað áttu að koma. Kom það aftur hér mánuði síðar og tók héðan 500 balla af ull. "Willemoes" skip Landsverslunar kom tvívegis um sumarið og skipaði upp steinolíufarmi til olíuverslunarinnar hér, en í þriðju ferð sinni fékk skipið ekki samband við land þar sem allur mannskapur var í heyskap um þessar mundir,og fór það því að svo búnu 2. Strandferðaskipið "Skaftfellingur" kom og sótti fullfermi af fiski til útfluttnings. Tvö skip komu til Kf. Heklu, annað með kol og hitt með salt, kom það frá Spáni og var 14 daga á leiðinni upp. Svo kom Esjan og tók ull hjá kf. Heklu.

Sjávarútvegur: Sjómenn hér fluttu nær allt slóg sem til féll út á grunnmiðin. Var talið að fiskur héldist við lengur á miðunum væri þetta gert, þó ekki hafi verið þess vegna að nú bar svo við að óvenju vel aflaðist á vetrarvertíð og á stundum mokafli svo jafnvel að með fádæmum var. Saltlaust var orðið um miðja vertíð og var þá snarlega brugðist við um að fá saltskip hingað svo veiðar gætu hafist að nýju. Um 15% aflans var ekki verkaður til útfluttnings. (19.500 stk. ýsur og 2.264 stk. ufsi og keila). Á Eyrarbakka og Stokkseyri voru gerðir út 20 mótorbátar, allir undir 12 tn. Teinæringar voru 5 og 1 sexæringur. Sjómenn voru samtals 255 á þessum veiðistöðvum, þ.a. 162 á mótorbátum. Var þessi vertíð sú besta hingað til, sem sögur fóru af.

Samgöngur: Bifreiðastöð Reykjavíkur (B.S.R.) hélt uppi fólksferðum milli staðanna, Eyrarbakka, Stokkseyri og Reykjavíkur tvisvar í viku yfir sumartímann og Bifreiðastöð Steindórs einn dag í viku. Bifreiðastöð Eyrarbakka (B.S.E.) var hinsvegar með daglegar ferðir milli þessara staða. Að B.S.E. stóðu Sigurður Óli Ólafsson, Steingrímur Gunnarsson, Bjarni Kr. Grímsson og Einar Einarsson. Vöruflutningabílar komu daglega úr Reykjavík, aðalega með verslunarvarning. Stöku ferðir áttu hingað aðrar bifreiðastöðvar, svo sem "Sæberg" í Hafnafirði.

Samfélag: Skátarnir ("Birkibeinar") gáfu út blaðið "Áhugi", en ritstjórar þess voru Björn Guðmundsson og Ketill Gíslason. Blaðið fjallaði aðalega um íþróttir og skátastarf. Íþróttamót var haldið við Þjórsárbrú. Í kappglímu drengja unnu til verðlauna 1. verðl. Björn Bl. Guðmundsson frá U. M. F. Eyrrarbakka. 2. verðl. Dagbjartur Bjarnason frá U. M. F. Stokkseyrar. Í 100 m. hlaupi, l.verðl. Kári Sigurðsson frá U. M. F. Eyrarbakka. Í 100 m. hlaupi drengja 1. verðl. Björn Bl. Guðmundsson frá U. M. F. E. Í langstökki, l.verðl. Kári Sigurðsson frá U. M. F. E. Í Hástökki, 1. verðl. Kári Sigurðsson frá U. M. F.E. Flesta vinninga á mótinu, 15 stig, hlaut U. M. F. Eyrarbakka. Fékk það að verðlaunum skrautlegt skjal, er teiknað hafði Sigurjón Ólafsson málaranemi á Eyrarbakka. Lítið fór fyrir pólitískri umræðu, en þó dúkkaði upp "Harð-jaxlinn" og grínistinn Oddur Sigurgeirsson sem boðaði bolsévisma í Eyrarbakkaborg, eins og hann kallaði staðinn og Bjarna Eggerts oddviti var borgarstjórinn í hans augum. Jafnaðarmannafélag Árnesinga, stjórnmálafélag innan Alþýðuflokksins, var stofnað á Eyrarbakka 24. nóvember. Stofnendur voru 56 af Eyrarbakka, Stokkseyri og víðar úr sýslunni.

Látnir: Jóhann Magnússon Einarshöfn (87), Guðbjörg Eyjólfsdóttir Hópi (84), Helga Ingvarsdóttir Túní (74), Þuríður Guðmundsdóttir Eimu (73), Sesselja Helgadóttir Gamla-Hrauni (35), Jóhanna Benediktsdóttir Litlu-Háeyri (27), Margrét Jóna Einarsdóttir grund (14), Ingileif Sigríður Pálsdóttir Sandvík (1), Sigurður Guðmunsson Háeyrarvöllum (1), Jón Eyvindur Sigurðsson Götuhúsum (0) Sveinbarn Eyvindsdóttir Bakaríi (0),

Byggingar: Steinskot II var byggt þetta ár.

Ýmislegt: P. Níelsen í Húsinu og fv. verslunarstjóri Lefolii verslunar var sæmdur riddarakrossi fálkaorðunnar er hann varð 80 ára. Hann var fæddur í Ring-Köbing á Jótlandi, en kom hingað 1872, og varð þá bókhaldari við Lefoliisverslun á Eyrarbakka. Forstjóri hennar var þá Guðmundur Thorgrímsen. P. Nielsen kvæntist dóttur hans Eugeniu, 25. júlí 1880,  og tók hann við forstöðu verslunarinnar af tengdaföður sínum 1. janúar 1887. Hvatamaður hafði hann verið að ýmsum þörfum framkæmdum og velferðamálum. Hann stofnaði  m.a. ábyrgðarsjóð fyrir róðrarbáta og kom ýmsum umbótum af stað. Hann var auk þess mikill hvatamaður fyrir náttúruvernd á Íslandi. Þá gaf hann Barnaskólanum mest allt Náttúrugripasafnsitt3.  Sláturfélag Suðurlands gerði tilraun til að slátra fé Árnesinga að Borg í Grímsnesi. Það þótti tilkomumikil sjón þegar tvær sjóflugvélar enskar, flugu hér yfir á leið til Reykjavíkur. Það bar við að Hvítá þornaði upp að öllu dagstund þann 29. febr.

Þjóðarhagur: Nefnd var sett á fót til að annast gengisskráningu krónunnar og festa gengi hennar. Dollarinn kostaði 7 kr. og 56 aura, en dönsk króna kostaði 125, kr. og 69 au. Verslunin greiddi 5% af hreinum arði til útsvars. Fiskveiðiárið var eitt það mesta í sögunni og landbúnaðarvörur voru í góðu verði til útfluttnings.

?

1.  Vegna slæmrar stöðu Sparisjóðsins var haldinn fundur með innstæðueigendum 6. okt. 1923. Fundur þessi var afarfjölmennur og niðurstaðan varð þá helst sú, að sjóðurinn héldi áfram að starfa og ynni töpin upp aftur. Á  fundi þessum var kosin nefnd til nánari athugunar á málinu. Nefnd þessiboðaði svo aftur til fundar með innstæðueigendum þann, 24. nóv s.á. Var þá aftur fjölmennur fundur haldinn um málið og skýrði þá nefndin frá störfum sínum: að hún hefði reynt að ná samkomulagi við bankana [Landsbankann og Íslandsbanka] um, að annarhvor þeirra tæki hann að sér, en alt kom fyrir ekki, og nú sæi hún ekki annað ráð vænna, en að sjóðurinn héldi áfram og reyndi að hafa sig upp aftur.Nefndin hóf á ný  samningaumleitanir og sótti aftur í sama horfið, að Landsbankastjórnin vildi fá sjóðinn með sem mestum afföllum, 25% af innstæðueigendum og landið ábyrgðist 5%, alt svo með 30% afföllum. En svo fóru leikar, að landsábyrgðin fékst ekki, og enn var haldinn fundur um málið með innstæðueigendum 2. júlí 1924 og kom þá fram það tilboð, að Landsbankinn væri fáanlegur til þess að hirða sparisjóðinn, ef innstæðueigendur vildu fórna til þess ¼ af innstæðufé sínu. Fundurinn beygði sig undir þessa vandræða úrlausn, að undanteknum fáum mönnum, sem ómögulega gátu felt sig við þessa bóndabeygju. En sögu stærsta og öflugasta sparisjóðs landsin lauk hér.  [Ransóknarnefnd skipuð heimamönnum mat tapið 6% í ljósi bætts hags til sjávarins á vertíðinni 1924, en rannsóknarnefnd ríkisins mat tapið rúm 14 % m.v. þann aflabrest sem varð 1923].

2. Eftir að " Es. Willemoes" fór héðan óafgreitt,  í þriðju ferð sinni, varð allmikið hafarí út af þessu, þar láðist afgreiðslumanni að láta skipstjóra olíuskipsins vita að ekki yrði hægt að losa skipið fyrr en á flóði næsta dags, þar sem allir verkfærir menn voru við heyskap. Olían var síðan sótt til Reykjavíkur og flutt hingað á mótorbátunum.

3. Náttúrugripasafn P.Níelsens sem hann afhenti Barnaskóla Eyrarbakka til varðveislu var þannig a. m. k.:  23 uppsettir ísl. fuglar, sumir sjaldgæfir; 45 teg. ísl. fuglaeggja - þar á meðal flestar sjaldgæfari teg. -, mikið safn ísl. og erlendra bergtegunda o.m.fl.  fylgdi gjöfinni nákvæm skrá yfir safnið. Skápur, fylgdi gjöfinni er mátti rúma mikla viðbót.

* Íbúatal unnið úr mannfjöldaskýrslum árin 1921-1926, heildarfjöldi skráðra íbúa 1924 en ekki m.v. 1.des þ.á.

 

Heimildir, dagblöð 1924: Morgunblaðið, Lögberg, Alþýðublaðið, Tíminn, Vísir, Skutull, Ísafold, Lögrétta, Hænir,Vörður, Harðjaxlinn.

Tímarit 1924: Ægir, Áhugi, Tímarit Verkfræðifélags Íslands, Þór,

Flettingar í dag: 170
Gestir í dag: 46
Flettingar í gær: 193
Gestir í gær: 35
Samtals flettingar: 273325
Samtals gestir: 35396
Tölur uppfærðar: 9.12.2024 14:34:29