Flokkur: Veðrið
19.12.2010 01:21
Kalt til jóla og kanski föl.
Það spáir kuldum strax eftir helgi með norðanátt og allt að 12 stiga frosti þegar kemur fram á þriðjudaginn samkvæmt spá veðurstofunar og helst kuldinn við fram að þorláksmessu. Þá má búast við éljum víða á sunnanverðu landinu með austlægum áttum, en áfram verður dálítið frost.
Á föstudag (aðfangadagur jóla) og laugardag (jóladagur): Líkur á hægri austlægri eða breytilegri átt. Lítilsháttar él, síst þó vestanlands. Hiti breytist lítið á aðfangadag en heldur mildara á jóladag segir í spánni.
17.12.2010 23:00
Norðan belgingur
Mikið norðan hvassviðri gekk yfir landið í dag. Hér á Bakkanum var brostinn á stormur á milli kl.18 og 19 í kvöld og fóru stakar vindhviður í tæpa 30m/s. Heldur hefur lægt með kvöldinu en þó er enn bálhvasst.
Eins og sjá má hér á kortinu er norðurálfa nær alhvít af snjó og á það einnig við um ísland þó svo við séum á auðum depli hér suðvestanlands. Þá má greina hvernig íslands forni fjandi (gulur) læðist að Vestfjörðum og suður með Grænlandi. Hægt er að stækka myndina með því að smella á hana.
25.11.2010 22:07
Kuldi í kortunum
Ef einhverjum þykir vera kalt þessa daganna, þá á það bara eftir að versna nú þegar helgin gengur í garð og einkum á Sunnudaginn, en þá spáir veðurstofan kuldakasti og samkvæmt því má búast við 5-10 stiga frosti hér við sjóinn, en kaldara inn til landsinns.
14.11.2010 23:49
Kuldaboli
Nokkuð frost hefur verið að undanförnu og tjarnir allar lagðar. Í kvöld var komið upp undir 11 stiga frost og þykir það allnokkuð hér við sjóinn. Á morgun á að hlýna en svo kemur kuldaboli aftur.
25.10.2010 22:19
Fyrsti snjórinn á þessum vetri
Fyrsti snjórinn kom og fór. Það byrjaði að snjóa um hádegi og skömmu síðar var kominn svarta mugga. En síðdegis var allur snjór farinn, enda þá komin bullandi rigning. Annars var ekki slæmt veður á Bakkanum í dag þó hvasst væri á heiðinni og úti fyrir ströndinni, t.d. var austan stormur í Surtsey í allan dag, en hér komst vindur mest í 12 m/s en var þó yfirleitt hægari.
23.10.2010 00:53
Gormánuður byrjar
Í dag er fullt tungl og fyrsti vetrardagur. Þá byrjar Gormánuður samkvæmt norræna tímatalinu en nafnið tengist sláturtíð. Þá leggst gróður í vetrardvalann og tími frosta og snjóa gengur í garð á norðurhveli. Á morgun Sunnudag má búast við að fyrstu él vetrarins falli á Bakkann, en um leið og við tökum veturinn í fang, þá þökkum við goðunum fyrir afbragðs gott sumar.
18.10.2010 23:03
Í bleikri birtu
Eyrarbakkakirkja skartar nú bleikum ljósum á þessari fyrstu frostnótt vetrarins. Það er spáð allt að 4 stiga frosti í nótt og á morgun er ekki gert ráð fyrir meira en 4 stiga hita að deginum.
17.10.2010 00:02
Vetur kemur kinna kaldur
Nú er spáð kólnandi veðri í næstu viku um allt land og fyrstu frostum vetrarins á mánudagskvöld. Þannig spáir FORECA allt að fjögra stiga frosti á Eyrarbakka aðfaranótt þriðjudags. Í framhaldinu mun væntanlega grána í fjallstoppa hér sunnanlands en mun meiri snjó er þó spáð fyrir norðan og jafnvel á láglendi.
10.10.2010 23:47
Enn eitt metið á Bakkanum
Ótrúlegt en satt, tveggja daga gamalt mánaðarmetið er fallið! Nýtt dags og mánaðarmet hitastigs var slegið í dag þegar hitastigið náði nýjum hæðum 16,8°C og féll þá dagsmetið frá 2002 12,3°C. Það var ekki skýjahnoðri á himni í allan dag og vel hægt að liggja í sólbaði þó sólin fari nú ekki hátt á himininn um þetta leiti ársins. Ekki er loku fyrir það skotið að þetta ár verði það hlýjasta í sögunni, a.m.k. á Eyrarbakka. Þá var einnig hitamet í gær, en þar munaði aðeins 0,1°C yfir gamla metinu sem var 12,6° frá árinu 1959 en eftir það ár stóðu 4 dagsmet fram til þessa og eru þau nú öll fallin.
04.10.2010 23:00
Spánarloftslag
Það var hlýtt í veðri þennan oktoberdag og dagsmet slegið með 14.8°C. Samkvæmt mínum bókum er eldra dagsmet frá 1959 með 12,5°C. Í gær var líka nýtt dagsmet með hámarkshita 15,2°C og féll þá dagsmetið frá 1976 14°C á Bakkanum og sömuleiðis mánaðarmetið 15,1° frá 1958. Það verður að segjast að eldri dagsmet verða í hættu á að falla alla vikuna og þá einkum um næstu helgi en þá er spáð töluverðum hlýindum. Djúp lægð rétt sunnan við landið sér um að flytja þetta hlýja loft til okkar og ekki er að sjá að sú gamla sé neitt á förum í bráð. Það er því lítil hætta á að þjóðin fái kvef þó hún standi næturlangt og berji á tunnur og járnarusl úti á Austurvelli, enda fólki líka heitara í hamsi en nokkru sinn fyirr og lái því hver sem vill.
03.10.2010 00:50
Veðrið í September
Mánuðurinn var óvenju hlýr einkum framanaf og mældist mest 16,3°C þann 3. september og 16,8° þann 4. á hitamæli Brims. Þegar á leið mánuðinn lagðist í rigningar eins og hann á stundum vanda til þegar haustlægðirnar bera að og tók þá einnig að brima á Bakkanum, en mánaðarúrkoman var um 144 mm sem telst nú ekki til stórtíðinda. Þá var vindasamt á köflum, þann 14. gerði storm og suðaustan hvassviðri gekk á undir lokin. Loftvog stóð lágt um miðjan mánuð og í lok mánaðarins. Öskumistur var yfir í byrjun mánaðarins og sást þá lítt til fjalla. Þetta sumar sem nú er liðið telst það hlýjasta síðan mælingar hófust og er vart hægt að óska sér það betra að frátöldu öskumistrinu
28.09.2010 23:49
Brimsúgur og bleytutíð
Tíðarfarið hefur verið rysjótt að undanförnu með austan stinningskalda og hvassviðri á köflum en milt og gott inn á milli, t.d. fór hitinn í 14,5°C í fyrradag á brimstöðinni. Töluverðar rigningadembur gerði í gær 10,5 mm og fyrradag 14.4 mm á sólarhring en þá var klukkustundarúrkoma mest 4,5 mm sem nægir til að gegnbleyta hverja spjör. Þá hefur gert töluvert brim og berst nú seiðandi ómur þess inn í dimma nóttina sem færist heldur í aukana, enda vaxandi ölduhæð. Nú fellur loftvogin enn á ný og vindurinn rífur í trén og klæðir þau úr litskrúðugum haustfötum sínum og spáin gerir jafnvel ráð fyrir þrumum í nótt.
23.09.2010 22:34
Haust
þegar síðdegis skúrirnar liðu hjá og sólin tók að skína að nýju, myndaði hún þennan fallega regnboga eins og geislabaug yfir sjóminjasafninu. Þrátt fyrir glaða sól og þá einkum í gær hefur hitinn aðeins náð 11 gráðum, enda er nú komið haust samkvæmt almanakinu því í dag er haustjafndægur. Hér er hægt að fræðast nánar um árstíðirnar.
Utan við brimgarðinn geystist björgunar hraðbáturinn í átt til lands. Nú er stórstreymt á fullu haust tunglinu og dálítið tekið að brima að nýju eftir nokkurt hlé, einkum vestan til. Búast má við að brimið vari fram yfir helgi.
14.09.2010 23:20
Hávarok
Norðan hvassviðri gekk yfir land og þjóð síðdegis í dag og náði meðalvindur hér 20 m/s, en það teljast 8 gömul vindstig. Hvassara var í sumum hviðum eða allt að 28 m/s (11 vindstig) sem táknar ofsaveður, enda ruddust laufin af tránum í mestu rokunum. Þetta fyrsta illviðri haustsins er nú að mestu gengið yfir. Nú má fara að vænta kaldra nátta og jafnvel næturfrosta til fjalla, enda er krummi kominn til að hafa hér vetursetu og svo aldrei að vita nema að fyrstu frostin á láglendi verði um eða eftir næstu helgi.
08.09.2010 23:01
Óvenjuleg hlýindi
Það hefur verið óvenju hlýtt á landinu síðustu daga miðað við árstíma. Í dag komst hitinn hér í 15.4°C sem ætti að þykja ansi gott í september, en fyrir nákvæmlega ári fór hitinn í 16°C og stendur það dagsmet. Í dag var stórstreymi með nýju tungli, en ekkert brim var á Bakkanum í dag. Fullt tungl verður næst 23.september og nýtt tungl 7.oktober.