Flokkur: Veðrið
20.12.2006 12:46
Flóðahætta á Selfossi.
það hefur mikið rignt undanfarna daga og leysingar eru nú í hámarki, hitinn er 9°C sem er nánast eins og meðalhiti í júní mánuði. þetta veldur gífurlegum vatnavöxtum í ám á Suðurlandi og er Ölfusá að verða bakkafull við Selfoss og meiri vatnselgur á leiðinni ofan af hálendinu. liklegt er talið að Hvítá flæði við Hestfjall siðar í dag og ekki er útilokað að flætt geti við Brúnastaði.
Það getur aukið á vandann að nú er stórstreymt sem þýðir að Ölfusárós fyllist og getur það valdið vandræðum í Ölfusinu og á Óseyrarnesi en þar er að auki vaxandi brim og vindátt óhagstæð. Versnandi veður getur einnig valdið talsverðu sand og særoki á þeim slóðum.
Á morgun er spáð allt að 13 metra ölduhæð í Eyrarbakkabaug og er vissara að vera vel á verði gagnvart sjávarflóðum við Ölfusárósa, en háflóð er um kl 7:00 að morgni og 20:00 að kvöldi. Þetta sjólag mun heldur ekki hjálpa mönnum sem vinna við strandstað Wilson Muuga í Sandgerði.
http://www.almannavarnir.is/ http://www.logreglan.is/embaettin.asp?cat_id=38
19.12.2006 17:28
Jólaveðrið
Veðurstofan er búin að gefa út veðurútlitið yfir jólin en það sem eftir er vikunar megum við berja vindinn og regnið í andlitið. Á Þorláksmessu fáum við svo storm í fangið þegar við berum út jólakort og gjafir. Aumingja jólasveinninn hann Ketkrókur, hann fær sko það óþvegið frá veðurguðunum þegar hann arkar um bæinn á móti skötulyktinni í leit að góðum kjötbita. Heldur mun viðra betur á Kertasníki en ansi verður blautt á sveinka samkvæmt spám veðurstofunar og er ég ansi hræddur um að illa logi á kertunum.
17.12.2006 23:26
Verða jólin rauð?
Eftir að hafa gluggað nokkuð í veðurspár, innlendar sem erlendar þá lítur helst út fyrir að jólin verði rauð, að minnsta kosti hér sunnanlands. Svo þessi litli snjór sem við fengum til viðbótar í morgun verður hlýndunum að bráð frá og með morgundeginum.
Þegar enginn snjór er á jólum, hversvegna eru þau þá sögð rauð? Hvað er þetta rauða? Er það kanski rauði liturinn á búningi jólasveinsinns?
15.12.2006 08:57
Marrandi frost.
Um þessar mundir er kalt og frostið herðir allt, kl.06 í morgun var -12.8°C á Eyrarbakka en kaldast á landinu í morgun var -17°C í Þykkvabæ. Ekki er gert ráð fyrir hlýnandi veðri fyrr en á sunnudag en þá er líklegt að veðrið skipti um gír með úrkomu fram eftir næstu viku. Sólin er nú orðin það lágt á lofti að hún nær ekki að verma hörund og því betra að klæða sig vel.
Einar Veðurbloggari skýrir þetta kuldafyrirbæri vel á heimasíðu sinni.
13.12.2006 22:35
Blessaður snjórinn.
Þá er hann loksinns kominn á Bakkan blessaði Jólasnjórinn og væri nú afleitt ef hann vantaði svona á meðan jólaundirbúningurinn stendur sem hæðst þessa dagana. Snjórinn gerir líka Jólasveinunum léttara að komast til byggða, sem nú geta rennt sér á þotusleðum niður malarnámuna á Ingólfsfjalli.
En ekki eru allir jafn hrifnir af snjónum, t.d. ekki þessi bíleigandi hér!!!!!!
12.12.2006 08:15
Brimskaflar
Margra metra háir brimskaflar rúlla í átt til lands eftir óveðrið um liðna helgi.
10.12.2006 15:46
þrumur og eldingar
10.12.2006 12:23
Veðrið slotað
Loftþrýstingur var lægstur 951,5 mb kl.04 í nótt en mesti vindur var um miðnættið 16,4 m/s á Bakkanum sem telst varla meira en smá hvassviðri. Veðurathugunarmaðurinn í Stíghúsi mældi 28 mm úrkomu á síðasta sólahring sem er tæplega hálfu minna en á Stórhöfða, en þar mældist úrkoman 45 mm. Veðurstofan greindi frá eldingaveðri á suðvesturlandi í nótt.
09.12.2006 17:59
Rýnt í veðrið.
Radar Veðurstofunar sýnir skýjabakka frá Lægð 091206 læðast inn.
Spáð er að lægðarmiðjan verði 932 mb um miðnætti.
08.12.2006 23:05
Meira brim
Búast má við miklu brimi á Bakkanum á sunnudaginn í kjölfar krapprar lægðar, en á hádegi þann dag spáir siglingastofnun 8 metra ölduhæð úti fyrir Eyrarbakkabaug. Ekki eru miklar líkur á sjávarflóðum á Bakkanum í kjölfar lægðarinnar þar sem nokkuð er liðið frá stórstreymi en þó mun verða hátt í sjó vegna veðurs. Á síðdegisfóðinu á laugardag kl.21:00 verður sjávarhæðin um 2,80 metrar en rúmir 3 metrar á morgunflóðinu kl.10:00 á sunnudag samkv. tölvureiknum Siglingastofnunar, sem er mun minna en í venjulegu stórstreymi. (sjá töflu) Vindur verður að SA 15-25 m/s eða Stormur, en jafnvel hvassari út af Vestfjörðum en mesta úrkoman sunnan til. Veðurspáin á NFS í kvöld var hinsvegar meira ógnvekjandi fyrir suðurströndina en má ætla af tölvuspám.
08.12.2006 14:22
Lognið á undan storminum
Út af suðurodda Grænlands er nú skemmtileg lægð á leiðinni til okkar, hún er nú um 999 mb og fer dýpkvandi. Tölvuspár gera ráð fyrir að hún geti farið undir 940 mb í lægðarmiðju, en mun grynnast þegar hún kemur nær landinu aðfararnótt sunnudags. þannig að blíðviðrinu sem einkennt hefur síðustu daga fer að ljúka í bili.
01.12.2006 15:12
Haugabrim
Það var tilkomumikið brimið á Bakkanum eftir storm gærdagsinns.
30.11.2006 08:07
Hressandi stormur
Nóvember hefur verið einn sá stormasamasti um langa hríð,byrjaði með hvelli og endar líklega á sama hátt. Á loftmyndinni má sjá lægðina sem er að renna upp að suðurströndinni en hún er um 950mb.
Lægðinni fylgir mikill vindbeljandi undir Eyjafjöllum og austur með ströndinni.
25.11.2006 14:24
Kuldahrollur.
Hátt rakastig gerir veðrið kaldara en ella, þó frostið sé nú aðeins -3°C og hægur vindur. Þegar loftraki er hár þá verður viðloðun meiri sem sjá má á að t.d. bílrúður hríma. Í dag mælir sjálvirka veðurathugunarstöðin á Eyrarbakka um 80% loftraka en í gær var loftrakinn um 50% og hitastigið nokkuð svipað og þá fann fólk minna fyrir kuldanum.
24.11.2006 14:10
Helgarblíða á Bakkanum!
Gera mæa ráð fyrir heiðskýru veðri á Bakkanum alla helgina. Gola eða blástur af norðri með hita um eða yfir frostmark að deginum. Upplagt veður til að skoða norðurljósin og stjörnuhimininn þegar kvölda tekur með undirhljómi brimsins. Á mánudag gæti síðan dregið til tíðinda með versnandi veðri.