Flokkur: Veðrið
06.10.2009 22:02
Bakkinn mjallhvítur
Á þessari veðurtunglamynd frá MODIS má sjá hvernig veðraskilin lágu eftir snjókomuna liðna nótt. Þannig er Bakkinn mjallhvítur hulinn 20 cm snjólagi en ofantil við Tjarnarbyggð er marautt. Um 1°kaldara var innan snjólagsins en t.d. í Tjarnarbyggð. Selfyssingar ráku upp stór augu þegar strandabúar óku um bæinn með snjóhlaða á bílum, en þar hafði ekki fallið eitt snjókorn í nótt.
05.10.2009 23:11
Fyrsti snjórinn fellur
Fyrstu snjókornin féllu á Bakkan í kvöld og er nú komin þó nokkur föl eins og myndin ber með sér. Fyrstu snjóar á bakkanum eru oftlega í oktobermánuði. Árið 2007 kom fyrsti snjór vetrarins 28.oktober en í fyrra 2.oktober. Árið 2006 féll fyrsti snjórinn hinsvegar ekki fyrr en 8.nóvember. Fysti snjór er venjulega fljótur að hverfa við ströndina. þessi snjór gæti verið að mestu horfinn annað kvöld, en svo kemur meira.
04.10.2009 22:16
Hiti í 8 tíma
Hitatölurnar fara stig lækkandi þessa daganna og var hitastigið fyrir ofan frostmark í aðeins 8 tíma yfir hádaginn og komst mest í tæpar 5°C. Liðna nótt fór frost hinsvegar í tæpar -7°C. Það má því með sanni segja að nú sé kominn vetur, enda má búast við að öll úrkoma sem fellur eftir sólsetur næstu daga verði í hvítu formi og allt eins líklegt að fyrstu snjókornin falli á Bakkan aðra nótt. Það væri svo eftir öðru ef komandi vetur yrði jafn þungur í skauti og efnahagur þessa lands ætlar að verða.
Í dag er tunglið fullt.
03.10.2009 17:58
Fjöllin klæðast hvítu.
Fallegur dagur, bjartur og fjöllin skarta hvítum kufli.
þennann dag: 1968 Heybruni mikill á Litla-Hrauni þegar hlaða sem þar var brann.1976 var mesti hiti fyrir þennan dag 14°C, en mesta frost 1986 -7,3°C
02.10.2009 12:44
Slyddurigning
Veðrið í dag er heldur leiðinlegt með kalsarigningu og fremur svalt en vindur skaplegur. Í morgun hafði snjóað í fjöllinn. Á Selfossi var krapasnjór og slydda. Nú er spáð norðanátt með kvöldinu og kólnandi veðri en stormurinn sem spáð var með suðurströndinni nær sennilega ekki á Bakkann.
Úrkoma kl.09 mældist 35mm.
Þennan dag: 1958 mældist mesti hiti sem mælst hefur hér í oktober 15.1°C
28.09.2009 14:36
Hrím og Héla
Nái döggin að frjósa á jörðunni, kallast hún hrím eða héla. það gerðist einmitt í nótt og ökumenn sem fóru snemma af stað þurftu að finna sköfurnar sínar, því kl.8 í morgun var frost -3.7°C.
Í morgunsárið var ís kominn á tjarnir og dælur og virðist vetur vera nærri.
Mesta frost á þessum degi var árið 1995 -5,0°C
14.09.2009 23:08
Silfurgrár er september
Með súld og brimasöng í dag. Það gekk á með hvössum vindhviðum og skúraleiðingum um hádegið og náði ein hviða stormstyrk, eða yfir 20 m/s, en þessu leiðindaveðri veldur lægð milli Íslands og Grænlands. Önnur lægð er að búa sig undir heimsókn, en hún er nú yfir Nýfundnalandi og ansi myndarleg og með nóg af rigningu.
Á þessum degi: 1957 Plastiðjan H/F tók til starfa á Eyrarbakka.
25.08.2009 22:54
Hlaupinn í rigningar að helgi
Gali haninn óvenju mikið veit það á vætu, stendur einhversstaðar og önnur saga segir að ef einhver leggi hrífuna frá sér þannig að tindarnir standi upp, þá kalli það á regn, en hvort sem þetta er satt eða ekki þá hefur talsvert ringt hér í dag og í kvöld. En helgin lofar góðu segja spár og jafnvel hægt að sóla sig a.m.k. fram á sunnudag.
24.08.2009 21:59
Sumarið kvatt með hvelli.
Vindhraði fór víða yfir 20 metra á sekúndu í dag, t.d. hér á Bakkanum í mestu hviðunum, en hvassast var á Bláfeldi á sunnanverðu Snæfellsnesi, 27,8 metrar á sekúndu og á Fagurhólsmýri mældist vindhraðinn 26,3 m/s.
Hinu frábæra sumri virðist nú lokið fyrir fullt og allt og haustveðrin að taka völdin með gusti og rigningum. Annars fór hitinn upp í 18.1°C í stutta stund í dag og er það skráð dagsmet hjá Briminu, en fyrra dagsmetið er frá 1989 16,3°C
18.08.2009 22:22
1. lægðaremban kominn
Fyrsta haustlægðin ef svo má segja, er komin og lætur ekki fara mikið fyrir sér hér um slóðir, nema hvað henni fylgir nokkur úrkoma og verður ugglaust forvitnilegt að sjá hvað hefur komið í mæliglasið í Stíghúsi eftir morguntökuna í fyrramálið. En það þarf þó að rigna talsvert mikið til að slá út dagsmetinu frá 1969 sem er 15.9 mm og fremur ósennilegt að það náist. En mesta úrkoma sem mælst hefur á Eyrarbakka í ágúst var 79,2 mm þann 10. 1984 og er það líklegt til að standa enn um sinn.
þennan dag: 1968 féllu kartöflugrös víða.
11.08.2009 21:23
Svöl nótt
Menn hafa eflaust orðið varir dalalæðu í gærkvöldi og að að dögg var á bílum í morgunsárið.
Næst minnsti hiti á landinu var nefnilega hér liðna nótt, en þá féll hitinn niður í 0,9°C. Aðeins var kaldara á Þingvöllum, eða rétt um frostmark. Á meðan vindur er hægur af norðan og bjart yfir um þetta leyti árs, eru jafnan vaxandi líkur á næturfrostum. En það má segja að kuldamet sé fallið fyrir daginn, því lágmarksmetið í mínum bókum er 1,1°C frá 1993. En kaldasta nótt í ágústmánuði var - 1.1 þann 27. 1985 og nú er bara að sjá hvort það standi áfram.
07.08.2009 20:02
Útsynningur
06.08.2009 23:00
Vindur og væta
05.08.2009 21:32
Þurkatíð á enda
Hin dæmalausa þurkatíð sem verið hefur á Suðurlandi virðist nú vera að taka enda. Gróður allur sem verið hefur skraufa þurr fær nú einhverja vætu næstu daga. Trjávöxtur hefur verið í lámarki vegna þurka í sumar, en mannfólkið hér sunnanlands og þá einkum á Bakkanum orðið svar brúnt að lit og nær óþekkjanlegt. Getur vart talist um hvíta menn að ræða á þessum slóðum.
Enn eitt dægurmetið var slegið í dag þegar hitin komst upp í 19,4°C og velti úr sessi 17,2 stiga metinu frá 2003.
Á þessum degi:
1965 féllu kartöflugrös á Eyrarbakka
03.08.2009 20:19
Útræna
Hafgolan hélt hitanum niðri í dag við tæpar 15°C, þó galmpandi sól þar til síðdegis er hann dró upp á sig af hafi.Þingvellir voru með mesta og minsta hita í dag (1,4 til 20,9°C). Það var líka svalt á Bakkanum í nótt og féll lágmarksdægurmetið 2,9°C frá 1986 og nýja metið hér frá er 2,8°C.