Flokkur: Bátar
18.06.2010 21:55
Helgi ÁR 10

Bátar
14.06.2010 22:19
Skálafell ÁR 16
Þessi bátur var smíðaður á Ísafirði 1942. Árið 1982 áttu hann Baldur Birgisson, Þórður Guðmundsson og Henning Fredriksen. Báturinn hét Skálafell ÁR 16. Árið 1988 átti hann Þórður Eiríksson.
Bátar
14.06.2010 22:15
Sædís ÁR 22

12.06.2010 23:40
Skúli fógeti ÁR 185

Bátar
12.06.2010 20:32
Gunnar ÁR 199

Sjá bátar á Brimbarinn
12.06.2010 19:25
Pipp ÁR 1
Pipp var smíðaður í Danmörku 1925. Árið 1948 voru eigendur hans Helgi Vigfússon, Steinn Einarsson og Gísli Guðlaugsson og keyptu þeir bátinn frá Vestmannaeyjum, hét þá Pipp VE. Félagarnir seldu svo bátin aftur 1955.
Bátar
26.05.2010 22:54
Jón Helgason ÁR 150
Smíðaður í Danmörku 1944 og keyptur frá Vestmannaeyjum 1964 af Eyrar h/f. Báturinn strandaði við Eyrarbakka 20.janúar 1965 og eyðilagðist.
26.05.2010 22:31
Öðlingur ÁR 10
Báturinn var smíðaður í Svíþjóð 1946. Árið 1962 áttu hann Sverrir Bjarnfinnsson og Vigfús Jónsson á Eyrarbakka og hét þá Öðlingur ÁR 10. Báturinn talinn ónýtur 1965. Árið 1926 var smíðaður á Eyrarbakka bátur með þessu nafni og bar hann einkennisnúmerið ÁR 183 og átti hann Árni Helgason. Sá bátur var seldur til Keflavíkur 1933 og rak hann á land þar árið 1941 og brotnaði í spón. Árið 1916 var smíðaður bátur á Eyrarbakka sem bar einnig þetta nafn og sama númer og áttu bátin saman þeir Árni Helgason, Sigurður Guðmundsson og Guðmundur Guðmundsson. Slitnaði hann aftan úr togaranum Skallagrími RE og rak á land í Grindavík 14.apríl 1926. Áhöfnin hafði áður lent í sjóhrakningum í vonsku veðri og var bjargað um borð í Skallagrím. Þar hittu þeir fyrir Eyrbekkinginn Sigurð skipstjóra Guðjónsson á Litlu Háeyri.
20.05.2010 21:24
Gullfoss ÁR 204
Gullfoss var 11 tn. smíðaður á Akureyri 1930 úr eik og beyki. Árið 1943 keyptu Árni Helgason í Akri og sonur hans Sveinn Árnason bátinn og gerðu út frá Eyrarbakka. 1955 var báturinn seldur til Ytri Njarðvíkur og hét þá Sigríður GK 78. Báturinn sökk við Ólafsvík 1959 og hét þá Sigríður RE 350.
15.05.2010 22:22
Emma II ÁR 19
Báturinn var smíðaður í Danmörku 1916 40tn. með 60 ha.Thuxham vél. Keypt hingað frá Vestmannaeyjum, þá með 150 ha. Hundsded vél. Eigandi Reynir Böðvarsson. Báturinn ónýttist og tekinn af skrá 1970. Rifinn í slippnum á Eyrarbakka.
13.05.2010 22:44
Öldungur ÁR 173
Báturinn var smíðaður á Eyrarbakka 1923 úr eik. 10 tonn með Hansa vél. Guðmundur Guðmundsson á Eyrarbakka átti bátinn upphaflega. 1931 var Öldungur seldur til Stokkseyrar. Báturinn kom aftur á Bakkann 14.maí 1938 þegar Sigurður Kristjánsson, Kristinn Jónsson, Sveinn Árnason og Árni Helgason keyptu hann. 1943 var Öldungur seldur til Suðureyrar við Súgandafjörð. Báturinn var afskráður 1953.
Heimild: Íslensk skip
12.05.2010 22:33
Ægir ÁR 183
Smíðaður á Eyrarbakka 1940 úr eik. 15 br.l. Eigendur voru Magnús Magnússon og Jón Guðjónsson á Eyrarbakka. Báturinn var lengdur 1958 (21 br.l.) 1952 eignuðust Guðmundur Einarsson og Guðmann Valdimarsson á Eyrarbakka bátinn. Seldur 1960 til Hafnafjarðar.
12.05.2010 22:22
Freyr ÁR 150
Smíðaður í Reykjavík 1916 úr eik. 12 br.l. Eigendur af bátnum voru Jón Helgason, Kristinn Gíslason og Guðmundur Jónsson á Eyrarbakka. Báturinn strandaði og sökk í Þorlákshöfn 28.mars 1940.
Jón Helgason frá Bergi ()
11.05.2010 22:15
Freyja ÁR 149
Báturinn var smiðaður á Eyrarbakka 1916 úr eik 9.br.l. með 10 ha.Dan vél. Eigendur af Freyju voru Jóhann E Bjarnasson o.fl. Eyrbekkingar. Báturinn slitnaði af legu á Eyrarbakka í des. 1936 og sökk. Engan sakaði.
Heimild Íslensk skip.
10.05.2010 23:55
Björgvin ÁR 55
Báturinn var smíðaður á Eyrarbakka 1916 og voru eigendur Jóhannes Sigurjónsson, Þorkell Þorkellsson og Guðmundur Sigurjónsson á Stokkseyri.1942 var Báturinn seldur til Bolungarvíkur. Hét þá Björgvin ÍS 48. Báturinn slitnaði upp af festingum í illviðri og brotnaqði í spón.