Flokkur: Veðrið
30.01.2008 15:13
Hæð yfir Grænlandi
Nú er komin hæð yfir Grænlandi, en þar hefur þetta fyrirbæri ekki sést mánuðum saman. Komi þessi rómaða hæð til með að halda næstu vikur, þá mun hún bægja frá lægðum að sunnan en þess í stað senda okkur ískalt og þurrt heimskautaloftslag. Eða með öðrum orðum þá er kuldakast yfirvofandi sem blæs líklega í burtu öllu tali um gróðurhúsaáhrif.
Í dag var N 3 m/s á Eyrarbakka og Skýjað. Skyggni 24 km og Sjólítið. Frost -5,6°C
27.01.2008 23:23
Það gustar um Þorra.
Það blés hressilega í dag á Bakkanum sem og annarstaðar á suðvestur horninu frá því kl 9 í morgun. Hér fór vindur mest í SV 27m/s um hádegisbilið og yfir 30 m/s í hviðum og hélst stormurinn við í allan dag. Snjó tók töluvert upp enda komst hitinn í +7°C um tíma. Lítil úrkoma féll þegar leið á dag eftir töluverða snjókomu í nótt og úrhellis rigningu undir morgun. Sjór hefur verið úfinn og risháar öldur og brimskaflar útifyrir ströndinni. Göturnar í þorpinu voru svellhálar og hefði verið full þörf á að sandbera þær.
25.01.2008 08:50
Á Bóndadegi!
Hrikalegt ástand er nú á þjóðvegunum hér á suðvestur horninu. Snjóruðningstæki út í móa og bílar fastir um allar tryssur. Bakkavegurinn er nánast að verða kolófær og hefur það ekki gerst í áratugi.Það gengur á með dimmum éljum svo ekki sér út úr augum, þar að auki brestur á með eldingum öðru hvoru. Það er óhætt að segja að Þorrinn gangi í garð með hvelli!
24.01.2008 22:49
Fennir yfir sporin
Það snjóar enn á Bakkanum og reyndar hefur hvergi snjóað eins mikið á landinu í dag og einmitt hér! 27 mm bræddur snjór eða um 10 cm fallinn snjór í dag og er snjódýptin nú orðnir einir 29 cm sem hvíla á Bakkanum. Þetta er bara að verða eins og í gamla daga þegar allt fór bókstaflega á bólakaf í snjó. Nú þegar bætir í vindinn fer allt í vitleysu, því nóg er efnið í stóra skafla! En vonandi nær þó að blotna í þessu áður.
Það var bjartara yfir höfuðborginni í dag þó að þar geysi nú pólitískir stormar og illviðri á þessum síðustu hamingjudögum. Hnífasettin seljast vel um þessar mundir.
Sveitarstjórnarlög eru meingölluð að því leiti, að unt sé að skipta um meirihlutastjórn án undangengina kosninga og skekkir það lýðræðið þar sem margt er í húfi á svo mannmörgum stað sem Reykjavík og raunar víðar. Það ætti nú að stokka spilin á ný í kosningum þegar svona stendur á.
23.01.2008 10:21
Lítið fuglalíf.
Sjá nánar fuglatalningarsíðu.
Í þorpinu sveima smáfuglarnir og bíða eftir brauði, því snjór er nú yfir öllu.
Veðrið í dag:V 3 m/s Snjókoma Skyggni 11 km Talsverður sjór -2,2°C
22.01.2008 23:18
Asahláka og stórbrim
Hvassviðri, rigning og asahláka var á Bakkanum í morgunsárið og stormur víða í grend. Á Hellisheiði og á Bakkanum náði vindur hámarki 24 m/s kl.8 í morgun og á Stórhöfða voru 38 m/s snemma í morgun. Í dag hefur svo rokið upp í storm öðru hvoru. Annars hefur vikan verið köld og hagalaust í sveitum vegna snjóa. Mikill sjór og brim er nú við ströndina.
19.01.2008 15:59
Vetur á Bakkanum.
Svona er veðrið á Bakkanum í dag, él og skafrenningur á köflum og yfir öllu liggur 35 cm. snjólag.
Frostmet fyrir 19.janúar gerði kl.6 í morgun en þá var -19°C frost en svo snögghlýnaði um hádegisbil og hitastigið -1°C kl.15. Eldra dagsmetið er frá 1998 en þá gerði -15,7°C frost þennan dag. Þannig að með sanni má segja að allt hlýskeiðartalið sé fyrir bý þessa dagana.
17.01.2008 12:55
Færðin
15.01.2008 10:06
Mikill snjór
Veðurstofan gaf upp 40 cm. snjódýpt á Eyrarbakka kl.09 í morgun, en það var nokkrum sentimetrum ofaukið, hið rétta er 14 cm. en þetta á víst bara eftir að versna því spáð er snjókomu aftur á morgun eftir smá uppstyttu í kvöld.
kl. 17:00 var snjódýptin á Bakkanum 20 cm og er kominn bloti í hann. Slabb er á götum. Mun meiri snjór er á Selfossi, á bilinu 30 til 40 cm og hafa bílstjórar þar tíðum lent í vandræðum vegna snjóþyngsla.
14.01.2008 11:54
Tíðin svöl við sjóinn.
Það hefur andað köldu að undanförnu við ströndina. Norðaustanáttir hafa verið ríkjandi síðustu vikuna og þá oftast stinningsgola með frosti á bilinu -1 til -3°C og úrkomulaust, en nú eru snjókorn tekin að falla og byrgja sýn til fjalla. Áfram er spáð köldu veðri og snjóhraglanda fram á næstu helgi, en þá gæti hlýnað.
Skógarþrestir og Starrar hafa haft vetursetu á Bakkanum og eru þeir í góðum holdum enda tíðin þeim hagstæð. Minna hefur borið á snjótittlingum, en þeir ættu nú að fara að byrtast þegar snjóinn tekur yfir. Þá er gott að eiga brauðmola aflögu til að gefa þeim
09.01.2008 22:24
Veðráttan breytt.
það sem af er mánuðinum höfum við verið blessunarlega laus við rokið og rigninguna sem barið hefur landsmenn í allt haust og fram til áramóta og njótum nú fremur hægviðris af norðaustri, en það hefur jafnframt kólnað í veðri. Fyrstu vikuna í janúar var hiti yfir frostmarki yfir hádaginn, en þessa vikuna hefur verið frost flesta daga og smá snjóföl yfir. Spáin hljóðar upp á éljaveður út vikuna með einhverju kuldakasti og strekkingi.
01.01.2008 12:42
Árið kvaddi með hvassviðri.
Desember var stormasamur á landinu og úrkoma mikil. Verstu stormarnir gengu yfir þann10. des13. des og 14 des. en allra mesti vindhraði mældist á Bakkanum 34 m/s í hviðum í óveðrinu þann 30.des.
Úrkoma mánaðarins reiknast 240 mm sem er vel yfir meðallagi en þó ekki met að þessu sinni. Mánuðurinn var yfirleitt mildur en kuldakafla gerði um jól með snjókomu. Mesta frost mældist -11°C á Bakkanum þann 28.desember.
30.12.2007 11:52
Óveður á Suðurlandi
Vegagerðin segir að óveður sé á nánast öllu Suðurlandi og hálka, krapi eða hálkublettir eru á allflestum leiðum. Kl.11 var vindhraðinn á Eyrarbakka kominn í 26 m/s og 33-34 m/s í hviðum. Á Stórhöfða hafa hviður farið yfir 40 m/s. Talsverð rigning er með ströndinni en minna upp til sveita. Þá voru 23 m/s á Hellisheiði og 26 m/s á Sandskeiði en aðeins 15 m/s í Þrengslum. 20 m/s voru undir Ingólfsfjalli.
Veðurspáin hljóðar svo til kl. 18 á morgun: Suðaustan 20-23, en 23-28 m/s með ströndinni. Mikil rigning í dag og hiti 5 til 7 stig. Lægir heldur síðdegis. Sunnan og suðvestan 15-20 í kvöld, en dregur smám saman úr vindi í nótt og á morgun með éljagangi. Kólnandi í bili.
26.12.2007 21:58
Spáð bleytu á Gamlárskvöld.
Úrkoma mánaðarins er kominn í 179 mm á Eyrarbakka sem er það mesta síðan metárið 2003 en þá mældust 271,3 mm í desember og því langt í land að það verði slegið.
25.12.2007 13:36
Jólasnjór
Talsvert hefur snjóað á Bakkanum í morgun og er snjólagið nú orðið 10 cm þegar þetta er skrifað. Nú hefur stytt upp í bili og orðið ansi jólalegt yfir að líta. Lítð eitt hafði snjóað við ströndina á aðfangadagsmorgun en þann snjó tók fljótt upp. Í uppsveitum hefur snjóað talsvert frá því í gær og fregnir herma að þar sé allt á kafi í snjó. Á veðurathugunarstöðinni í Hjarðarlandi var snjódýptin komin í 17 cm. kl 09 í morgun og sennilega talsvert bæst við síðan.