22.05.2016 21:19
Staldrað við á Austurbakkanum 2
Betra er lítið heimili en ekki neitt, segir í Hávamálum, en það er einmitt
einkennandi fyrir Litlu-Háeyrarhverfi, Suðurgötu og nágreni. Fyrir aldamótin
1900 voru þarna nokkrir torfbæir sem í bjó efnalítið fólk, en skömmu eftir
aldamótin risu þessi litlu hús, sem í dag gætu flokkast undir "Mínimalisma" og
eru þessi elst: Akur, Akbraut, Blómsturvellir, Deild, Frambæjarhús, Eyri, Helgafell,
Tjörn og Þorvaldseyri það stærsta, sem byggt var í hverfinu á fyrsta áratug 20.
aldar. Sennilega eru mörg þessara húsa byggð á grunni torfbæja eða þurrabúða.
Litla-Háeyri heita öll þessi hús, en það fremsta þeirra og elsta er þá var uppistandandi bjó síðast Guðlaugur Eggertsson, en húsið var rifið eftir hans dag. Torfbæjarhverfi mun hafa staðið þarna fyrum.
Á Akri bjó lengst af Árni Helgason formaður og frækin sjósóknari, ásamt
konu sinni Kristínu Halldórsdóttur og áttu þau 7 börn. Áður bjó á Akri, er þá
var lítill torfbær, Sigurður Jónsson formaður á Eyrarbakka og í Þorlákshöfn.
Sonur hans Jón var skipstjóri á Hilmi RE
240.
Í Akbraut bjó Þorbjörn Hjartarson og Elín Pálsdóttir
frá Nyjabæ ásamt 7 börnum. Þar var fyrir lítill torfbær, en húsið byggði
Þorbjörn á grunni gamla torfbæjarinns.
Á Blómsturvöllum bjó Jóhann Pétur Hannesson sjómaður, er þetta hús byggði ásamt konu sinni Elínu Vigfúsdóttur. Jóhann Pétur fórst í innsiglingunni á Eyrarbakka árið 1920 og flutti fjölskylda hans þá til Eyja. -Þeir Jóhann Pétur, Oddur Snorrason í Sölkutóft og Jóhann Bjarnason voru að koma á smábát framan úr vélbát, er þeir höfðu róið á til fiskjar út í Hafnarsjó, en lagt á legunni hér í höfninni og tekið aflann í smábátinn. Fylti bátinn í lendingunni rétt við fjöruborð, og soguðust þeir Jóhann og Oddur út og drukknuðu, en Jói Bjarna náði að synda í land.- Seinna áttu heimili á Blómsturvöllum Kristín Vilhjálmsdóttir og Þorbjörn Guðmundsson frá Einkofa. Kristín var móðir Steins í Vatnagarði Einarssonar. Síðar bjó þar Runólfur Guðmundsson úr Borgarfirði Eystra og Guðlaug Eiríksdóttir, ættmóðir margra Eyrbekkinga.
Í Deild bjuggu Sigurður Daníelsson gullsmiður og Ágústa Ebenezerdóttir
gullsmiðs Guðmundssonar ásamt þrem dætrum. Sigurður var hálfbróðir Ágústínusar
Daníelssonar í Steinskoti.
Helgafell byggði Helgi Jónsson verslunarmaður. Jóhann V Daníelsson kaupmaður og kona hans Sigríður Grímsdóttir keyptu það síðan og hélst húsið þaðan í ættinni.
Frambæjarhús er elsta húsið í
hverfinu, upprunanlega frá 1895, en eldra hús er þar stóð var rifið. Eftir 1900
bjó þar Vigfús Halldórsson frá Simbakoti. Síðan Guðlaugur Eggertsson
(Laugi Eggerts) formaður slysavarnardeildarinnar Bjargar. Gestur Sigfússon
(Gestur í Frambæ) og Helga Jónsdóttir frá Stokkseyri. Dóttir hennar 17 ára,
Kristín Sigurjónsdóttir lést í bílslysi á Eyrarbakka 1941.
Eyri byggði
Sigurður Gíslason, en síðan bjó þar Guðfinnur Þórarinsson formaður og Rannveig
kona hans. Guðfinnur fórst með vélbát sínum og allri áhöfn 1927
en húsið hefur haldist í ætt
þeirra.
Á Tjörn bjuggu um hríð Bjarni Eggertsson búfræðingur og kona hans Hólmfríður Jónsdóttir, en síðan dóttir þeirra, Aðalheiður Bjarnadóttir og Anton Halldór Valgeirsson. Um tíma bjó í þessu húsi Guðmundur Daníelsson rithöfundur og skólastjóri ásamt konu sinni Sigríði Arinbjarnadóttur.
Á Þorvaldseyri bjuggu Ólafur E Bjarnason vegaverkstjóri og Jenný Jensdóttir. Þau áttu 12 börn og þótti það jafnvel í meiralagi á þessum árum.