02.04.2015 20:58
Sú var tíðin, 1947
Þetta var árið sem
Ekki er
iðkar forna siðinn,
lýsir á nóttum loga-rauð,
lönd og fiskimiðin.
Hekla eykur eldana,
ýmsir tjónið kanna.
Færir glóðar-feldana,
fast að byggðum manna.
Þrír bátar 12-14 tn. voru gerðir út frá Bakkanum og gæftir yfirleitt óvenju góðar framan af vertíð en afli tregur. Aflahæstur Bakkabáta var mb. Ægir, en á Stokkseyri var það mb. Hásteinn [skipstjóri var Svavar Karlsson]. Urðu bátarnir að hætta róðrum snemma í apríl sökum vikurs frá Heklugosinu sem flaut í breiðum um allann sjó og stífluðu kælivatnsinntök, þannig að vélar bátanna urðu fyrir skemdum. Eina rðáðið var að blása vikurinn út með loftþrýstingi. Mikil síldarganga var skamt undan landi við Eyrarbakka í nóvember og fékk mb."Hersteinn" frá Stokkseyri um 200 tunnur í einni veiðiferð. Sveinn Árnason í Akri náði 20 tunnum af síld í nokkur net. Sveinn réri við annann mann um haustið og aflaði vel. Aflanum var öllum ekið í burtu, aðalega til Reykjavíkur.
Rafmagn komst á Eyrarbakka frá
Sogsvirkjun í vetrar byrjun og hlutverki ljósavélarinnar að mestu lokið, en hún
hafði þá séð þorpsbúum fyrir rafmagni í hátt á þriðja áratug. Sogsrafmagnið var
þó háð skilyrðum í fyrstu: Ekki mátti nota það til eldunar eða húshitunar.
Frystihús og vekstæði máttu ekki nota rafmagnið um hádegisbilið, (10:45-12:00)
þegar notkunin var mest í Reykjavík. Rafmagn komst fyrst á Selffoss 24. ágúst
til reynslu, en á Eyrarbakka og Stokkseyri 30. ágúst. Selfyssingar mótmæltu
skilyrðunum, því þær ollu truflunum á starfsemi Mjólkurbúsins. [Rafmagnsnotkun Reykjavíkur hafði aukist á
fáum árum langt umfram áætlanir og því varð að skamta til Árnesingaveitu.]
Hátíðarhöld
á Bakkanum:
17. JÚNÍ var haldinn hátíðlegur
að Eyrarbakka og hófust hátíðarhöldin með messu í kirkjunni þar sem sr. Árelíus
Níelsson messaði. Síðan hófst skrúðganga frá kirkjunni og var gengið að
Skólaflöt. Þar flutti Vigfús Jónsson oddviti ávarp, síðan fór fram fánahylling,
Fjallkonan flutti ávarp, Sigurður Kristjánsson flutti ræðu, stúlknaflokkur
sýndi leikfimi undir stjórn Sigríðar Guðjónsdóttur og að síðustu fór fram
naglaboðhlaup milli kvæntra manna og ókvæntra. Þeir ókvæntu unnu hlaupið. Þá
hófst kvöldskemmtun í samkomuhúsinu. Þar var fluttur leikþáttur, kirkjukórinn
söng, síðan var upplestur og talkór telpna flutti hátíðarljóð Huldu. Að lokum
var stiginn dans lengi nætur og fór skemmtunin öll mjög vel fram.
Verkalýðsmál: Á aðalfundi Bárunnar voru eftirtaldir kosnir til forustu: Kristján Guðmundsson, formaður, Eyþór Guðjónsson varaformaður og meðstjórnendur þeir Jón Guðjónsson, Marel Þórarinsson og Sigurjón Valdimarsson. Á fjölmennum fundi Bárunnar sem haldinn var 21. maí 1947 felldi félagið tilmæli Alþýðusambandsins um uppsögn samninga og verkfallsboðun. Dagsbrúnarmenn í Reykjavík fóru hinsvegar í verkfall og í kjölfarið breyddust út samúðarverkföll þar í bæ sem stóðu tæpan mánuð. Fengu Dagsbrúnarmenn 15 aura kauphækkun. Það gilti líka fyrir Vestmannaeyjar, þ.e. að samningar þeirra tóku mið af Dagsbrúnarsamningum.
Afmæli:
90. Einar Jónsson er bjó á Grund, [frá Álfsstöðum] en var þá fluttur til Rvíkur. Loftur Arason í Inghól.
80. Guðrún Gísladóttir frá Einarshöfn. bjó þá í Rvík. [ Maður hennar heitinn var Ólafur Árnason frá Þórðarkoti, Sonur þeirra Sigurjón Ólafsson var landsþekktur listamaður.] Sigurður Þorsteinsson, formaður og skipstjóri frá Flóagafli, bjó þá í Rvík. [Sigurður var fróðleiksmaður mikill um sjósókn og verbúðarlíf fyrri tíma. Sonur hans Árni var fríkirkjuprestur í Reykjavík.] Helga Magnúsdóttir símamær. [Maður hennar var hinn landskunni handleiks og fróðleiksmaður Oddur Oddson gullsmiður] Aldís Guðmundsdóttir frá Traðarhúsum. Ágústínus Daníelsson frá Steinskoti. Katrín Jónsdóttir. Katrín Þorfinnsdóttir á Grímsstöðum. María Gunnarsdóttir í Einarshöfn.
70. Bjarni Eggertsson bóndi, búfræðingur og brautryðjandi í ræktunarmálum. Jón Helgason prentari, og útgefandi, bjó þá í Rvík. Gísli Þ Gíslason á Grímsstöðum. Guðlaugur Guðmundsson í Mundakoti, Jón Gíslason sjómaður í Ísaksbæ, Magnús Árnason Skúmstöðum. Magnús Magnússon Nýjabæ, Þorgerður Guðmundsdóttir Sölkutóft.
60. Ámundínus Jónsson í Vatnagarði. Guðmundur Halldórsson Hraungerði, Jón Jakopsson Einarshöfn, Margrét Þóra Þórðardóttir Merkisteini.
50. Ásmundur Eiríksson Háeyri, Einar K Jónasson Garðhúsum, Guðjón Guðmundsson Kaldbak, Guðlaug Jóhanna Guðlaugsdóttir Kirkjubæ, Ingvar J Halldórsson Hliði, Jenný Jensdóttir Þorvaldseyri, Úlfhildur Hannesdóttir Smiðshúsum, Þórdís Gunnarsdóttir Einarshöfn. [Lýður Guðmundsson hreppstjóri í Sandvík varð einnig fimmtugur þetta ár]
Hjónaefni:
Guðmundur Pálsson bifreiðarstj. Eyrarb. og Margrét Jónsdóttir Vestm.eyjum.
Andres Hannesson vélstjóri Eyrarb. og Guðleif Vigfúsdóttir í Holti.
Bornir
til grafar:
Ólafur Ólafsson (83) í
Garðbæ.[ Eftirlifandi kona hans var
Þórunn Gestsdóttir (Tóta Gests) gulrófna
og fjárbóndi, móðir Ragnheiðar er bjó á Helgafelli. Ólafur var hæglætismaður og
starfaði lengst af sem sendill fyrir verslun Guðlaugs Pálssonar.]
Ágúst Þórarinsson (81) frá Stóra-Hrauni. [Hann stofnaði fjölskyldu í Stykkishólmi og var kaupmaður þar.]
Páll Halldórsson (78) skósmiður.
[faðir Guðlaugs kaupmanns. Páll var afar lágvaxinn maður og bjó lengst af á
Englandi, giftur þarlendri konu, en þeim
varð ekki barna auðið. Tvö börn átti Páll fyrir á Íslandi.]
Ragnhildur Sveinsdóttir frá Heiðarkoti í Hraunshverfi. [Ekkja Þorvalds Magnússonar. Bjuggu þau síðast í Reykjavík.]
Elín Eyvindsdóttir (61) Jónssonar frá Eyvakoti. [Dóttir Ingibjörgu Jónsdóttur í Eyvakoti.]
Stefán Víglundsson (28) verkamaður frá Björgvin. [Hann var einn af stofnendum félags
Sósialista á Eyrarbakka.]
Jóhann B Guðjónsson (23) frá Litlu-Háeyri Eyrarbakka var meðal 25
manna sem fórust með flugvél F.Í. 29. maí 1947 á leið til Akureyrar. [Flugvélin var tveggja hreyfla Douglas
Dakota vél. Var þetta nýjasta flugvél Flugfélagsins af þessari gerð, og þá
tiltölulega nýkomin til landsins, en félagið átti alls þrjár slíkar vélar.
Merki vélarinnar var "TF-ISI". Jóhann var bróðir Sigurðar skipstjóra frá
Litlu-Háeyri]
Ingvar Níels Bjarkar (4) frá Hvoli. [Hann var sonur sr. Árelíusar Níelssonar og Ingibjörgu Þórðardóttur á prestsetrinu Hvoli á Eyrarbakka.]
[Guðmundur Lambertsen (67) í
Sandkorn:
Magnús Magnússon í Laufási hafði með höndum allmikla framleiðslu á holsteini og vikurplötum. Vikurnámu hafði Magnús í vesturfjöru, en framleiðslan fór fram í svokölluðum "Mángaskúrum" norður af Einarshafnar og Skúmstaðahverfi. Til flutninga á vikrinum notaði "Mangi" amerískan hertrukk. Efnið var að stórum hluta Hekluvikur úr eldgosinu þetta ár.
Á veginum milli Eyrarbakka og Selfoss voru 15 smábrýr.[ræsi]
Furðuljós sást frá Eyrarbakka, er sveif á miklum hraða frá austri til vesturs. Það sást einig víða á suðurlandi.
Eyrbekkingafélagið í Reykjavík efndi til leikhúsferðar á Eyrarbakka. Félagið ákvað að gefa Eyrarbakkakirkju vandað pípuorgel og kom það til landsins vorið 1947. Stjórn félagsins skipuðu þeir: Maríus Ólafsson. formaður, Steingrímur Gunnarsson, varafonmaður, Leifur Haraldsson, ritari, Sigurður Þorkelsson, gjaldkeri og Gísli Halldórsson, formaður orgelsöfn- unar. - Meðstjórnendur voru Aron Guðbrandsson og Lárus Blöndal Guðmundsson.
Ungmennafélagið hélt dansleik í samkomuhúsinu Fjölni.
Vigfús Jónsson í Garðbæ var formaður Iðnaðarmannafélags Árnessýslu.
Sigurmundur Guðjónsson var umsjónarmaður sandgræðslunnar á Eyrarbakka.
Leikfélag Eyrarbakka setti upp á fjalirnar leikritið "Maður og kona". Helstu leikendur voru: Guðrún Bjarnfinnsdóttir, Sigurveig Þórarinnsdóttir, Helga Guðjónsdóttir, Guðmundur Þorláksson og Kjartan Ólafsson. Um haustið var svo "Tímaleysinginn" settur á fjalirnar.
77 ár frá því að Eyrarbakkafélagarnir fóru fyrstir íslendinga til landnáms í Vesturheimi [1870].
240 ár voru frá því að stórabóla kom með Eyrarbakkaskipi hinu síðara og felldi 40 Eyrbekkinga, unga sem aldna, veika sem hrausta. 2 konur og einn karl sem lifðu af bólusótt 36 árum áður féllu þá einig. Eyddust 3 hjáleigur á Eyrarbakka með öllu.
Sveinn Guðmundsson vélfræðingur frá Eyrarbakka stýrði Vélsmiðjunni
Héðni í Reykjavík. [Sonur Guðmundar
bóksala Guðmundssonar og Snjólaugar Sveinsdóttur.]
Póstur og Sími keypti húsið Mörk, en símstöðin í Ingólfi var flutt þangað.
Kvennakór Ungmennafélags Eyrarbakka söng í Útvarpið.
Selfoss: Eldsvoði varð í smiðjum Kaupfélags Árnesinga og horfði illa með slökkvistarf þar til slökkvilið frá Eyrarbakka og Stokkseyri komu á staðinn og réðu niðurlögum eldsinns. Fyrstu hreppsnefndarkosningarnar fóru fram í hinu nýja sveitarfélagi og buðu 5 listar fram. Fyrir óháða gekk Ingólfur þorsteinsson verkalýðsleiðtogi, en fyrir Selfosshreyfinguna var Egill Thorarensen kaupfélagsstjóri og Björn Sigurbjörnsson bankagjaldkeri fyrir Frjálslynda. Sigurður Óli Ólafsson kaupmaður fyrir Sjálfstæðisflokk og Guðmundur Jónsson skósmiður fyrir Alþýðuflokk. Sjálfstæðismenn fengu tvo menn, þá Sigurð Óla og Jón Pálsson dýralækni. Verkamannalistinn "Óháðir" fengu einig tvo menn, Ingólf og Diðrik Diðriksson. Selfosshreyfingin fékk og tvo menn, Egil og Jón Ingvarsson frá Skipum. Þá komst Björn bankagjaldkeri inn fyrir Frjálslynda. Kirkju byrjuðu Selfyssingar að byggja þetta ár. Lögregla var nú á Selfossi [Gísli Bjarnason] og hafði einn bíl til umráða. Þá var þar kominn bifreiðaskoðunarstöð.
Á Laugarvatni brann efri hæð skólans svo aðeins stafnarnir stóðu eftir.
Heimildir: Alþýðubl. Eimreiðin, Heimilisritið 1947,
Heimskringla, Morgunbl, Útvarpstíðindi, Veðráttan, Vikan, Vísir, Þjóðviljinn,
Sú var tíðin: 1946 1945 1944 1943 1942 1941 1940 1939 1938 1937 1936 1935 1934 1933 1932
1931 1930 1929 1928 1927 1926 1925 1924 1923 1922 1921 1920 1919 1918 1917 1916 1915