15.07.2012 22:37
Brynjólfur Guðjónsson
Brynjólfur [Sonur Guðjóns Jónssonar bónda og formanns á Litlu-Háeyri (1865-1945), og Jóhönnu Jónsdóttur frá Minna-Núpi (1879-1957)] var fæddur að Litlu-Háeyri á Eyrarbakka 19. nóvember 1915 og bróðir Sigurðar Guðjónssonar á Litlu-Háeyri er lengi var þjóðkunnur skipstjóri á Kveldúlfstogaranum Skallagrími. Brynjólfur var kornungur, er hann réðist á togara. Fyrst fór hann á Þórólf, til Kolbeins föðurbróður síns, en er Sigurður bróðir hans varð skipstjóri á Skallagrimi árið 1936, réðist hann þangað og var þar æ síðan. Brynjólfur átti hlut í litlum bát á Eyrarbakka, Hafsteinn ÁR-201 sem róið var á í frístundum og var hann formaður fyrir honum. Brynjólfur, kvæntist 1945 Fanneyju Hannesdóttur og áttu þau eitt barn. Togarinn Skallagrímur, fór í eina af sínum hefðbundnu veiðiferðum sumarið 1946. Í þessari ferð var komið við á Patreksfirði og var settur þar í land maður er fengið hafði blóðeitrun, en skipið hélt svo áfram og byrjaði að toga út af Önundarfirði. Laugardagsmorguninn 6. júlí var Skallagrimur að veiðum undan Barða. Um hálf ellefu leytið festist varpan skyndilega í botni og rifu vírarnir upp síðupollann stjórnborðsmegin. Fjórir háseta, er við vinnu voru á þilfari, urðu fyrir vírunum og stórslösuðust, en Brynjólfur var einn þeirra. Reynt var að hjúkra þeim, svo sem kostur var á um borð. Jafnskjótt og pollinn hafði losnað var höggvið á vírana og stefnt með fullri ferð til Flateyrar og var komið þangað rétt fyrir hádegi. Um það bil, er skipið var að koma i höfn, andaðist Brynjólfur, en hann hafði aldrei komist til meðvitundar frá því hann slasaðist, en annar hinna slösuðu háseta lést einnig skömmu síðar.