26.05.2012 00:32
Vélbáturinn " Íslendingur" frá Stokkseyri
Um hádegisbil 2. maí 1931 var Línuveiðarinn "Pétursey " stödd um eina sjómílu frá Krísuvíkurbjargi. Heyra bátsmenn hvar blásið er í þokulúður uppi á bjarginu og bregður Guðjón Jónsson skipstjóri sjónauka sínum á loft. Verður hann þá var við vélbát í klettaskoru framan í bjarginu og sex menn á bjargsillu þar fyrir ofan veifandi þjóðfánanum. Var um að ræða vélbátinn Íslending frá Stokkseyri, en vökumaðurinn hafði sofnað á verðinum og bátinn rekið upp í klettana og brotnað. Guðjón sendi léttbát til þeirra undir bjargið og sigu mennirnir af Íslendingi niður í hann í tveimur hollum, þeir voru síðan selfluttir um borð í vélbátinn "Muninn" er þá kom að björgunaraðgerðum. Mennirnir, sem í skipreikanum lentu, voru Ingimundur Jónsson formaður, eigandi bátsins, Bjarni Sigurðsson, Kristján og Sigurður bræður, Hreinssynir, og Einar Vilhjálmsson, en þeir höfðu þá allir hangið á sillunni í 12 stundir.
Íslendingur II var 12 tn. 15 ha. Alpha motor. Smíðaður í Vestmannaeyjum 1915, (hét "Lára")