31.01.2012 21:35
"Musik In The Air"
Björgúlfur Gunnarsson (1924-2007) fæddist á Eyrarbakka og ólst upp hjá afa sínum og ömmu í Akbraut, Andreu Pálsdóttur og Þorbirni Hjartarsyni. Faðir hans fórst með togaranum Sviða hinn 2. des. 1941. Eftir að Björgúlfur lauk námi í Loftskeytaskólanum árið 1948 vann hann í fjarskiptastöðinni í Gufunesi um 7 ára skeið. Öðlaðist hann þar m. a. mikla reynslu í fjarskiptum við flugvélar í Atlantshafsflugi. Um tveggja og hálfs árs skeið starfaði hann hjá Upplýsingaþjónustu Bandaríkjanna við móttöku morse-fréttasendinga. Björgúlfur þótti afar fær loftskeytamaður. Þegar hann sendi mors þá var "music in the air" eins og loftskeytamenn sögðu stundum. Árið 1958 hóf hann störf fyrir S.Þ hjá fjarskiptaþjónustunni í Ísrael, en á þessum tímum höfðu Sameinuðu þjóðirnar öflugar gæslusveitir á þessum slóðum. Þá var honum einnig falið það verkefni að setja upp fjarskiptastöð í Kongó í Afríku. Árið 1964 hóf hann starf sem loftskeytamaður hjá ísraelska flugfélaginu El Al og lauk hann starfsæfi sinni hjá því félagi. Björgúlfur giftist þarlendri konu.
Heimild: http://mbl.is/greinasafn/grein/1182082/ Tímarit.is/Morgunbl.23.sep.1958. http://www.trkoed.dk/Familien/stor_familie/html/fam/fam13945.html
---------
Gunnar Hjörleifsson (1892-1941) fæddist við hafsins nið hér á Eyrarbakka. Hann kvæntist árið 1920 Björgu Björgúlfsdóttur, einnig frá Eyrarbakka. Árið 1922 réðist Gunnar á togarann "Baldur" og var á honum til 1928, en það ár fór hann á Sviða GK 7 frá Hafnafirði og var óslitið á honum til síðustu ferðarinnar. "Sviði" fórst í aftaka veðri úti fyrir snæfellsnesi 2.desember 1941 og með honum 25 sjómenn. Togarinn var þá á heimleið eftir veiðar úti fyrir Vestfjörðum. Sviði" var 328 tonn brúttó. Bygður í Skotlandi 1918.
Heimild: timarit.is/morgunbl.7.des.1941/Alþýðubl.9.jul.1942. http://solir.blog.is/blog/solir/entry/1208890/ Wikipedia.