05.05.2011 18:29
Aftökustaðir til forna
Gimli, fyrrum samkomuhús og síðan bókasafn á Stokkseyri var á sínum tíma (1921) byggt á sögufrægum stað. Þar var lægð nokkur er nefndist "Þingdalur". Þar voru haldin þing Stokkseyrarhrepps hins forna undir berum himni fram á 18. Öld. Síðar var byggt þar þinghús og þar var dæmt í málum manna og skorið úr deiluefnum, en þá tilheyrðu bæði þorpin, Eyrarbakki og Stokkseyri sama hreppnum. Aftökustaðir voru fyrir framan svonefnda "Gálgakletta" og er annar fram að Eystri-Rauðárhól í Stokkseyrarfjöru. Einhverju sinni hafði stráklingur verið að leika hengingu af óvitaskap sínum og snaran herpst að hálsi hans og var hann dauður er að var komið.
Annar samnefndur klettur er í Hraunsfjöru, skamt vestan Gamla-Hrauns. Sagt er að þar hafi tveir afbrotamenn verið hengdir fyrr á öldum og síðan grafnir uppi á sjávarbakkanum. Ekki fara aðrar sögur af aftökum í hreppnum. Eini þekkti dauðadómurinn sem kveðinn hefur verið upp í þinghúsi hreppsins var yfir "Barna-Arndísi" 1771 en Lögþingsrétturinn breytti honum í fjögra ára hegningavinnu í Kaupmannahöfn. Við "Gálgaklett" er einnig lítil vatnsuppspretta sem til forna var nýtt til vatnsöflunar.
Þingstaðurinn var lagður niður árið 1812 og flutt að sameinuðu þingi Flóamanna í Hróarsholti. Stokkseyrarþing var svo sett á Eyrarbakka árið 1850, og hélst til 1898 er hreppnum var skipt, en ekki er mér kunnugt um stað.
Heimild: Saga Stokkseyrar.