01.11.2007 21:59

Eyrarbakki-úrkomumet slegið!

Í Oktober var mikil rigningatíð hér sunnanlands og um vestanvert landið og nú er ljóst að októbermet féllu á að minnsta kosti 33 stöðvum. Flestar metstöðvarnar hafa aðeins verið starfræktar innan við 20 ár, en 12 stöðvar af þeim sem slógu met hafa athugað í meir en 30 ár, þar á meðal Eyrarbakki (frá 1880). Úrkoma var ekki mæld á Eyrarbakka frá 1911 til 1925, (Á trúlega að vera til 1923 ?) þannig að ekki var mælt í október 1915, þegar metúrkoma mældist í Vestmannaeyjakaupstað segir á vef veðurstofunnar. Eldra úrkomumet oktobermánaðar á Bakkanum er líklega frá 1959 samtals 321 mm.

Mesta mánaðarúrkoman mældist í Kvískerjum, 824,9 mm og er það nýtt met í október, en nokkuð vantar upp á að mánaðarúrkoman hefði náð mestu mánaðarúrkomu á staðnum, en hún féll í janúar 2002.

Flettingar í dag: 573
Gestir í dag: 171
Flettingar í gær: 2390
Gestir í gær: 1368
Samtals flettingar: 260863
Samtals gestir: 33798
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 19:57:00