07.09.2007 15:14
Nýtt brim 2.ára og fær nú nýtt nafn.
Heitir nú Brim á Bakkanum.
Þessi síða með nafninu Nýtt brim fór á vefinn fyrir um 2 árum hjá 123.is, þá líklega eina veður og brimbloggsíðan hér á landi og kom hún í stað eldri brimbloggsíðu sem var uppsett í blog,central kerfinu og hét hún Brim. Veðurbloggsíðum hefur fjölgað töluvert hérlendis sem og erlendis síðan þá.
Þó þessi síða sé ekki lengur ný af nálinni hvað veðurblogg varðar þá er hún líklega enn sú eina sem bloggar um brimið, og svo er að sjá hvernig þessi síða þróast. Brimbloggsíður hafa skotið upp kollinum víða erlendis, einkum í tengslum við brimbretta sport.