23.04.2007 10:45

Fyrrverandi tundurdufl á safn

þetta fyrrverandi tundurdufl hafði þjónað sem olíutankur símstöðvarinnar á Eyrarbakka í hálfa öld, en fær nú það hlutverk að vera stríðsmynjar við sjóminjasafnið á Eyrarbakka.

Tundurdufl er nafn á sprengjum sem lagðar eru í sjóinn til þess að granda skipum og kafbátum.
Í síðari heimstyrjöldinni lögðu bretar allmörg tundurdufl við strendur Íslands, talið er að þau hafi verið yfir 200.000 og voru  einkum lögð  út af Vestfjörðum, í Faxaflóa, Hvalfirði, Eyjafirði og Seyðisfirði  og víðar þar sem hugsanlegt þótti að herskip þjóðverja ættu leið um. Allar götur síðan hafa þessi dufl slitnað upp og rekið á fjörur víða um land eða komið upp í veiðarfærum skipa.Íslenskir sjómenn hafa því frá lokum seinna stríðs oft fengið dufl í veiðarfærin eða séð þau á reki. Fundist hafa hátt í 3000 dufl við Ísland en á seinni árum hafa fimm til sex dufl fundist á ári.

Þegar olíuhitun tók við af kolaofnunum fengu mörg slík dufl nýtt hlutverk sem olíutankar og voru minnst tveir slíkir tankar til á Eyrarbakka.

(Við nánari athugun Landhelgisgæslunnar reyndist umrætt dufl ekki vera tundurdufl. Um er að ræða annarskonar flotdufl frá stríðsárunum. )

Flettingar í dag: 74
Gestir í dag: 16
Flettingar í gær: 2159
Gestir í gær: 262
Samtals flettingar: 262523
Samtals gestir: 33905
Tölur uppfærðar: 22.11.2024 01:30:46