18.11.2006 09:54
Undir hjálmi Frosta.
Nóttin var svöl um allt land og mælar sýna mestann kulda þessa vetrar. -13°C á Bakkanum en Blönduósbúar hafa vinningin með -15°C Landsmetið var hinns vegar sett á Þingvöllum, en þar náði frostið upp í -18°C.
Nú er sólin orðin lágt á lofti og dagsbirtan dvínar með hverjum deginum og mun senn hverfa þeim sjónum sem nyrstu annesin byggja.
Á morgun byrjar svo ballið á nýjan leik með stormi og snjókomu frá leiðindar lægð sem er að gera sig klára vestur í hafi.
.