13.02.2006 09:58

Jörðin hitnar!

Meðalhitastig jarðarinnar hækkaði í fyrra og mældist það vera næsthæsta meðalhitastig jarðar í yfir 100 ár. Þykir þetta benda til þess að jörðin sé að hitna af völdum gróðurhúsalofttegunda, en veðurstofa Japans greindi frá þessu fyrir skemmstu. Hitastig jarðarinnar var 0,32 gráðum á Celsíus hærra heldur en meðalhitastig áranna 1971 - 2000, segir í yfirlýsingu frá Japönsku veðurstofunni.

Á síðari hluta 20. aldar var hlýnun á norðurhveli jarðar meiri en verið hefur í 1.200 ár, samkvæmt niðurstöðum rannsóknar sem birtar eru í vísindaritinu Science. Styðja þær vísbendingar um hlýnun andrúmsloftsins af völdum gróðurhúsaáhrifa. Höfundar rannsóknarinnar könnuðu breytingar á steingervingum, trjáhringjum, borkjörnum og fleiri hlutum sem veitt geta vísbendingar um loftslag fyrr á tímum. Vísindamennirnir glugguðu ennfremur í dagbækur fólks frá undanförnum 750 árum. Frá þessu greinir fréttavefur breska ríkisútvarpsins, BBC. Það voru tveir vísindamenn við University of East Anglia í Bretlandi sem gerðu rannsóknina. Þeir könnuðu hitamælingar frá 1856 til dagsins í dag til að ákvarða lengd hlýskeiðsins undanfarið. Síðan báru þeir þær upplýsingar saman við gögn allt aftur til ársins 800. Niðurstöðurnar staðfestu umtalsvert hlýskeið á norðurhveli á árunum 890-1170 (svonefnt Miðaldahlýskeið) og kuldaskeið frá 1580-1850 (svonefnd Litla ísöld). Niðurstöðurnar staðfesta ennfremur að núverandi hlýskeið er víðtækasta hitastigsfrávik sem vart hefur orðið síðan á níundu öld.  

Flettingar í dag: 535
Gestir í dag: 162
Flettingar í gær: 2390
Gestir í gær: 1368
Samtals flettingar: 260825
Samtals gestir: 33789
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 19:14:30