Kategori: Viðburðir
27.06.2021 22:43
Leiklistin á Bakkanum
Leikfélag Eyrarbakka hið yngra var stofnað 1943 en undanfari þess var þegar leikhópur félaga í ungmennafélaginu og verkamannafélaginu Bárunni hófu að æfa leikritið 'Ævintýri á Gönguför' eftir leikritaskáldið Jens Christian Hostrup. - Það var vorið 1844 þegar Hostrup var orðinn húskennari hjá Justitsraad M. B. Nyegaard í Kokkedal nálægt Rungsted og í glæsilegu umhverfi þessa Norður-Sjálands landslags þegar hann fékk hugmyndina að dönsku sumarleikriti sínu "Ævintýri á gönguför". - Leikfélag Eyrarbakka sýndi allmörg leiritið næstu árin og var 'Fjalla Eyvindur ' og 'Maður og kona sívinsælt viðfangsefni á fjölunum í Fjölni.
Eftir 1970 mun ekkert leikfélag hafa starfað á Bakkanum.
Heimildir: Skírnir 1998 - Ólöf H þórðardóttir háskólaverkefni Wikipedia ofl.
10.08.2015 23:05
Aldamótahátíðin í máli og myndum
Aldamótahátíðin var haldin um liðna helgi eins og lög gera ráð fyrir. Á
sama tíma stóð sem hæst hátíðin "Sumar á Selfossi"í efri byggðum sveitarfélagsins.
Veður var stilt og dálitill súldarvottur, en ágætlega hlítt. Hátíðin á Bakkanum
hófst með flöggun og skrúðgöngu, sem Bakkabúar mættu í öllu sínu aldamótapússi samkvæmt hefð
innbyggja. Í framfylkingu fór "Sölvi ÁR"
bátur Siggeirs Ingólfssonar, formanns hátíðarnefndar
og var fleyið dregið af öflugum fjór-hjólhesti. Þá dró hin aldna Ferguson dráttarvél
Gísla Nilsens, vagn hlaðinn manngripum undir hljómahafi Valgeirs Guðjónssonar tónlistarmanns.
Þessi strolla endaði í kjötsúpusvalli miklu við Húsið.
Söfnin opnuðu upp á gátt, svo nútímamaðurinn fengi gáttaþef og nasasjón af
fornum hefðum Bakkamanna. Á planinu við stað var lífið saltfiskur. Þar tóku
þeir sig til Siggeir Ingólfsson og Björn Ingi Bjarnason við upplýsingu
upprennandi kynslóðar, hvernig menn báru sig að við saltfiskverkun á
fiskveiðiöld Eyrbekkinga. Heyannir fóru fram á Vesturbúðarhól þar sem
Bakkabændur tóku slægju með orf og ljá og bundu í sátu upp á gamla móðinn. Að
kvöldi dags var haldin átveisla mikil með grilluðum grísum, kanínum og kjömmum.
Innandyrar voru uppi sölubásar og fyrsta myndavélasýning sinnar tegundar "Frá
Instamatic til Instagram" sem mörgum þótti forvitnileg. Þá var hænsnfuglasýning
í boði ERL sem endaði með hænsnbrúðkaupi útvaldra hænsnpara, en Valgeir stuðmaður,
stuðaði parið saman.
Höfðu allir sem mættu hið mesta gaman af, enda allt til gamans gert. Í
Versluninni "Bakkinn" var afgreiðslan með ofurhraða, enda mætt þar á bak við búðarborðið
einginn annar en "Superwoman" í öllu sínu veldi. Og eins og venja er til á
þessum degi mátti sjá stöku fornbíl bregða fyrir á rúntinum, þó ökumennirnir séu
ekki lengur eins ungir og þeir sem óku rúntinn á gullöld amerísku drossíunnar.
Myndaseria:
21.06.2015 17:07
Jónsmessuhátíðin, miðsumarhátíð Eyrbekkinga
09.08.2014 20:10
Verðlaunagarður
22.06.2014 11:49
Jónsmessuhátíðin 2014
16.09.2013 23:43
Umsáturs ástand
16.08.2013 01:13
Þar sem vegurinn endar
Bakkinn í svipmyndum. Snoturt myndband af húsum fólki og fénaði. Ath. að það getur tekið a.m.k. 2 mínútur að hlaða bandinu niður, en það er alveg þess virði.
.
Horfa á myndband: smellið á auða boxið til vinstri.
22.06.2013 23:55
15.Jónsmessuhátiðin
14.08.2011 10:50
Hrói og Dröfn gefin saman
Fjöldi fólks var viðstatt brúðkaup aldarinnar á Eyrarbakka, þegar gefin voru saman fegursti haninn og fegursta hænan.
Ragnar dúfna og hænsnabóndi að Brandshúsum tilkynnir lýðnum hvaða hani og hæna urðu hlutskörpust í fegurðarsamkeppninni. Greidd voru 1.164 gild atkvæði.
Hlutskörpust urðu haninn "Hrói" og hænan "Dröfn". Eigandi fuglanna er Erna Gísladóttir, en hún heldur hér á "Dröfn" t.v. en Ólöf Helga Haraldsdóttir heldur á brúðgumanum.
Það var svo Hreppstjórinn sjálfur sem gaf púturnar saman í borgaralegt hænsnaband við hátíðlega athöfn en Byggðarhornssystrabandið sá um undirspil og söng.
Sláttukeppni fór fram við Íshúsið þar sem Eyrbekkskir sláttumenn öttu kappi með orf og ljá. Keppnina sigraði Emil Ingi Haraldsson.
13.08.2011 12:33
Fjölmenni í skrúðgöngu
Gríðarlegur fjöldi fólks tók þátt í skrúðgöngunni í morgun, en nú stendur sem hæst hin árlega Aldamótahátíð og mikið um að vera á Bakkanum, enda dagskráin full af fornlegum uppákomum.
Hreppstjórinn á Eyrarbakka Siggeir Ingólfsson og frú Anna Árnadóttir í Gónhól prúðbúinn á ferð.
Kaupmaðurinn búinn að opna Laugabúð, þar mun vera höndlað með ýmsan eftirsóttan varning alla helgina.
Eyrbesk börn, sem og fullorðnir eru klædd samkvæmt nýjustu tísku hér á ströndinni.
Sr. Sveinn blessaði lýðinn á Kaupmannstúninu, en síðan var boðið upp á ljúfenga kjötsúpu.
Í gamladaga voru margar turndúfur á Bakkanum, en þessi stúlka mun sjá um að sleppa þessum turtildúfum frá gallery Gónhól síðdegis í dag, en þar mun einnig verða brúðkaup aldarinnar þegar gefin verða saman fegursta hænan og fegursti haninn. Í Gónhól stendur nú yfir fegurðarsamkeppni hænsnfugla og er fólk hvatt til að leggja til sitt fegurðarmat á þessari dýrasamkomu.
25.06.2011 13:14
Margt um manninn á Jónsmessu
Fjöldi fólks sækir Bakkann heim á Jónsmessuhátíðinni sem nú er hafin og allavega furðuleg skraut prýða bæinn um þessa helgi. Dagskráin er þétt setin og hvern viðburðinn rekur annan fram á kvöld þar sem henni lýkur með glæstri brennu í fjöruborðinu.
Hér er á myndinni að ofan er fjölskyldustemming með skoppu og skrýtlu.
01.01.2011 20:41
Nýtt ár gengið í garð
Gamlársbrenna var haldin á Eyrarbakka eins og venja er til, þó sú skemtan sé ekki lengur í boði barna og unglinga, eins og tíðkaðist á seinustu öld. Nú eru það bæjarstarfsmenn sem sjá um það fyrirtæki. Nokkur fjöldi fólks horfði á bálið brenna burt anda ársins 2010.
Úr lúðri kom lagið "Nú er árið liðið í aldanna skaut" en söngurinn var mun daufari en síðast. Kanski var það bara vindurinn sem bar í burtu fagrar söngraddir út í svörtuloftin, eða kanski að árið hafi varla verið þess vert að hljóta glaðlegar kveðjur okkar mannanna.
Flugeldaskothríð var líkt því eins og um síðustu áramót, en oft hefur þó meira púður verið sprengt á Bakkanum en þessi árin.
Það verður örugglega margt skrifað í sandinn á nýja árinu, þó ekki ekki sé brimið alla daga, þá er ýmislegt ósagt enn á þessum síðum og mun gamalli tíð verða minst sem fyrr og sjálfsagt mun verða haft auga með veðri og vindum og öðru því sem reka kann á fjörurnar.
25.10.2010 14:04
Til hamingju með daginn konur
Brimið á Bakkanum óskar öllum Árborgarkonum til hamingju með kvennafrídaginn. Líka þeim sem ekki fá frí.
15.08.2010 23:00
Fjölmargir sóttu Bakkan heim
Fjöldi fólks var á Aldamótahátíðinni á Eyrarbakka, einkum á laugardeginum, en þá var veður skaplegt. Margir viðburðir voru á dagskrá sem hófst með skrúðgöngu frá barnaskólanum. Á Gónhól var slegið upp hlöðuballi fyrir fullu húsi þar sem Klaufarnir héldu uppi fjörinu. Dagskránni var fram haldið í dag, en mikil rigning setti mark sitt á hátíðarhöldin. Um hádegi var úrkomumagnið 4,5 mm á klukkustund í austan strekkingi. Hátíðinni lauk svo í kvöld með flugeldasýningu sem björgunarsveitin stóð fyrir við Gónhól.