Blogghistorik: 2010 Mer >>
24.06.2010 16:04
Þorlákur Helgi ÁR 11
Árið 1980 var keyptur nýr bátur undir sama nafni, smíðaður í Noregi 1960. Bátinn átti Einarshöfn h/f. Hann var seldur til Siglufjarðar 1986.
24.06.2010 14:56
Sæbjörn ÁR 15
Báturinn var smíðaður í danmörku 1956. Árið 1980 átti Hörður Jóhannsson á Eyrarbakka bátinn. Sæbjörn var tekinn af skrá og brendur í Helguvík 26.3.1982. Báturinn hét upphaflega Helga Björg HU 7.
23.06.2010 22:19
Blíðu veður á Bakkanum
Það var sólríkur dagur í dag og dagsmet slegið. Hitinn náði eldra dagsmeti um hádegi í dag og sló fljótlega út dagsmetið frá 2007 sem var 18°C. Hitinn hélt þó áfram að hækka undir kvöld og náði hámarki kl.20:00 þegar hafgolunni lyngdi. Þá var hitinn orðinn 21.9 °C á veðurstöð VÍ. Það er næst hæsti hiti sem mælst hefur á Eyrarbakka í júní, frá árinu 1957, en mesti júní hiti var 22.6°C þann 30. árið 1999. Aðeins var heitara á Þingvöllum í dag 22,3°C.
23.06.2010 22:07
Guðbjörg ÁR 25
21.06.2010 22:59
Kristján Guðmundsson ÁR 15
Heimild: Íslensk skip.
21.06.2010 22:43
Fjalar ÁR 22
19.06.2010 22:35
Bakkavík ÁR 100
Þessi bátur var smíðaður á Fáskrúðsfirði 1947. Árið 1977 átti Þórður Markússon á Eyrarbakka bátinn og hét hann Bakkavík ÁR 100. Báturinn slitnaði upp við bryggju á Stokkseyri í stórsjó 12.12.1977 og ónýttist.
Annar báturinn sem bar þetta nafn var smíðaður í Hafnafirði 1943 og var 52 tn. Þórður markússon átti hann 1978. Árið 1987 eignaðist Bakkafiskur H/F bátinn.
Þriðji báturinn með þessu nafni var smíðaður á Neskaupstað 1971. Þórður Markússon átti hann 1980. Báturinn fórst á Einarshafnarsundi 7.9.1983. Tveir menn fórust en þriðji maðurinn bjargaðist á gúmmibjörgunarbát.
Sjá:Brimbarinn
Bátar
19.06.2010 22:26
Sæsvalan ÁR 65
Báturinn var smíðaður á Akureyri 1948. Árið 1976 var báturinn skráður á Eyrarbakka og átti hann Sæsvalan H/F og hét þá Sæsvalan ÁR 65. Báturinn var seldur 1977.
18.06.2010 22:09
Jóhann Þorkelsson ÁR 24
Annar bátur þeirra bræðra Bjarna og Jóhanns sem bar sama nafn, eignuðust þeir 1963. Báturinn var smíðaður í Svíþjóð 1954. Hann var seldur til Ólafsvíkur 1967.
Þriðji báturinn með þessu nafni var smíðaður í Danmörku 1957 og var einnig í eigu Bjarna og Jóhanns frá 1967. Báturinn strandaði vestan við Einarshöfn 21.6.1981 og eiðilagðist.
Bátar
18.06.2010 21:55
Helgi ÁR 10
Bátar
14.06.2010 22:19
Skálafell ÁR 16
Þessi bátur var smíðaður á Ísafirði 1942. Árið 1982 áttu hann Baldur Birgisson, Þórður Guðmundsson og Henning Fredriksen. Báturinn hét Skálafell ÁR 16. Árið 1988 átti hann Þórður Eiríksson.
Bátar
14.06.2010 22:15
Sædís ÁR 22
12.06.2010 23:40
Skúli fógeti ÁR 185
Bátar
12.06.2010 20:32
Gunnar ÁR 199
Sjá bátar á Brimbarinn
12.06.2010 19:25
Pipp ÁR 1
Pipp var smíðaður í Danmörku 1925. Árið 1948 voru eigendur hans Helgi Vigfússon, Steinn Einarsson og Gísli Guðlaugsson og keyptu þeir bátinn frá Vestmannaeyjum, hét þá Pipp VE. Félagarnir seldu svo bátin aftur 1955.
Bátar
- 1
- 2