Blogghistorik: 2019 N/A Blog|Month_11
22.11.2019 21:31
Höndin dauðans hömlum í
Ungbarnadauði á Eyrarbakka 1900-1950
0-1 árs
Ár | Stúlkur | Drengir | Samtals |
1900 | 0 | 2 | 2 |
1901 | 0 | 1 | 1 |
1902 | 2 | 1 | 3 |
1903 | 1 | 1 | 2 |
1904 | 1 | 1 | 2 |
1905 | 0 | 2 | 2 |
1906 | 0 | 0 | 0 |
1907 | 0 | 0 | 0 |
1908 | 1 | 3 | 4 |
1909 | 0 | 4 | 4 |
1910 | 1 | 0 | 1 |
1911 | 1 | 0 | 1 |
1912 | 1 | 2 | 3 |
1913 | 1 | 1 | 2 |
1914 | 0 | 0 | 0 |
1915 | 0 | 1 | 1 |
1916 | 0 | 0 | 0 |
1917 | 0 | 1 | 1 |
1918 | 0 | 0 | 0 |
1919 | 0 | 1 | 1 |
1920 | 2 | 1 | 3 |
1921 | 1 | 1 | 2 |
1922 | 1 | 2 | |
1923 | 0 | 0 | 0 |
1924 | 0 | 2 | 2 |
1925 | 0 | 0 | 0 |
1926 | 0 | 0 | 0 |
1927 | 0 | 0 | 0 |
1928 | 0 | 2 | 2 |
1929 | 1 | 1 | 2 |
1930 | 0 | 0 | 0 |
1931 | 0 | 0 | 0 |
1932 | 3 | 0 | 3 |
1933 | 1 | 1 | 2 |
1934 | 0 | 0 | 0 |
1935 | 0 | 2 | 2 |
1936 | 0 | 1 | 1 |
1937 | 0 | 0 | 0 |
1938 | 0 | 1 | 1 |
1939 | 0 | 0 | 0 |
1940 | 0 | 0 | 0 |
1941 | 0 | 0 | 0 |
1942 | 0 | 1 | 1 |
1943 | 0 | 0 | 0 |
1944 | 0 | 0 | 0 |
1945 | 0 | 1 | 1 |
1946 | 0 | 0 | 0 |
1947 | 0 | 0 | 0 |
1948 | 0 | 0 | 0 |
1949 | 0 | 0 | 0 |
1950 | 0 | 0 | 0 |
Samtals | 18 | 37 | 55 |
1-7 ára
Ár | Stúlkur | Drengir | Samtals |
1900 | 1 | 1 | 2 |
1901 | 0 | 1 | 1 |
1902 | 0 | 1 | 1 |
1903 | 0 | 0 | 0 |
1904 | 0 | 0 | 0 |
1905 | 0 | 1 | 1 |
1906 | 0 | 0 | 0 |
1907 | 0 | 0 | 0 |
1908 | 1 | 2 | 3 |
1909 | 0 | 0 | 0 |
1910 | 0 | 0 | 0 |
1911 | 0 | 0 | 0 |
1912 | 0 | 1 | 1 |
1913 | 0 | 0 | 0 |
1914 | 0 | 1 | 1 |
1915 | 1 | 0 | 1 |
1916 | 0 | 0 | 0 |
1917 | 0 | 0 | 0 |
1918 | 0 | 0 | 0 |
1919 | 0 | 0 | 0 |
1920 | 0 | 0 | 0 |
1921 | 0 | 0 | 0 |
1922 | 0 | 1 | 1 |
1923 | 0 | 1 | 1 |
1924 | 1 | 1 | 2 |
1925 | 1 | 0 | 1 |
1926 | 1 | 0 | 1 |
1927 | 0 | 1 | 1 |
1928 | 0 | 0 | 0 |
1929 | 0 | 0 | 0 |
1930 | 0 | 0 | 0 |
1931 | 0 | 0 | 0 |
1932 | 0 | 1 | 1 |
1933 | 0 | 0 | 0 |
1934 | 0 | 0 | 0 |
1935 | 0 | 0 | 0 |
1936 | 0 | 0 | 0 |
1937 | 1 | 1 | 2 |
1938 | 0 | 0 | 0 |
1939 | 0 | 0 | 0 |
1940 | 0 | 0 | 0 |
1941 | 0 | 0 | 0 |
1942 | 0 | 0 | 0 |
1943 | 0 | 0 | 0 |
1944 | 0 | 0 | 0 |
1945 | 0 | 0 | 0 |
1946 | 1 | 0 | 1 |
1947 | 0 | 0 | 0 |
1948 | 0 | 0 | 0 |
1949 | 1 | 0 | 1 |
1950 | 0 | 0 | 0 |
Samtals | 9 | 14 | 23 |
Samtals 78 börn. drengir 51 Stúlkur 27
[b1]Þríburar Bakarí
19.11.2019 22:30
Einar Jónsson brunavörður
Einar hét maður Jónsson
Einarssonar bónda og Marínar Jónsdóttur í Egilsstaðakoti í Villingaholtshreppi,
járnsmiður á Eyrarbakka, síðar bifreiðarstjóri í Reykjavík (f. 1887)
Einar bjó í Túni og var
slökkviliðsstjóri á Bakkanum (1913-20 og 1925-31) og bar svo til í hans tíð
stórbruni einn, (15.12.1914) er nefndur hefur verið "Igólfsbruninn" en svo hétu
verslunarhúsin á Háeyri. Í kjölfar brunans sköpuðust miklar deilur milli Einars
og Guðmundar Ísleifssonar á Háeyri þegar hinn síðarnefndi lét miður heppileg
orð falla um tildrög brunans og vildi kenna Einari um. Varð af þessu
málarekstur sem Einar vann bæði í héraði og Landsyfirrétti. En þannig voru mál
með vexti að eftir að handslökkvidæla (Nú á sjóminjasafninu) barst til
landsins var byggt sérstakt hús yfir hana og þann fylgibúnað sem henni fylgdi
eins og fötur og slöngur. Skúrinn, sem kallaður var slökkviáhaldaskúr, var
áfastur Háeyrarpakkhúsi, sem var fyrir miðju þorpsins. (Háeyrarpakkhúsið var
flutt vestur í Skerjafjörð en nýr "Brunaskúr" byggður þar í staðinn.
[Frystihúslóðin]) Dælan var m.a. notuð í þessum bruna og þótti reynast vel. Guðmundur
hafði selt Stokkseyrarfélaginu reksturinn árið 1912 en var í húsi í eigu
Jóhanns V Daníelsonar sem jafnframt var sölustjóri og leigði hann Kaupfélaginu
Ingólfi húsnæðið en hugði á að setja þar
upp egin verslun í byrjun árs 1915.
Ólafi Helgasyni þá búðarmanni í
versluninni var einig um kennt og sat hann í gæsluvarðhaldi um tíma vegna þess,
en hann setti síðar (1920) upp verslun í Túnbergi. Þessar umkenningar urðu eins
og olía á ófriðarbálið sem geysað hafði í þorpinu um skeið. [1926 brunnu öll
verslunarhús kaupfélagsins Ingólfs á Stokkseyri]
Árið 1916 þann 26.janúar brann
"Samúelshús" til kaldra kola, en það var læknisbústaðurinn og stendur þar nú
steinsteypt hús, svonefnt "Læknishús" byggt sama ár. (Læknir var Pétur
Gíslason).
Árið 1930 kviknaði í
austurbænum á Litlu-Háeyri við Eyrarbakka, en þar bjó Guðjón Jónsson formaður.
Brann bærinn, en innanstokksmunm var bjargað.
Að lokum kom upp eldur í húsi Einars "Túni" og
glötuðust þar fundarbækur verkalýðsfélagsins Bárunnar frá stofnun þess 1903 en Einar
var virkur í verkalýðsbaráttunni á Eyrarbakka og um tíma formaður félagsins.
Flutti hann til Reykjavíkur í kjölfar þess, þá orðinn ekkill.
Einar var hagmæltur og til er
eftir hann lausavísa svohljóðandi:
Hefur Bakkur hvofta tvo
höldum fláir reynast.
Gleður fyrst og grætir svo
gröfin býður seinast.
Slökkvilið Eyrarbakka-slökkvistörf og stórbrunar:
1887 Veitingahúsið Ingólfur
1895 Oddstekkur
1914 Ingólfsbruninn á Háeyri
1916 Samúelshús
1926 Kaupfélagið Ingólfur Stokkseyri
1930 Litla-Háeyri Eystri
1934 Lyfjabúðin á Eyrarbakka.
1939 Brauðgerðarhúsið á Stokkseyri
1947 kaupfélagssmiðjur Selfossi
1948 Sláturhús S. Ólafssonar o.co Selfossi
1963 Braggi í Kaldaðarnesi
1966 Búðarstígur 8
1975 Veiðafærahús og Trésmiðja Eyrarbakka.
1979 Hraðfrystihús Stokkseyrar
1980 Smiðshús (Tjón takmarkað)
1982 Allabúð á Stokkseyri
1987 Saltfiskverkunarhús Meitilsins í Þorlákshöfn
1991 Götuhús á Stokkseyri
1997 Merkisteinn
2000 Alpan (Tjón var takmarkað)
Eldar höfðu margoft komið upp í húsum, byggingum og bátum á þessu tímabili,
en slökkvistarf tekist. Líklega er Litla-Hraun það hús sem oftast hefir komið
upp eldur. Þá hafa ýmsir kofar,skúrar og hlöður brunnið á þessu tímabili.
Heimildir:
Vísnasafn Sigurðar J. Gíslasonar í Héraðsskjalasafni
Skagfirðinga. bls.Lbs. 3793, 4to
http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3951842
(Ísafold)
https://baekur.is/bok/001194492/9/802/Landsyfirrettardomar_og
(Bækur.is)
http://www.gopfrettir.net/gop_id/AJ_GOP/index.htm
(vefsíða)
https://www.babubabu.is/brunavarnir_arnessyslu/slokkvilid_eyrar/
(Brunavarnir Árnessýslu)
http://eyrarbakkinews.blogspot.com/2017/04/vagnstjori-verur-bilstjori.html
(vefsíða)
http://www.brim.123.is/blog/yearmonth/2013/12/
(Brim á Bakkanum)
http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=1113705
(Tímarit.is)
http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=2272605
(Tímarit.is)
Skrár - Brim á Bakkanum - 123.is
Bruni Kaupfélagsinns
Ingólfs 1914 - 123.is
17.11.2019 22:39
Jón í Simbakoti og bókakistan góða
Jón hét maður og
var Jónsson, Jónssonar bónda og formanns á Óseyrarnesi [Bær sá stóð út við Ölfusárósa og var ferjustaður yfir ána.] Ólöf
hét móðir hans Þorkelsdóttir frá Simbakoti á Eyrarbakka. Jón ólst upp á
Óseyrarnesi við þau handtök sem þá tíðkuðust til sjós og lands. Tvítugur að
aldri tók hann til pjökkur sínar og flutti sig í Simbakot á Eyrarbakka þar sem
hann gerðist húsmaður og átti heima lengst af síðan. Jón dó 1912 í Einarshöfn,
78 ára að aldri, (f. 1834) þurfamaður ókvæntur og barnlaus. Jón var lítill
vexti og vel að sér, hagur og stilltur.
Foreldrar Jóns
voru vel efnuð, en hann fékk í arf að þeim liðnum, hlut í jörðinni Óseyrarnesi
sem hann hélt síðar í makaskiptum fyrir Eystri-Þurá í Ölfusi. Undir það síðasta
var Jón nær félaus orðinn. Um skeið á sínum yngri árum var Jón bóndi í
Simbakoti og formaður allengi í Þorlákshöfn á skipi er Farsæll hét og hann
gerði út þar.
Jón var fróður
svo mjög að enginn jafningi hans hafi verið á Eyrarbakka á þeirri tíð og þó svo
víðar væri leitað. Hann safnaði ógrynni af bókum og handritum. Oft á tíðum hélt
hann úti skrifara til að eftirrita handrit sem hann hafi fengið lánuð í þessu
skyni. Fólk kom títt á bókasafn Jóns og fékk bækur að láni og svo fór eftir
fráfall hans að þetta mikla safn tvístraðist og sumt tapaðist áður í útlánum. Eina
stóra kistu átti Jón og fulla af bókum, Þessi kista ásamt bókum og persónulegum
eigum fóru á uppoð við verslunarhús Heklu 21.oktober 1912 og voru margir mættir
þar til að bjóða í.
Sængurföt hans
voru sleginn á kr. 19.80au. Fatnaður á kr. 6 Olíumaskína (prímus) á 45au.
lífband (notað vegna kvislits) á kr.1 eða samtals 27kr og 25aurar. Lauk þar
fyrri hluta uppboðsins, en þá kom röðin að bókunum og kistunni. Í kistunni voru
sagðar vera 177 bækur og voru boðnar upp í 88 númerum og slegnar á samtals
177kr. og 65 aura. Þá kom röðin að sjálfri kistunni stóru og var hæsta boð 2kr.
og 60 aurar. Samtals kr. 207.50 fyrir allar eigur Jóns.
Hér fer
upptalning þeirra sem fengu slegnar bækur á þessu merkilega uppboði.
Nafn |
Bækur |
Kr.,au. |
Árni Árnason í
Stíghúsi Eyrarbakka, þurrabúðarmaður |
2 |
1,50 |
Árni Helgason bóndi á Garðsstööum á Stokkseyri |
10 |
17,80 |
Einar Jónsson járnsmiður á Eyrarbakka |
4 |
4,40 |
Eiríkur Árnason bóndi í Þórðarkoti á Eyrarbakka |
2 |
1,00 |
Friðrik Sigurðsson formaður í Hafiiðakoti á Stokkseyri |
6 |
5,60 |
Guðmundur Hanncsson bóndi í Jórvík í Flóa |
6 |
6,30 |
Guðmundur Höskuldsson bókbindari í Zephyr á Eyrarbakka |
2 |
0,10 |
Guðmundur Jónsson oddviti í Einarshúsi á Eyrarbakka |
7 |
8,20 |
Hannes Jónsson bóndi á Stóru-Reykjum í Hraunhreppi |
8 |
8,70 |
Jóhann V. Daníelsson verslunarstjóri í Haga á Eyrarbakka |
2 |
1,90 |
Jóhannes Jónsson borgari í Merkisteini á Eyrarbakka |
6 |
5,00 |
Jón Helgason prentari í Samúelshúsi á Eyrarbakka |
14 |
9,80 |
Jón Ólafsson vinnumaður í Foki á Stokkseyri |
9 |
11,10 |
Jón Sigurðsson í Kaldaðarnesi í Flóa |
5 |
6,90 |
Karl H. Bjarnason prentari í Nýjabæ á Eyrarbakka |
6 |
6,90 |
Karl G. á Gamla-Hrauni á Stokkseyri |
4 |
6,20 |
Kjartan Guðmundsson ljósmyndari á Eyrarbakka |
6 |
14,20 |
Kristinn Þórarinsson bóndi í Naustakoti á Eyrabakka |
6 |
8,20 |
Magnús Magnússon yngri í Nýjabæ á Eyrarbakka |
14 |
11,50 |
Maríus Ólafsson í Sandprýði á Eyrarbakka |
19 |
12,80 |
Sigurður Magnússon smiður á Baugsstöðum |
2 |
3,80 |
Sigurður Þorvaldsson í Samúelshúsi á Eyrarbakka |
5 |
3,10 |
Tómas Vigfússon formaður í Garðbæ á Eyrarbakka |
2 |
1,60 |
Vilhjálmur Einarsson bóndi í Gerðum í Gaulverjabæjarhreppi |
6 |
5,30 |
Þorbergur Magnússon í Nýjabæ á Eyrarbakka |
2 |
1,00 |
Þorbjörn Einar Guðmundsson í Einkofa á Eyrarbakka |
2 |
1,10 |
Þórður Jónsson verslunarmaður á Stokkseyri |
12 |
7,40 |
Þorkell Þorkelsson vinnumaður á Gamla-Hrauni |
8 |
6,20 |
En kistan góða
var sleginn Gísla Eiríkssyni frá Bitru í Flóa, þá smiður á Eyrarakka.
Segir nú ekki af
kistunni í bili, en hugum nú að innihaldinu: Eitthvað af handritunum sem Jón
lét skrifa voru að tínast á Landsbókasafnið allar götur síðan 1913, en það var
Jón Sigurðsson í Kaldaðarnesi sem fyrstur reið á vaðið með þessi skil en síðan
skiluðust hvert af öðru næstu rúm 70 árin, eða samtals 20 handrit, en talið er
að handritin hafi numið nokkrum tugum eða þriðjungur þessara 177 bóka.
Skrifarar Jóns
hafa þó vart tekið mikið fyrir sinn snúð, því auðmaður var hann ekki talinn og
hefur það því líkast til helgast meira af greiðvikni.
Hér upptaldir
nokkrir af skrifurum Jóns:
Eiríkur Pálsson í Simbakoti |
2 kver og hlut
í fjórum |
Ólafur Sigurðsson í Naustakoti |
2 kver og hlut
í tveimur |
Þorsteinn Halldórsson á Litlu-Háeyri |
5 kver |
Magnús Teitsson formaður í Garðbæ og á Brún á Stokkseyri |
1 kver og hlut
í tveimur |
Gunnar Jónsson í Langholti í Meðallandi |
Hlut í þremur
kverum |
Páll Guðmundsson frá Strönd í Meðallandi |
Hlut í tveimur
kverum |
Ólafur Bjarnason á Steinum í Leiru |
1 kver |
Eyjólfur Sigurðsson á Kaðlastöðum á Stokkseyri, |
Hlut í einu
kveri |
Guðmundur Jónsson frá Sölvholti í Hraungerðishreppi, |
Hlut í einu
kveri |
Hjörleifur Steindórsson söðlasmiður á Eyrarbakka |
Hlut í einu
kveri |
Sigurður Gíslason smiður í Eyvakoti á Eyrarbakka |
Hlut í einu
kveri |
Hér eru upptaldar
nokkrir titlar af eftirritunum í safni Jóns:
Sagan af Agnari
kóngi Hróarssyni |
Sagan af Goðleifi prúða |
Sagan af Cyrusi
Persakeisara |
Sagan af Hektor og köppum hans |
Sagan af Dínusi drambláta |
Sagan af Knúti
kappsama og Regin ráðuga |
Sagan af Elís
og Rósamundu |
Sagan af Rémundi keisarasyni |
Sagan af Flóvent Frakkakonungi, |
Sagan af Sigurði turnara |
Sagan af Geirmundi og Gosiló, |
Sagan af Vilhjálmi sjóð |
Sagan af Blómsturvallaköppum |
Sagan af Sigurði kóngi og Smáfríði |
Sagan af
Fóstbræðrum |
Rímur af
Artimundi Úlfarssyni |
Sagan af Flórusi
kóngi og sonum hans |
Rímur af Kiða-Þorbirni |
Sagan af
Haraldi Hringsbana |
Kvæði af Alexander blinda |
Sagan af
Nikulási leikari |
Þýskalandskvæði |
Sagan af
Sigurði Friggufóstra |
|
Kver þessi eru
innbundinn en ekki er vitað hverja hann hafi fengið til þess, en samtíða honum
á Eyrarbakka voru kunnáttumenn eins og
t.d. Guðmundur Höskuldsson bókb. í Zephyr.
En víkjum nú að kistunni, því spurning hvort hér sé kominn kista Vigfúsar
Halldórsonar bónda í Simbakoti á Eyrarbakka er hann keypti á uppboði í
maímánuði 1888, eftir Hjört bónda Þorkelsson á Bolafæti i Ytrihrepp. Kistu
þessa ætlaði hann að höggva í eldinn, árið 1890. Hann byrjaði á þeim enda kistunnar, sem
handraðinn var í og þá varð hann þess var, að nokkrir peningar hrundu úr
leynihólfi, sem var innan á kistugaflinum undir handraðanum. Þegar hann fór að
aðgæta þetta betur, fann hann þar peningapoka með 79 spesíum 42 ríkisdölum
einum fírskilding og einum túskilding. Leynihólf þetta var fyrir öllum gafli
kistunnar, frá handraða niður að botni og út til beggja hliða. Peningunum var
raðað í pokann þannig, að þrír og þrír voru hver við hliðina á öðrum. Pokinn
var úr lérefti og var saumaður í gegn milli hverra raða, svo ekki gat hringlað
neitt í þeim. Hann fyllti einnig mátulega út i allt hólfið. 27 spesíurnar voru
frá ríkisstjórnarárum Kristjáns VII.; 48 frá ríkisstjórnarárum Friðriks VI. og
tvær frá ríkisstjórnarárum Kristjáns VIII. - Elsta spesían hefir verið slegin
árið 1787, sú yngsta 1840. Yngsti ríkisdalurinn 1842, og fírskildingurinn 1836
og túskildingurinn 1654. Allir peningarnir vógu 6 pund. Hvort Vigfús hafi að
lokum höggvið kistu sína í eldinn, eða hún gengið í endurnýjun lífdaga er
óvíst, en þó ekki útilokað. En fróðlegt væri að vita hvort kista sú sem Gísli
Eiríkson keypti á uppboðinu ætti sér lengri sögu.
Heimildir:
Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur, 12. árgangur
...
Annað: Google "Jón í Simbakoti" - bækur.is
01.11.2019 22:58
Hafísárið 1881 á Eyrarbakka
Á sama tíma stóð Eyrarbakki vel að vígi og uppgángur í þorpinu. Um vorið var allgóður afli bæði á Eyrarbakka, í Þorlákshöfn og fyrir Loptsstaðasandi; hélst aflatíð þessi allan júlímánuð og voru orðnir háir hlutir manna í kauptíð. Þá var Assistentahúsið í byggingu (Vesturálma Hússins)
Á þessum árum fæddust nokkrir forustumenn og konur. m.a. Þorleifur Guðmundsson alþ.m. Stóru Háeyri, Hjónin Rannveig Jónsdóttir frá Litlu Háeyri og Guðfinnur Þórarinsson formaður á Eyri.
Sjá ennfremur tíðarfar á Eyrarbakka 1881: http://brim.123.is/blog/2007/02/22/82933/- 1