Færslur: 2015 September
22.09.2015 21:21
Flóabáturinn Ingólfur
Ingólfur gamli flutti vörur milli Reykjavíkur Akranes og
Borgarnes og einnig til Eyrarbakka. Ingólfur byrjaði flutninga 1908 og var það
fyrsta flutninga og farþegaskipið sem var alfarið í íslendinga eigu. Árið 1916
voru þrír Eyrbekkingar á Ingólfi; Sigurjón Jónsson frá Skúmsstöðum var skipstjóri,
og sægarpur hinn mesti, Einar organisti frá Eyfakoti og Jón Axel Pétursson,
sonur Péturs Guðmundssonar kennara, þá 16 ára og voru þeir hásetar.
Ingólfur tók einnig þátt í leitum og björgun skipbrotsmanna á Faxaflóasvæðinu.
Skrifað af oka
- 1
Flettingar í dag: 726
Gestir í dag: 19
Flettingar í gær: 1378
Gestir í gær: 38
Samtals flettingar: 451060
Samtals gestir: 46314
Tölur uppfærðar: 25.5.2025 12:28:00