Færslur: 2008 Júlí

30.07.2008 18:21

27,5°C Algjört met!!!

Það var metdagur í dag hvað hitastigið varðar. Kl. 6 í morgun var kominn 16 stiga hiti og hækkaði hitinn með hverri klukkustundinni þar til hámarkinu var náð kl.14 en þá sýndi hitamælir veðurstofunar á Eyrarbakka 27,5°C og hitinn orðinn óbærilegur. Skömmu síðar kom hafgolan og gerði lífið léttbærara með temmilegri hita eða um 24 stig. Þetta er því heitasti dagur sumars og sá heitasti dagur í júlí frá því 1957 og jafnvel frá því mælingar hófust á Bakkanum ef frá er talið árið 1924 (sjá fyrra blogg).
Enn var heitast á landinu á Þingvöllum en þar komst hitinn í 29,3 stig.

29.07.2008 17:51

23.7°C í dag

það var heitt á Bakkanum í dag þó það væri hálfskýjað og dálítil hafgola síðdegis. Kl.14 var kominn tæplega 24 stiga hiti en svo kólnaði nokkuð með hafgolunni. Þetta er því heitasti dagur júlímánaðar og heitasti dagur á þessu sumri. Þar að auki er um dags hitamet að ræða varðandi þennan tiltekna dag. Mesti hiti sem mælst hefur á Eyrarbakka í júlí samkv.mælingum frá 1957 var árið 2003 en þá mældist 25°C þann 18.júlí. 
(Hitametið 29,9°C frá 25. júlí 1924 er talið vafasamt af veðurstofu Íslands og því ekki talið til staðfestra hitameta.)
Mesti hiti Sunnanlands í dag var 26,9°C á Þingvöllum kl.17.



22.07.2008 20:18

Brim í kjölfar Berthu

Talsvert brim hefur verið á Bakkanum í dag sem er harla óvenjulegt á þessum árstíma. Skýringin er mikil ölduhæð á Norður Atlantshafi í kjölfar hitabeltisstormsins Berthu sem gekk yfir N-Atlantshafið í gær sem djúp Atlantshafslægð með mikilli rigningu sem Bakkamenn fengu vel að kenna á enda mældist mesta úrkoman á landinu á veðurathugunarstöðinni okkar 31 mm á tímabilinu frá kl. 09 til 18 í gær sem er þó nokkuð. Það má svo búast við ókyrrum sjó og brimi einhverja næstu daga á Bakkanum.

06.07.2008 17:25

Thomsensbíllinn brunar um Bakkann


Fyrsti bíllinn á Íslandi var kenndur við Ditlev Thomsen, kaupmann og konsúl  kom til landsins 1904. Bíllinn var árg.1900 og lélegt eintak af gerðinni Cudell að mönnum fannst og gerði ekki mikla lukku fyrr en nú þegar bílinn rúntar um Bakkann  með farþega í annað sinn í boði eiganda bílsins Sverris Andressonar  og Gallerí Gónhóls. Fyrra skiptið sem Thomsen bíllinn kom á Bakkann var fyrir rúmum 100 árum síðan. En það mátti líka sjá Gamliford á rúntinum og ýmsar drossíur af eldri kynslóðinni aka um götur þorpsins og var engu líkara en að Bakkinn hafi færst allmarga áratugi aftur í tímann.

  • 1
Flettingar í dag: 156
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 2607
Gestir í gær: 210
Samtals flettingar: 267090
Samtals gestir: 34352
Tölur uppfærðar: 25.11.2024 01:33:43