Færslur: 2020 Júní

23.06.2020 23:47

Hús á Bakkanum - Garðbær

GARÐBÆR 1.......1882

Garðbær IV...........1895

Garðbær V............1898



Jónas[b1]  Einarsson og Guðleif Gunnarsdóttir búst

Guðmundur[b2]  Jónsson og

Guðríður Ásgrímsdóttir

Guðrún[b3]  Guðmundsdóttir og

Jón Halldórsson

Sæmundur Bárðarson

Ísak Jónsson verslunarmaður

Karen Ólafsdóttir (dó uum tvítugt-sjá Þórunn)

Þorbjörg Jónína Óladóttir

Ingvar Friðriksson beykir

Ágústa Guðrún Jónsdóttir

Margrét Vigfúsdóttir

Hildur Jónsdóttir

Ólafur Ólafsson

Þórunn[b4]  Gestsdóttir (Tóta Gests)

Anna Tómasdóttir húsfreyja og

Sigfús[b5]  Árnason  tésmiður (Fúsi eldri)

Vigfús[b6]  Jónsson trésmiður (Fúsi oddviti)

Vigfúsína[b7]  Margrét Bjarnadóttir (Sína)

Olga Ingimarsdóttir [b8]  og

Dagbjartur[b9]  Guðmundsson (Dagi)

Sjá Guðleif

?

?

d.1886

d.1912 - 59

d.1926 - 22

d.1937 - 40

d.1926  

d.1944 - 80  

d.1946 - 82ja

d.1947 - 83ja

d.1949 - 54ra

d.1957 - 83ja

d.1957 - 90

d.1988 - 78

d.1967 - 95

d.1989 - 85

d.2001 - 84ra

d.1998

d. 2001

d.1988 - 92       


 [b1]Þeirra börn: Einar Kristinn og Ágústa.

 [b2]Þeirra börn: Sigrún, Vilhjálmur og  Runólfur Jón. Guðmundur var sjómaður.

 [b3]Börn þeirra: Sigmundur Jónsson.

 [b4]Þórunn Gestsdóttir sagnaþulur og bóndi. Fróðleik hennar má finna á ísmus.is. Maður hennar var Ólafur Ólafsson starfsmaður hjá Lefolii verslun.

 [b5]Sigfús Árnason, trésmiður og bóndi í Garðbæ, f. 20. apríl 1892 á Hurðarbaki í Villingaholtshreppi. Kona hans var Anna Tómasdóttir

 [b6]Vigfús Jónsson var fæddur í Reykjavík 13. október 1903, sonur Jóns Vigfússonar, steinsmiðs, og konu hans Helgu Sigurðardóttur. Hann kom á Bakkann barn að aldri og dróst snemma inn í félagsmál og varð fljótt öflugur liðsmaður á því sviði. Hann var lengi í stjórn UMFE, Súkunni Eyrarrós, Verkamannafélaginu Bárunni, hreppsnefndarmaður og oddviti um margra ára skeið. Stofnandi Trésmiðju Eyrarbakka og Hraðfrystihúsi Eyrarbakka veitti hann forstöðu, formaður Alþýðuflokksins á Eyrarbakka svo eitthvað sé talið, en víðast kom Fúsi við í framfararmálum þorpsins á ferli sínum.

 [b7]Vigfúsína Margrét Bjarnadóttir fæddist á Ísafirði 5. október 1906. Móðir hennar var Sigurborg Sumarlína Magnúsdóttir í Kálfavík í Ögursókn við Ísafjarðardjúp. Faðir Vigfúsínu var Bjarni Vigfússon, f. 14. maí 1867 á Hárlaugsstöðum í Ásahreppi.

 [b8]Olga Ingimarsdóttir fæddist í Stykkishólmi 27. september 1917. Hún bjó með Dagbjarti Guðmundssyni, f. 1. mars 1910, d. 15. maí 1988, Olga var áður gift Óskari Karli Magnússyni

 [b9]Dagbjartur var með smá sauðfjárbúskap heimavið sem algengt var fyrr á árum, þess utan stundaði hann vegavinnustörf og var áhugaljósmyndari og má finna myndir hans á https://sarpur.is/Leit.aspx?search=DG-&filter=544&museumID=1&typeID=1&fbclid=IwAR2WscxuW4L94mCs1OboBFS1V7EbG9PxjNur3FvN0BLJAYLZPEzQbX7O1Jk

08.06.2020 22:08

Hús á Bakkanum - Gaðhús

GARÐHÚS II ........1887

Garðhús III...........1883


Ingibjörg[b1]  Jónsdóttir og börn

Guðrún[b2]  Einarsdóttir og Halldór Gíslason

Valgerður Bjarnadóttir

Vilborg Ólafsdóttir

Björg Jónasdóttir

Magnús Magnússon

Valgerður Þórðardóttir húskona

Jónas[b3]  Einarsson sjómaður og

Guðleif Gunnarsdóttir húsmóðir

Magnús Kristjánsson bílstjóri

Brynjólfur Árnason skósmiður

Einar[b4]  Kristinn Jónasson rafvirki (Kristinn Jónasar) og Þórunn Guðjónsdóttir

Magnús Karel Hannesson og Inga Lára Baldv.d.

?

?

d. 1895 - 66

d. 1896 - 40

d.1897 - 65

d.1914 - 57

d.1918 - 67

d.1927 - 60

d.1953 - 79

d.1948 - 29

?

d.1973 - 75  

 


 [b1]Börn hennar: Frímann Vilhelm Frímannsson og Karolína Andrea Daníelsen. Ingibjörg var verkakona.

 [b2]Börn þeirra: Margrét Andrea, Guðlaugur Gísli og Guðný Pálsdóttir tökubarn.

 [b3]Fórst í sjóslysi með mótorbátnum Sæfara 1927 ásamt allri áhöfn

 [b4] Kristinn lærði á orgel hjá Guðmundu Níelsen og var í hljómfræðitímum hjá Sigfúsi Einarssyni tónskáldi og í Hafnarfirði lærði hann rafvirkjun. Hann tók svo við rafstöðinni á Eyrarbakka, meðfram öðrum rafvirkja störfum. Hann gerði við raftæki ýmiskonar, útvörp og sjónvörp þegar þau komu til sögunnar. Organisti í Kirkjunni og sá um uppdrátt kirkjuklukkunnar um alllangt skeið. Í upphafi var aðeins klukkuskífa á vesturhlið turnsinns. Kristinn tók sig til og smíðaði skífu með vísum á eystri hlið turnsinns. Hann smíðaði einnig eftirlíkingu af áraskipi því sem hangir yfir kirkjugólfinu. Kona hans var Þórunn Guðjónsdóttir, mikil fróðleikskona, sem kunni ógrynni af vísum, kvæðum og ýmsan þjóðlegan fróðleik. Kenndi hún mörgum 6 ára börnum í þorpinu að lesa og bar að þeim ýmsan fróðleik í leiðinni. Hún var mjög trúuð og vel aðsér í kristnum fræðum. Eitt sinn bar að ásatrúarmann sem vildi ræða við hanna um gildismat goðafræðinnar versus kristninar. Tóta Kristinns eins og hún var ávallt kölluð sagðist ekki trúa á stokka og steina og skellti hurðinni á gestinn.

08.06.2020 21:18

Garðshorn - Hús á Bakkanum

GARÐSHORN


Sumarhús Vigfúsar Markússonar

01.06.2020 22:44

Hús á Bakkanum - Gerðiskot

GERÐISKOT

Bærinn stóð í Flóagaflshverfi og fór í eiði 1915. Tilheyrði áðurfyrr Sandvíkurhreppi.

Sigurður[b1]  Þorsteinsson og

Ingibjörg Þorkelsdóttir

Dagur[b2]  Brynjúlfsson og Þórlaug Bjarnadóttir

Guðrún Gísladóttir

um 1900

 

búandi 1907-1915

d 1914 - 64ra


 [b1]Sigurður var formaður verkamannafélagsins Bárunnar um nokkurt skeið, verkamaður á Eyrarbakka og sjósóknari og formaður í Þorákshöfn þar til hann flutti vestur yfir heiði. Hann ritaði margar greinar í blöð um sjósókn fyrr á tímum og um lífsbaráttuna á Bakkanum. Ingibjörg kona hans var frá Óseyrarnesi.

 [b2]Dagur Brynjólfssonar fræðaþuls frá Minna núpi. Fluttist síðan að Gaulverjabæ og gerðist þar stórbóndi.

  • 1
Flettingar í dag: 156
Gestir í dag: 5
Flettingar í gær: 2607
Gestir í gær: 210
Samtals flettingar: 267090
Samtals gestir: 34352
Tölur uppfærðar: 25.11.2024 01:33:43