Blog records: 2019 N/A Blog|Month_5
20.05.2019 23:01
Baugsstaðir (2)
Tvíbýlt er á Baugsstöðum sem greint er frá hér í fyrra bloggi, en hér er upptalning ábúðar á hinum hlutanum.
1775 - 1797 Magnús hreppstjóri Jónsson Bjarnasonar í Grímsfjósum (Hann sagði
af sér)Kona hans var Ólöf Bjarnadóttir hreppstjóra á Baugsstöðum
Brynjólfssonar. Synir Þeirra voru: Bjarni eldri á Baugsstöðum og Bjarni yngri á
Leiðólfsstöðum.
1797 - 1805 Ólöf Bjarnadóttir ekkja Magnúsar. Ólöf var
tvígift og var fyrri maður hennar Gissur Stefánsson í Traðarholti.
1805-1807 Bjarni hreppstjóri Magnússon eldri. Kona hans var
Elín Jónsdóttir hreppstjóra á Stokkseyri Ingimundarsonar. Sonur þeirra var
Magnús á Grjótalæk.
1807-1808 Elín Jónsdóttir ekkja Bjarna. Hún giftist aftur Hannesi
Árnasyni á Baugsstöðum.
1808-1844 Hannes Árnason frá Selalæk hreppstjóra Ormssonar
prests á Reyðarvatni. Kona hans var Elín Jónsdóttir er fyr er getið. Börn
þeirra voru: Þuríður á Fljótshólum, Bjarni hreppstjóri í Óseyrarnesi og Magnús á
Baugsstöðum.
1844 - 1852 Oddur Hinriksson frá Brandshúsum Þorkellssonar.
Kona hans var Róbjörg Ólafsdóttir á fljótshólum Þorleifssonar. Börn þeirra
voru: Ólafur á Fljótshólum-dó ókvæntur, Guðmundur -dó ungur. Ingibjörg á Fljótshólum
-dó ógift. Oddur á Ragnheiðarstöðum, Róbjörg á Fljótshólum og Margrét -dó ung.
1854 - 1892 Magnús Hannesson Árnasonar er fyr er getið og
Guðlaug Jónsdóttir frá Vestri-Loftstöðum Jónssonar yngra á Stokkseyri Gamalíelssonar.
Börn þeirra voru: Jón í Austur-Meðalholtum, Elín á Baugsstöðum, Jón á Baugsstöðum,
Hannes í Hólum, Magnús á Baugsstöðum, Sigurður smiður á Baugsstöðum.
1892 - 1897 Magnús Magnússon Hannessonar á Baugsstöðum og
Þórunn Guðbrandsdóttir frá Kolsholti Brandssonar. Dóttir þeirra var Margrét.
1897-1933 Jón Magnússon Hannessonar á Baugsstöðum og Helga
Þorvaldsdóttir frá Brennu í Flóa. Áttu einn son er dó ungur.
1933 - 1984 Ólafur Gunnarsson frá Ragnheiðarstöðum
Þorvaldssonar í Brennu í Flóa og Jónína Oktavía Sigurðardóttir frá Eystri -Rauðarhól
Jónssonar. Synir þeirra voru: Hinnrik d 2011, Erlendur Óli og Sigurjón.
1984- 2011 Hinnrik Ólafsson vörubílstjóri .( Árið 1959 fann
Hinrik flöskuskeyti í Baugsstaðafjöru,var það frá þýskum sjómanni sem hafði
varpað flöskunni frá skipi langt suður í hafi. Þýskukunnátta Hinriks kom þarna
að góðu gagni, svaraði hann skeytinu og hófust svo samskipti, skrifuðust þeir á
og sendu hvor öðrum jólagjafir í yfir 50 ár)
Heimild: Guðni Jónsson-Búendur og bólstaðir í Stokkseyrarhreppi og mbl.is
20.05.2019 21:57
Baugstaðir (1)
Baugstaðir er elsta byggt ból á
Stokkseyri og kennt við Baug Rauðsson, fóstbróðir Ketils hængs, er hafði þar
aðsetur hinn fyrsta vetur er hann var á Íslandi um árið 890 en fór síðan og nam
Fljótshlíð og bjó á Hlíðarenda. Svo er sagt að Baugur hafi haft samflot við með
Katli til Íslands og stýrt sínum knerri hvor eftir víg þeirra á
Hildiríðarsonum. Þegar Hásteinn Atlason kemur út, e.t.v. áratug síðar nemur hann allt það land sem
tilheyrði Stokkseyrarhrepp hinum forna, en mági sínum Hallsteini Þorsteinssyni gaf
hann vesturbakkann þ.e. Eyrarbakka. Þegar synir Hásteins skiptu arfi sínum
hlaut kom eystri hlutinn í hlutskipti Atla í Traðarholti, ásamt Baugstöðum.
Staðurinn var því í eigu Hásteins, sona og niðja alla landnáms og söguöld.
Í byrjun 13 aldar bjó þar Börkur
Grímsson er var sá 7. í beinan karllegg frá Hásteini. Flosi prestur Bjarnason,
tengdasonur Barkar tók síðan við jörðinni, en seldi hana 1226 Dufgúsi
Þorleifssyni. Um 1270 átti Þeobaldus Vilhjálmsson jörðina, en skipti við Árna
biskup Þorláksson á Dal undir Eyjafjöllum.
Komst jörðin þá undir Skálholtsveldi og var svo næstu 500 ár.
1738 Magnús Jónsson og Einar
Jónsson kaupa jörðina á uppboði. Hefur jörðin síðan að nokkru eða öllu verið í
eigu afkomenda þeirra. Erfingjar Magnúsar voru Bjarni eldri á Baugstöðum og
Bjarni yngri á Leiðólfsstöðum. 1806 Bjarni eldri kaupir bróður sinn Bjarna
yngri út úr jörðinni og fellur jörðin síðan til ekkju hans Elínar Jónsdóttur og
seinni manns hennar Hannesar Árnasonar á Baugstöðum. Af þessum helmingi gekk 5/6
partur til Bjarna í Nesi Hannessonar, síðan til Gríms í Nesi Bjarnasonar, síðan
til Guðmundar stútendts Grímssonar er seldi partinn Jóni bónda Magnússyni á Baugstöðum
um aldamótin 1900, en 1/6 hafði Jón hlotið í erfðir frá föður sínum Magnúsi Hannessyni.
Helming Einars Jónssonar erfir
einkasonur hans, Jón hreppstjóri á Baugstöðum
Einarsson og síðan ekkja hans Sesselja Ámundardóttir og seinni maður hennar
Þorkell Helgason að nokkru og Einar í Hólum Jónssonar hreppstjóra Einarssonar að nokkru. Þann part
erfir Bjarni sonur hans, en part Sesselju erfir dóttir hennar Margrét á
Minna-Núpi Jónsdóttir. Báða þessa parta eignast Guðmundur Margrétarson Jónsson á Baugstöðum með
erfð og kaupi. 1910 Guðmundur Jónsson og Jón Magnússon eru eigendur
jarðarinnar. Eftir það Páll Guðmundsson og Ólafur Gunnarsson, uppeldissonur
Jóns Magnússonar verða eigendur jarðarinnar.
-----------------------Ábúendur---------------------------
890 Baugur Rauðsson ruggu frá Naumudal hafði þar vetursetu, en nam síðan land í
Fljótshlíð.
1000 eða síðar hafa búið þar niðjar Hásteins Atlasonar
landnámsmanns á Stokkseyri.
1222 Börkur Grímsson,Ingjaldssonar, Grímssonar glammaðar Þorgilssonar
örrabeinsstjúps í Traðarholti, Þórðarsonar dofna, Atlasonar, Hásteinssonar landnámsmanns, Atlasonar. Börn Barkar voru Herdís, móðir
Nikulásar Oddssonar í Kalmarstungu og Ragnhildur kona Flosa prests Bjarnasonar.
1222-1226 Flosi Bjarnason prestur Bjarnasonar, Flosasonar,
Kolbeinssonar,Flosasonar,Valla-Brandssonar. Kona hans var Ragnhildur
Barkardóttir á Baugstöðum Grímssonar. Börn þeirra voru: Einar, sr. Bjarni,
Halla í Odda, Þórdís á Hvoli, Valgerður, og Guðrún. Fyrir átti hún Benedikt
Vermundarson.
1226-1237 Dufgús Þorleifsson skeifu í Hjarðarholti
Þormóðssonar Skeiðagoða Guðmundssonar og Þuríðar Hvamm-Sturludóttir Þórðarsonar.
Kona hans var Halla Bjarnadótir og börn þeirra voru: Svarthöfði, Björn drumbur,
Björn kægill, og Kolbeinn grön, og allir hinir mestu garpar. Eftir það búa þau
á Strönd í Selvogi. Þar lét Gissur Þorvaldsson ræna þau búfé öllu.
1243-1265 Börkur Ormsson frá Þingnesi í Borgarfirði. Dóttir
hans var Margrét á Baugsstöðum.
1265-1272 Þeóbaldus Vilhjálmsson í Odda Sæmundssonar
Jónssonar og Margrét Barkardóttir Ormssonar. Þau seldu jörðina til Árna biskups
Þorlákssonar í Skálholti fyrir Dal undir Eyjafjöllum. Komust Baugstaðir þá undir
Skálholtsstól og hélst svo nærri næstu 500 ár.
1272-1277 sr. Magnús frá Dal Þorláksson af Svínafelli
Guðmundssonar gríss alsherjargoða og prests á Þingvöllum Ámundssonar, og bróðir
Árna biskups.
1277-1284 Ásgrímur Þorsteinsson riddari og sýslumaður Árnes
og Rángárþings, Jónssonar í Hvammi Vatnsdal.
Bróðir Eyjólfs ofsa, er stóð fyrir Flugumýrarbrennu og þá vinur Árna biskups. Hann
flutti síðan að Traðarholti, þegar fullur fjandskapur brast á með þeim Árna
biskupi. Kona hans var Guðný Mánadóttir frá Gnúpufelli í Eyjafirði. Synir
þeirra voru Eyjólfur sýslumaður í Traðarholti og Máni. Ásgrímur átti með
Geirlaugu jónsdóttur á Stokkseyri, sr. Jón og sr. Þorstein.
1284-1625 Á þessu tímabili eru ábúendur óþekktir með öllu,
og tímabilið að mestu hulið myrkri. Þess er vert að geta að innan þessa tímabils
geisaði "svartidauði" er lagði margar sveitir í eiði og hálfri öld síðar kom "plágan"
sem var mjög mannskæð. Kólnun veðurfars og loftslagsbreytingar ollu búsifjum,
svo kúabúskapur dróst verulega saman, en sauðabúskapur jókst á móti. En e.t.v. urðu þessi harðindi vegna stórfeldra
eldgosa, svo sem í Heklu og Kötlu snemma á þessu tímabili og í Grímsvötnum,
Heklu og Kötlu og Öræfajökli alloft á
14. öld og voru einhver hin mestu öskugos íslandsögunnar. [Það er vel þekkt að stórfelld öskugos hafa gríðarleg áhrif á loftslag
um allan heim] Á öndveðri 17. öld
gengu miklar deilur um ábúð jarðarinnar, eða hin svokölluðu "Baugstaðamál" og er
þaðan hægt að rekja ábúendur að nýju.
1625-1632 Þorlákur Gunnarsson á Hólum, er kemur við sögu í Baugstaðamáli.
1628-1632 Gissur Þorkellsson, er kemur við sögu í
Baugstaðamáli.
1632-1634 Sigurður Jónsson
skrifari Gísla biskups Oddsonar.
1636-1637 Erlendur, (Ekki er meira um hann vitað)
1637-1657- Pétur Filippusson. Börn hans voru: Gunnar á Baugstöðum, Vigfús í Tungu í Flóa,
Valgerður og Filippus, húsmaður á Skúmstöðum Eyrarbakka.
-1659- Gunnar Pétursson, er fyr er getið Filippussonar. Hann
varð "bjargþrota ómagi" á framfæri Höllu dóttur sinnar. Börn Gunnars voru:
Ólafur í Vöðlakoti í Flóa, Halla í Gerðum í Flóa og Pétur í Snóksnesi.
-1666 --1681- Magnús Jónsson . Dóttir hans var Ingiríður á
Skipum.
-1666 --1681- Guðmundur Jónsson . Sonur hans var Jón á
Skipum.
1690-1700 Jón Guðmundsson á Skipum.
1700 - 1722 Brynjólfur lögréttumaður Hannesson hreppstjóra
Tómassonar á Skipum. Brynjólfur bjó síðar á Skipum. Hann kól bæði á höndum og fótum
í "kyndilmessufjúkum" 1697 og fékk þá
viðurnefnið "Stúfur". Sonur af fyrra hjónabandi var Hannes í Hróarsholti er fór
úr stóru-bólu. Seinni kona Brynjólfs var Vigdís Árnadóttir í Súluholti,
Gíslasonar lögréttumanns í Ölvesholti Brynjólfssonar af ætt Torfa í Klofa. Börn
þeirra voru: Kristín í Hraungerði,
Valgerður á Egilsstöðum í Ölfusi, Gísli - dó ókvæntur, Sesselja á Skipum, Bjarni
á Baugsstöðum, Steinunn í Hólum, Margrét í Þorlákshöfn. Frá þeim er komin
svonefnd "Baugstaðaætt".
1722 - 1758 Bjarni Brynjólfsson Hannessonar er fyr er getið
og hreppstjóri Stokkseyrarhrepps. Kona hans var Herdís Þorsteinsdóttir frá
Hróarsholti Jónssonar. Börn þeirra voru: Ólöf í Traðarholti, síðar Baugsstöðum. Ingunn
á Mið-Kekki og Vilborg á Baugstöðum.
1758 - 1775 Herdís Þorsteinsdóttir, ekkja. Eftir hana taka
tengdasynir hennar Einar og Magnús við sinn helmingnum hvor, og er síðan tvíbýlt
á Baugstöðum.
Baugstaðir 1
1775-1792 Einar Jónsson ríka í Skúmstaðarhverfi Eyrarbakka
(Jón gamla Pálssonar og Þórunnar Álfsdóttur í Mundakoti Ólafssonar). Einar var
hreppstjóri Stokkseyrarhrepps og þingvitni. Kona hans var Vilborg Bjarnadóttir
á baugstöðum Brynjólfssonar. Sonur þeirra var Jón hreppstjóri á Baugsstöðum.
1792 - 1824 Jón Einarsson hreppstjóri. (Kemur við sögu
Þuríðar formanns og Kambránsins) Fyrri kona Jóns var Margrét Sigurðardóttir frá
Vorsabæ í Flóa, Péturssonar Sigurðssonar og systir Bjarna riddara í Hafnafirði.
Börn þeirra voru: Einar í Hólum, Guðmundur er druknaði í Tunguósi 1810, Vilborg
-dó uppkomin og Guðrún í Hvassahrauni. Seinni kona Jóns var Sesselja Árnadóttir
smiðs í Syðra-Langholti. Börn þeirra voru: Margrét á Minnanúpi, Sigríður á
Bjólu, Ólafur í Eystra-Geldingaholti og Jónas -drukknaði ungur.
-1824- Sesselja Árnadóttir ekkja, en giftist aftur.
1824 - 1826 Þorkell
Helgason frá Eystra-Geldingaholti. Kona hans var Sesselja Árnadóttir, áður
ekkja. Þau voru barnlaus.
1826 - 1846 Ólafur Nikulásson, áður Eystara Geldingaholti og
Solveig Gottvinsdóttir gamla í
Steinsholti Jónssonar. (Hún kemur við
sögu Þuríðar formanns og Kambránsins) Börn þeirra voru: Guðrún -dó ung,
Ingveldur á Vestri-hellum, Sesselja -dó ógift en átti son er Sveinn hét Halldórsson,
Níels í Lindabæ Reykjavík -dó voveiflega (Kemur við í Kambránssögu) Guðbjörg á
Arnarhóli, Guðbjörg önnur og Kristín -Jóns vind yngra Jónssyni á Eyrarbakka.
1846 - 1853 Solveig Gottvinsdóttir ekkja.
1853 - 1875 Guðrún Guðmundsdóttir Gamalíelssonar ekkja. Almennt kölluð
Baugstaða-Guðrún.
1876 - 1882 Þorsteinn steinsmiður Teitsson Jónssonar í Skáldabúðum
Gnúp, og Ingigerður Gísladóttir í Ásum .
Sonur þeirra var Rögnvaldur steinsmiður í Reykjavík.
1882 - 1918 Guðmundur Jónsson frá Minna-Núpi Brynjólfssonar.
Sonur Margrétar Jónsdóttur Einarssonar hreppstjóra er fyr er getið. Kona hans
var Guðný Ásmundsdóttir frá Haga Eystrihrepp. Synir þeirra voru Sigurgeir og
Páll báðir bændur á Baugstöðum.
1918 Siggeir Guðmundsson Jónssonar á Baugstöðum -druknaði í
Baugstaðafjöru sama ár. Kona hans var Kristín Jóhannsdóttir frá Eyvakoti
Hannessonar í Tungu, Einarssonar. Hún giftist aftur Ísleifi Einarssyni á Læk í
Ölfusi. Börn Siggeirs og hennar voru: Guðmundur sjómaður á Eyrarbakka, Jóhann
bílstjóri Reykjavík, Sigurlaug á Syðra-Seli, Ásmundur í Gaulverjabæ og Sigurður
á Læk í Ölfusi.
1918-1977 Páll Guðmundsson Jónssonar á Baugsstöðum og Elín Jóhannsdóttir Hannessonar í Tungu
Einarssonar. Börn þeirra eru: Guðný í Laugarási, Ásta -dó ung, Sigurður, Siggeir
-dó af slysförum 2001.
-1977-2001 Siggeir Pálsson, Kona hans var Una Kristín
Georgsdóttir. Börn þeirra eru: Páll, Svanborg, Elín, Þórarinn og Guðný. Siggeir
lést af slysförum 2001. Siggeir rak búið ásamt bróður sínum Sigurði síðasta
íslenska vitaverðinum, en sigurður var vitavörður í Knarrarósvita til 2010.
Heimild: Guðni Jónsson-Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi
15.05.2019 23:06
Ásgautsstaðir II ábúendur
1708
Ásgrímur Eyvindsson í Holti*
1729-1731
Jón Þorláksson Stóra-Hrauni og Nesi, Bergsonar lögréttumanns í Þorlákshöfn
Benediktssonar. Kona hans var Hallfríður Magnúsdóttir í Ranakoti efra
Ólafssonar.
1735 Árni
Jónsson á Kalastöðum*
1740-1747
Einar Bjarnhéðinsson frá Vestri-Garðkvika í Hvolhreppi Guðmundssonar í
Langagerði Ólafssonar. Kona hans var Guðríður Þorsteinsdóttir frá
Sandlækjarkoti Jónssonar.
1746-1748 Bernharður
Einarsson Bjarnhéðinssonar er hér að ofan greinir. (Hefur í sumum skjölum misritast "Vernharður")
1761-1763 Bjarni
Jónsson í Traðarholti*
1767-1771
Gretar Snorrason
1771-1773
Þórarinn Jónsson í Keldnaholti*
1798-1801
Jón Jónsson Söngur í Vestra-Íragerði*
1801-1812
Jón Bjarnason í Grímsfjósum*
1813-1815
Jón Jónsson frá Leiðólfsstöðum Ingimundarsonar frá Hólum Bergssonar og drukknaði
á Stokkseyri 30 mars 1815 við þrettánda mann. Kona hans var Sigríður Jónsdóttir
skipasmiðs á Ásgautsstöðum Snorrasonar.
1822-1825
Jón í Nesi Jónsson skipasmiðs Snorrasonar. Fyrri kona hans var Ólöf Þorkellsdóttir
skipasmiðs og hreppstjóra á Gamla-Hrauni Jónssonar. Hún var efnuð mjög. Börn
þeirra voru Þuríður, dó ógift. Þorkell bóndi í Nesi, Hinrik í Ranakoti og Jón
bókamaður í Simbakoti, fróðleiksmaður mikill. Seinni kona Jóns var Guðrún eldri
Guðmundsdóttir frá Miðhúsum í Biskupstungum Gamalíelsonar. Dóttir hennar hét
Þorbjörg Jónsdóttir Johnson. Börn þeirra voru Ólöf í Neistakoti, Þóra á
Kalastöðum og Sigurður í Björk Grímsnesi.
1882-1823
Guðmundur Jónsson á Gerðum*
1825-1826
Einar Kristofersson í Brú*
1831-1852
Gísli Þorsteinsson Jónssonar í Hól og drukknaði á Stokkseyri 18. maí 1852 ásamt
Þorsteini syni sínum. Kona hans var Oddný Jónsdóttir frá Stóra-Hrauni. Börn
þeirra voru Anna í Starkaðarhúsum, Gróa vinnukona í Votmúla, Sóveig, Vilborg,
Ástríður, Gísli vinnumaður í íragerði og Þorsteinn er fyrr er getið.
1852-1859
Hannes Jónsson í Grjótalæk*
1858-1870
Karel formaður Jónsson í Hvíld Egilssonar. Hann ætlaði til Ameríku en af
ferðinni varð þó aldrei. Karel var jafnframt útistöðumaður við ýmsa sveitunga
sína og átti gjarnan í málaþjarki. Kona hans var Guðríður Þorvarðsdóttir í
Brattholti Hallgrímssonar. Börn þeirra voru Margrét, Jóhanna, Karolína í
Þórðarkoti, Ingvar í Hvíld, drukknaði á Stokkseyri 1908, Gísli í Sjávargötu,
drukknaði með bróðir sínum, Þorvarður, drukknaði á þilskipinu "Ingvari" í Viðey
1906.
1870-1872
Jóhannes Jónsson frá Björnskoti á Skeiðum, ættaður úr Leirársveit og Valgerður
Andrésdóttir úr Mýrdal.
13.05.2019 21:34
Ásgautsstaðir I ábúendur
Ásgautur hét leysingi Hásteins Atlasonar og sona hans er byggði Ásgautsstaði.
Ekkert er kunnugt um ábúendur á miðöldum.
1675-1705 Eyjólfur Þorsteinsson
1700-1705 Brynjólfur Jónsson
Um 1708 Gísli Gunnarsson, síðar á Höskuldsstöðum og
þórðarkoti í Sandvíkurhreppi. f.1681 d.1762
1729-1735 Guðmundur Jónsson f.1681 og Valgerður
Hinriksdóttir
1740-1747 Sigurður Jónsson
1747-1750 Nikulás Jónsson silfursmiður frá Suður-Reykjum í
Mosfellssveit og Anna Einarsdóttir lögréttumanns Ísleifssonar á Suður-Reykjum.
1750-1770 Anna Einarsdóttir ekkja Nikulásar Jónssonar.
1768-1776 Sigurður Þorláksson búðarþjóns á Eyrarbakka,
Brynjólfssonar lögréttumanns á Stóra-Hrauni Eyrarbakka Þórðarsonar, og Sólveig
Nikulásdóttir silfursmiðs Jónssonar.
1779-1782 Jón Ingimundarson yngri
1782-1795 Grímur Snorrason frá Gýgjarhóli í Biskupstungum,
Guðmundssonar lögréttumanns frá Miðfelli Jónssonar, og Gróa Hafliðadóttir frá
Flóagafli Egilssonar.
1795-1801 Jón formaður Símonarsson Eyjólfssonar sterka frá
Litla-Hrauni , síðar Óseyri og Selfossi, (f.1767-d.1856) og Guðrún Snorradóttir
frá Kakahjáleigu Knútssonar.
1801-1815 Magnús ríki fyrrv. hreppstjóri og hafnsögumaður á
Eyrarbakka, Bjarnasonar hafnsögumanns og hreppstjóra á Litlu-Háeyri Magnússonar
í Simbakoti Beinteinssonar. [ Magnús og
hans menn björguðu Salthólsfólkinu úr stórflóðinu 1799 er flóðið tók bæinn, en
að öllu venju þótti Magnús ekkert góðmenni og helst til skapstór] Magnús
var tvíkvæntur og var fyrri kona hans Halla Filippusdóttir frá Skúmstöðum
Þorsteinssonar og þótti hið mesta valkvendi. Seinni kona Magnúsar var Þóra
Magnúsdóttir frá Stóru-Sandvík Gunnlaugssonar. Magnús hélt einnig við Jórunni
Alexiusdóttur frá Salthól.
1815-1831 Jón skipasmiður Snorrasonar á Hól Ögmundssonar í
Kotleysu, og Þuríður Jónsdóttir frá Mið-Kekki Þórólfssonar. Ásgautstaði keypti hann 1793 Óseyrarnes með
Rekstokki 1797 og hjáleigurnar Gerða og Hól í Stokkseyrarhverfi. Frá þeim
hjónum er kominn Nesætt.
1831-1835 Jón Egilssonar frá Hrútastaðahjáleigu Jónssonar
Þórarinssonar hreppstjóra á Hæringsstöðum, Sigurðssonar. Í Móðurætt var Jón
kominn af Eyjólfi sterka. Jón var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Þuríður
formaður Einarsdóttir, en þau skildu eftir stutta sambúð. Seinni kona hans var
Ingunn Jónsdóttir skipasmiðs Snorrasonar, er áður er getið.
1835-1853 Snæbjörn Sigurðsson frá Ósgerði í Ölfusi,
Snæbjörnssonar, Sigurðssonar í Skálmholtshrauni, Ísólfssonar. Hann var
tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Vigdís Einarsdóttir frá Norðurkoti í Votmúlahverfi, Eiríkssonar í
Brúnavallakoti, Sveinssonar á Syðri-Brúnavöllum, Rauðssonar á Fjalli. Hún varð
bráðkvödd. Seinni kona hans var Halla Þorsteinsdóttir frá Hól, Jónssonar.
1853-1859 Helgi skipasmiður Jónsson, Bjarnasonar í
Grímsfjósum. Fóstursonur Margrétar Guðnadóttur í Efra-Seli, bróðurdóttur Brands skipasmiðs í
Roðgúl. Hann eignaðist hin fræga smíðahamar Brands, en með honum voru m.a.
byggð mörg skip og endurbyggðir a.m.k. 9 bæir. Kona Helga var, Ingunn
Jónsdóttir skipasmiðs Snorrasonar, áður Jóns Egilssonar, er fyrr er getið.
1859-1867 Helgi Snorrason í Hellukoti.
1867-1873 Páll Jónsson Mathiesen prestur. Ásgautsstaðir urðu
þá prestsetur. Kona hans var Guðlaug Þorsteinsdóttir frá Núpakoti undir
Eyjafjöllum.
1873-1874 Gísli Thorarensen prestur Sigurðssonar Gíslasonar
Thorarensen í Hraungerði. Kona hans var Ingibjörg Pálsdóttir amtmanns Melsteðs
Þórðarsonar.
1874-1876 Ingibjörg Pálsdóttir prestsekkja er áður er getið.
1876-1884 Jón Björnsson prestur, síðar á Litla-Hrauni og
Eyrarbakka, en hann gekk þar fyrir kirkjubyggingu þeirri er þar stendur. Hann
fannst síðar örendur í flæðamálinu utan við kaupstaðinn. Kona hans var Ingibjörg
Hinriksdóttir bátasmiðs frá Hákoti á Álftanesi.
1884-1885 Jón Bjarnason söðlasmiður og Sigríður Davíðsdóttir
úr Vestmannaeyjum, Ólafssonar. Þau skildu. Síðari sambýliskona Jóns var Guðrún
Sigurðardóttir í Bjálmholti í Holtum Björnssonar.
1885-1888 Jón Magnússon í Efra-Seli og síðar Nýja-Kastala.
1888-1890 Vernharður Jónsson í Efra-Seli.
1890-1893 Jón formaður Vernharðsson eldri og Finnbjörg Finnsdóttir
frá Hvammi á landi. Þau fluttu til Ameríku með fjölskyldu sína.
1893-1909 Gísli söngvari Gíslason Þorgilssonar á Kalastöðum.
Gísli var hreppstjóri á Stokkseyri en
sagði af sér. Kona hans var Halldóra Jónsdóttir frá Syðsta-Kekki Sturlaugssonar.
1909-1910 Júlíus Gíslason, sonur Gísla söngvara er hér er getið.
1910-1916 Jón Jónatansson búfræðingur frá Litlu-Þúfu í Miklaholtshreppi
Þorleifssonar og Kristjana Benediktsdóttir frá Vöglum í Fnjóskadal Bjarnasonar.
1916-1918 Björn Gíslason fésýslumaður var þar síðastur
ábúenda sem getið er.
Heimild:
Guðni Jónsson Magister/Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi.
09.05.2019 23:40
Húsanöfn á Stokkseyri fyrir 1950 / A-B
1. Adólfshús - Kennt við Adólf Adólfsson á
Stokkseyri. Talið er að húsið hafi verið byggt 1889 og var fyrsta
bárujárnsklædda húsið sem byggt var á Stokkseyri. Eftir 1913 Var það notað
fyrir vöruskemmu og verslun Jóns kaupmanns Magnússonar.
2. Aðalsteinn - Byggt 1910 af Guðmundi
Guðmundssyni, síðar í Brautartungu. Þetta var annað steinsteypta húsið sem
byggt var á Stokkseyri, en hitt var Hafsteinn,
sem byggt var sama ár.
3. Aftanköld - Upphaflega skemma er Jón
Adaólfsson í Grímsfjósum byggði við Stokkseyrarbæinn á árunum 1860-1865 er hann
hóf verslun þar. (Nafnið er dregið af staðsetningu skemmunar og þótti köld)
Lengi bjó þar Einar Ólafsson frá Grjótlæk og skírði hann bæinn upp og nefndi Varmadal.
4. Akbraut - Byggt 1920 af Jóni
Kristjánssyni, bróðursyni Magnúsar Teitssonar hagyrðings.
5. Aldarminni - Byggt árið 1901 af Einari
Jónssyni, áður bónda í Götu og
Guðlaugi Skúlasyni, síðar bónda í Símonarhúsum.
Jón Sigurðsson keypti húsið síðar og stækkaði nokkuð.
6. Alþýðuhús - Byggt 1901 af
verkamannafélaginu "Bjarma" og var
samkomuhús þess. Notað síðar sem áhaldahús hreppsins og slökkvistöð.
7. Árnatóft - Kennd við Árna nokkurn úr
Bæjarhrepp, er hafi fengið að stunda silungsveiðar í Traðarholtsvatni og reisti
kofa þar við vatnið. Sigurður Sigurðsson, síðar í Hraukshlöðu fékk að gera sér
þarna býli á tóftunum árið 1859. Bjuggu þar ýmsir þurrabúðarmenn síðar.
Kristján Hreinsson er þar bjó gerði bæinn upp árið 1903 og kallaði Brautarholt*.
8. Ártún I - voru byggð árið 1891 hjá
Garðbæ í Beinteigshverfinu af Gústaf Árnasyni trésmiðs frá Ártúnum á
Rangárvöllum [Þá í Beinteig].
Brynjólfur Gunnarsson keypti bæinn árið 1898 og Kallaði Traðarhús*
9. Ártún II - Byggð 1898 af Gústaf
Árnasyni trésmið [Flutti síðan til
Stykkishólms] Gunnar í Götu keypti það af honum og bjó þar í nokkur ár, en
flutti það síðan upp að Löllukoti, en þaðan var það flutt að Hæringsstöðum.
10. Ásgarður - Byggt árið 1906 af Ásgeiri
Jónssyni borgara í Hrútstaða-norðurkoti.
11. Auðnukot /Unukot - hét býli í
Syðra-Selslandi á mörkum milli Svanavatnsengja og Syðra-Sels. Ekki er vitað um
aldur tóftarinnar eða hver þar byggði eða bjó.
12. Bakarí - Svonefnt brauðgerðarhús og
íbúð bakara reist fyrir aldamótin 1900. Það stóð við Helgahús, sunnan við
Þingdalinn. Seinast vöruskemma pöntunarfélags verkamanna. Byggingin brann árið
1939. Var þar síðan byggt fiskþurkunarhús.
13. Bakkagerði - Þurrabúð í
Traðarholtslandi, byggt af Guðjóni Pálssyni árið 1905. Fór í eiði 1921. Síðasti
ábúandinn var Guðmundur Sigurðarson frá Sjónarhól, síðar Hvanneyri*
14. Bakkakot - byggt fyrir 1920, bjó þar
Jón Þórðarson, áður bóndi á Leiðólfsstöðum. kot þetta fór í eiði 1934
15. Bakki - eitt af Sjónarhólsbæjum, byggt
1901 af Jóhanni Guðmundssyni frá Bakka í Landeyjum, síðar Vestmannaeyjum.
16.
Baldurshagi
- Byggður 1910 af Sæmundi Benediktssyni frá Íragerði*. [Flutti til
Vestmannaeyja 1935]
17.
Baldursheimur
- Byggður 1945 af Sturlaugi Guðnasyni frá Sandgerði*.
18.
Barna
og unglingaskóli stokkseyrar - Reist á árunum 1947-1951 á Stokkseyrartúni
gamla. Þar hjá var reistur skólastjórabústaður Stjörnusteinar*.
19.
Baugstaðarjómabú
- Byggt árið 1904 við Baugstaðaá vestan við Baugstaði.
20. Beinteigur - Þurrabúð í eiði ca 1648,
eiðilagðist af sjávargangi 1653 [Flóðið
mikla 2. janúar 1653] Beinteigur er elsta nafngreinda þurrabúð í
Stokkseyrarhverfi. Sjóbúð var þar fyrir eða um 1882 og bjó þar eitt ár Einar
Ólafsson síðar í Aftanköld* Árið
1883 flutti í Beinteig Sigurður Snæbjörnsson frá Brattholtshjáleigu og reisti
þar fyrsta bæinn. Bærinn var endurgerður á árunum 1945-1946 og fluttur lítið
eitt úr stað og hét þá Sætún* en á
tóftinni var síðan byggð hlaða og gripahús frá Sætúni. Um og fyrir aldamótin
1900 risu margir nafnlausir bæir í Beinteigshverfinu, en sumir fengu síðar
nöfnin Garðbær*, Garðstaðir*, Haustshús*
og Traðarhús*.
21. Bjarg - Byggt 1901 af Jóni Jóhannssyni,
áður bónda á Mið-Klekki. Gísli Magnússon bjó þar eftir honum.
22. Bjarmaland - Byggt 1895 af Jóni
Vigfússyni verslunarmanni hjá Ólafi Árnasyni. [Jón fór til Ameríku 1899] Þá bjó þar Guðmundur Vernharðsson
kennari til dauðadags 1901. Húsið var síðan lengi vörugeymsluhús Jóns kaupmanns
Jónssonar. Árið 1932 bjó þar Guðjón Jónsson fyrrum bóndi á Leiðólfsstöðum.
23. Bjarnaborg - Byggt árið 1900 af Jóni
bónda Grímssyni á Stokkseyri. Húsið er kennt við Bjarna Jónsson formann frá
Magnúsfjósum.
24. Bjarnahús - Byggt árið 1901 af Eiríki
Jónssyni trésmið frá Ási í Holtum. Húsið
er kennt við Bjarna Grímsson er keypti af honum sama ár. [Bjarni flutti til Reykjavíkur 1926] Þá bjó Sigurður Sigurðsson
bóndi á Stokkseyri í Bjarnahúsi og síðan Katrín ekkja hans.
25. Bjarnastaðir - Býlið hét fyrst
Baugakot* en síðar Heiðarhvammur*. 1903-10 var húsið kennt við Bjarna formann
Nikulásson er þar bjó.
26. Björgvin - Byggt árið 1898 og nefndist
þá Eiríkshús. Árið 1903 keyptu Daníel Arnbjörnsson frá Gerðum í Flóa og
Eyjólfur Sigurðsson frá Kalastöðum húsið og nefndu Björgvin.
27. Blómsturvellir - Byggt árið 1910 af
Brynjólfi Gíslasyni frá Þverspyrnu í Ytrihrepp. [Flutti síðar til Rvíkur]
28. Brautarholt - Hét áður Árnatóft* en Kristján Hreinsson breytti
nafninu árið 1903. Síðasti ábúandinn var Helgi Halldórsson til ársins 1911,
síðar Grjótalæk. Fór þá býlið í eiði.
29. Brávellir - Byggt 1911 af Jóni
Þorsteinssyni járnsmið frá Kolsholtshelli og Theódór Jónssyni frá
Álfsstöðum. [Theódór flutti síðar til Rvíkur]
30. Brekkukot - Byggt árið 1907 af
Ingimundi Eiríkssyni frá Haugakoti í Flóa.
31. Brún - Byggt árið 1896 af Magnúsi
Teitssyni hagyrðingi. Samdi hann vísu er hljómar svo: >Þessi heitir bærinn
brún/byggður rétt hjá flóði/fylgir hvorki tröð né tún/telst þar lítill
gróði.< Húsið fór í eiði og var síðar notað sem sumarbústaður.
32. Brynkahús / Traðarhús* - Kennt við
Brynjólf Gunnarson
33. Bræðaraborg I - (Vestari Bæðraborg) Byggt árið 1896 af
bræðrunum Sæmundsonum, Guðmundi kennara og Lénharði söðlasmið.
34. Bræðraborg II - Byggt árið 1899 af
bræðrunum Jóni og Ingimundi Vigfússonum.
35. Búð - Byggt úr gamalli sjóbúð árið 1893
af Sigurði Bjarnasyni áður bónda á Grjótlæk. Hann byggði einig fyrsta húsið á
Sjónarhól og var Búð þá rifin.
36.
Baugakot
/ Baugkot - Byggt 1893 af Bjarna Nikulássyni frá Stokkseyrarseli, áður bónda á Bugum. Árið
1903 skírði hann bæinn Bjarnastaði*,
en eftir 1910 var bærinn nefndur Heiðahvammur*.
09.05.2019 23:36
Húsanöfn á Stokkseyri fyrir 1950 / D-E
1.
Dalbær
- Byggður 1899, þar bjuggu Jón Jónsson og Helga Þorsteinsdóttir úr
Ytrihrepp. Bærinn fór í eiði 1940.
2.
Deild
- Byggð árið 1901 af Jóhanni V Daníelssyni, síðar Kaupmanni á Eyrarbakka.
3.
Djúpidalur
- Byggður árið 1891 af Jónasi íshúsverði Jónassyni frá Ranakoti*. Jónas var
kallaður "drottinn minn" af Stokkseyringum. Nikulás Helgason keypti bæinn og þá
kvað Magnús Teitsson: >Eignast fyrir aura val/ónýtt fúahreysi/Nikulás í
Djúpadal/deyr úr iðjuleysi< En Jónas Flutti að Hellukoti í þurrabúð þar, og
enn kvað Magnús Teitsson: >Ónýtt
brúka orðaval/eru hvor í sínu sloti/Nikulás í Djúpadal/og "drottinn minn" í
Hellukoti.< Nokkrum árum síðar keyptu hjón ofan af Skeiðum bæinn af Nikulási
en urðu að segja sig á sveitina árið 1916 sökum fátæktar. Rifu Skeiðamenn þá
Djúpadal og fluttu hjónin til sín.
4. Eiríksbakki - Byggður 1902 af Eiríki
Magnússyni frá Háfshól í Holtum. [Einn af
Sjónarhólsbæjum og síðar sumarbústaður]
5. Eiríkshús - Byggt árið 1898 af Eiríki
Jónssyni trésmið frá Ási í Holtum. Hann seldi húsið Daníel Arnbjörnssyni og
Eyjólfi Sigurðssyni, en þeir skírðu húsið Björgvin*
09.05.2019 23:33
Húsanöfn á Stokkseyri fyrir 1950 / F-G
1. Fagridalur - Byggður 1912 af Jóni
Þorsteinssyni Járnsmið, áður Garðbæ*
og Brávöllum*
2. Félagshús - Vörugeymsluhúsið mikla er
Grímur í Nesi (Eyrarb.) reisti á Stokkseyri 1893. Það var 36x12 álnir að
flatarmáli og á þrem hæðum, sterklega viðað og þiljað í hólf og gólf. Árið 1896
keypti Björn Kristjánsson og verslunarfélagar hans austurhlutann. Árið 1898
keypti Edinborgarverslunin í Reykjavík hlutinn. 1903 keypti Ólafur kaupmaður
Árnason hlutinn. 1907 Kaupir kaupfélagið Ingólfur hlutinn. Vesturhlutann seldi
Grímur 1895 Stokkseyrarfélaginu (Zöllnersfélaginu), fékk þá húsið þetta nafn.
1914 tekur Kauðfélagið Ingólfur við vesturhlutanum einig. Húsið brann 9-10
desember 1926 í Stokkseyrarbrunanum mikla, svonefndum. Á grunninum var síðar
byggt Hraðfrystihús Stokkseyrar, en þær byggingar brunnu 30. maí 1979. Stuttu
síðar var hafist handa við að endurbyggja hraðfrystihúsið. Hin mikla bygging
gegnir nú hlutverki Menningarverstöðvar og ferðaþjónustu.
3. Folald - Sama og Kumbaravogskot* Þannig
nefndu flóamenn ýmis afbýli, en einnig var til að þau væru nefnd "Kuðungur".
4. Garðbær - Byggður 1886 af Magnúsi
Teitssyni hagyrðing. Bærinn var einn af Beinteigsbæjum. 1891 keypti Jón
Þorsteinsson járnsmiður frá Kolsholtshelli bæinn og bjó þar til 1908 þá er hann
byggði Brávelli* við Garðbæ var
allstórt smiðjuhús og var oft gestkvæmt í smiðjunni, er menn ræddu þar landsins
gagn og gamann, eða sögðu sögur af samferðafólki sínu. Urðu þar til margir
kviðlingar af vörum Magnúsar Teitssonar.
5. Garðhús - Byggð 1890 af Einari
Einarssyni, áður bónda á Buglum.
6. Garðstaðir - Einn af Beinteigsbæjunum, Það
var upphaflega sjóbúð Magnúsar Teitssonar. Þegar hann seldi Garðbæ, 1881 flutti
hann sig í sjóbúðina og gerði hana upp og kallaði Garðstaði. Bjó þar til 1896
er hann byggði Brún*. Jón Eiríkur Jónsson úr Klofa og Halla Sigurðardóttir frá
Beinteig, keyptu þá Garðstaði og byggðu bæinn upp að nýju, en notuðu sjóbúðina
fyrir kindakofa. Síðar var steinhús byggt á lóðinni.
7. Garður - Byggt árið 1941 af Böðvari
Tómassyni útgerðamanni (d.1966). Það er timburhús á steyptum kjallara og
múrhúðað að utan.
8. Geirakot - Upphaflega sjóbúð Sigurðar
Árnasonar í Hafliðakoti, en er kennt við Olgeir Jónsson frá Grímsfjósum,
einsetumanns er bjó þar frá 1920.
9. Gimli - Samkomu og þinghús hreppsins.
Byggt árið 1921 timburhús á steyptum kjallara. Á níunda áratugnum hýsti það
bókasafn, en er nú veitinga og handverkshús í þágu ferðaþjónustu. -
Góðtemplarahús var reist fyrir aldamótin 1900 og stóð fyrir framan Vinaminni* en Grímur í Nesi gaf lóð
undir það. Verkalýðsfélagið Bjarmi keypti húsið og flutti á þessa lóð og var um
tíma aðal samkomuhús staðarins, eða þar til Gimli var byggt vestast á lóðinni.
Verkalýðsfélagið seldi þá húsið Andrési Jónssyni kaupmanni á Eyrarbakka er verslaði
þar um tíma. Jón Adólfsson keypti síðan húsið og verslaði þar einig. Kaupfélag
Árnessinga keypti síðan húsið og hafði þar útibú til margra ára, og síðar í
nýju húsnæði skamt frá, eða þar til félagið verður gjaldþrota árið 2003.
Góðtemplarahúsið var síðar rifið ásamt seinni tíma viðbyggingum.
10. Grímsbær - Byggður 1889 af Njáli
Símonarsyni. Árið 1903 var bærinn skírður upp og hét þá Hólmur*
11. Grímsfjós -
Hjáleiga frá Stokkseyri fyrir árið 1703. Árið 1880 keypti Grímur í Nesi hjáleiguna og tók
hún nafn af því. Hann keypti svo Stokkseyrarjörðina 1889 ásamt Einari Jónssyni
borgara.
12. Grund - Byggð árið 1906 af Gísla
Gíslasyni áður bónda á Bugum.
13. Gústafshús - Kennt við Gústaf Árnason
trésmið (Sjá Ártún II*)
14. Götuhús - Byggð árið 1897 af Sæmundi
Steinsmið Steindórssyni frá Stóru-Sandvík
09.05.2019 23:29
Húsanöfn á Stokkseyri fyrir 1950 / H-K
1. Hafsteinn - Byggður árið 1910 af Hreini
Kristjánssyni, síðar bónda í Símonarhúsum. Hafsteinn var fyrsta steinhúsið sem
fullgert var á Stokkseyri.
2. Hausthús - Einn af Beinteigsbæjum.
Byggð árið 1896 af Runólfi Jónssyni frá Magnúsarfjósum. Jósteinn Kristjánsson
kaupmaður byggði þar sölubúð við.
3. Heiðahvammur - Hét fyrst Baugakot og
svo Bjarnastaðir. Ólafur Guðmundsson ferjumaður frá Sandhólaferju skírði bæinn
Heiðahvamm árið 1910. Síðast bjó þar Júlíus Gíslason frá Ásgautsstöðum, en
flutti að Syðsta-Kekki 1914 og fór Heiðahvammur þá í eiði.
4. Heiði - Þurrabúð frá Brattsholti. Oft
kölluð "Trýni" meðal Stokkseyringa. Þar byggðu árið 1879 hjónin Jón Jónsson og
Hildur Jónsdóttir. Kotið fór í eiði 1896 eftir Tómas Ögmundsson.
5. Helgahús - Kennt við Helga Jónsson
verslunarstjóra í Kf. Ingólfi. Áður kallað Ólafshús*
6. Helgastaðir - Byggt árið 1896 af Helga Pálssyni fyrrum bónda
í Vestra-Stokkseyrarseli.
7. Helluhóll - Þar bjó Erlendur Bjarnason
1802. Kotið hefur verið "kuðungur" frá Hellukoti.
8. Hof - Byggt 1908 af Gísla Sigmundssyni
frá Gerðum í Flóa. Fór í eiði eftir Bjarna Nikulásson 1933.
9. Hólahjáleiga - Þurrabúð frá Hólum. Þar
bjó Guðmundur Ormsson 1703. Einhverníman kallaður "Lokabær" Kotið fór í eiði.
10. Hóll - Hét áður Ölhóll*
11. Hólmur - Hét áður Grímsbær* Jón Guðbrandsson og Guðjón Jónsson, ábúendur skírðu bæinn
upp árið 1903.
12. Hólsbær - Einnig kallaður Hólshjáleiga
eða Norður-Hóll. Byggður árið 1884 af Magnúsi Þorsteinssyni frá Kolsholtshelli.
Fór í eiði eftir Þorkel Halldórsson frá Kalastöðum 1925.
13. Hólshjáleiga - Sjá Hólsbær*
14. Hótel Stokkseyri - Byggt 1943 af
hlutafélagi og stóð að nokkru á grunni Félagshússins, sjá Félagshús*
15. Hraukur - Byggt árið 1824 af Bjarna
Jónssyni bónda á Syðsta-Kekki. Fór í eiði eftir að Erlendur Þorsteinsson flutti
að Símonarhúsum 1842. Árið 1880 byggði Bjarni Nikulásson kotið upp. Kotið fór
aftur í eiði 1925 eftir Sigurð Gíslason á Jaðri er þar bjó síðast.
16. Hryggir - Sjá Nýjibær*
17. Hviða - Þurrabúð sem fór í eiði 1707.
Síðar voru Útgarðar* byggðir á þeim
stað.
18. Hvíld - Fór í eiði árið 1707. Karel
Jónsson bóndi á Ásgautstöðum byggði þar 1876 og hélst nafnið. Fór aftur í eiði
1928.
19. Hvanneyri - Byggt árið 1921 af Guðmundi
Sigurðssyni frá Sjónarhól.
20. Ísólfsskáli - Kenndur við Ísólf Pálsson
tónskáld er byggði hann árið 1899. Ísólfsskáli fór í eiði 1916 eftir Magnús
Gunnarsson kaupmann. (Ísólfsskáli sumarbústaður austast á Stokkseyri)
21. Ívarshús - Byggt 1901 af Ívari Sigurðssyni verslunarmanni. Sjá Sólbakki*
22. Jaðar - Einn af Sjónarhólsbæjum.
Byggður 1905 af Jóni Sigurðssyni frá Jaðri Ytrihrepp.
23. Kalastaðir - Hjáleiga frá Stokkseyri fyrir 1681. Einnig nefnt Kaðlastaðir
og Kaðalstaðir í öðrum heimildum. Hvortveggja nöfnin, eða öll þrjú koma úr Keltnesku. Tvíbýlt var lengi á
Kalastöðum, en nú stendur einn bærinn eftir, 19. aldar hús.
24. Keldnakotshjáleiga - "Kuðungur" frá Keldnakoti fyrir 1769. Þar bjó Jón Jónsson
yngri frá Grjótlæk. Hann var dæmdur 16 ára gamall til hýðingar fyrir að stela
kind úr fjárhúsi Bjarna hreppstjóra Brynjólfssonar á Baugstöðum, en fékk síðar
konunglega uppreisn æru. Árið 1769 var hann enn uppvís að sauðaþjófnaði og var
dæmdur til ævilangrar refsivistar á Arnarhóli í Reykjavík.
25. Kirkjuból - Byggt árið 1894 af Jóni Bjarnasyni söðlasmið frá
Tungufelli.
26. Kjartanshús - Byggt árið 1899 af Kjartani Guðmundssyni frá Björk í Flóa.
27. Klöpp -
Byggð árið 1891 af Oddi Sveinssyni og Kristínu Sigurðardóttur.
28. Knarrarósviti - Reistur árið 1939 á svonefndum Baugstaðakampi. (Nálægt
fornu-Baugstöðum) Vitinn er 25 m hár að meðtöldu ljóskeri. Vitavörður var
lengst af Páll bóndi Guðmundsson á Baugstöðum.
29. Kot -
Stytting úr Kumbaravogskot*
30. Kuðungur - sama og Kumbaravogskot* sama
og Nýju-Gerðar*
31. Kumbaravogskot - Folald eða kuðungur frá Kumbaravogi. Það var í byggðum á
árunum 1830-1837 og bjuggu þar Salgerður Bjarnadóttir og Ásmundur Sveinsson.
09.05.2019 23:27
Húsanöfn á Stokkseyri fyrir 1950/ L-P
1. Lárubúð - Kennd við Láru
Sveinbjörnsdóttur.
2. Laufás -
Byggður 1920 af Karli Guðmundssyni frá Gamla-Hrauni, Jenssonar.
3. Litla-Árnatóft
- Sama og Nýlenda*
4. Litla-Ranakot
- Var folald eða kuðungur frá Ranakoti efra* Var í byggð 1851-1857 Jón Jónsson byggði kotið, en Sveinn blindi
Jónson bjó þar síðar.
5. Lokabær - Einsetumannakot eða þurrabúð í túninu í Hólum* (Líklega sama
og Hólahjáleiga*)
6. Lyngholt - Sumarbústaður fyrir austan Bræðratungu, byggður 1950-51 af
Guðbjörgu Árnadóttur forstöðukonu á Kumbaravogi.
7. Læknishús - Byggt 1898 af Eiríki Jónssyni trésmið frá Ási í Holtum. Hann
seldi það Guðmundi lækni Guðmundssyni (1898-1901). Seinna íbúðar og
verslunarhús Jóns kaupmanns jónssonar. Húsið brann 25. sept. 1929.
8. Merkigarður - Byggður árið 1902 af
Einari Sveinbjörnssyni bónda frá Leiðólfsstöðum.
9. Minni-Bræðraborg
- Sama og Bræðraborg II*
10. Móakot -
Byggt fyrir 1789. Bjó þá þar Brandur Manússon frá Eystri-Rauðhól.
1825-30 bjó þar Guðný jónsdóttir ekkja Jóns Brandssonar yngri frá Roðgúl* 1864
byggði Ólafur Jónsson frá Brattholtshjáleigu kotið að nýju. Það var enn í byggð
1953 og var því elsta þurrabúð á Stokkseyri í ábúð.
11. Móhúsahjáleiga - Sama og Útgarðar*
12. Norður-Hóll - Sama og Hólsbær*
13. Nýborg - Byggð árið 1890 af Sigurði
Jóhannssyni, síðar bónda á Gljúfri í Ölfusi.
14. Nýibær - Byggður árið 1886 af Gísla
Sigurðssyni fyrrum bónda á Syðra-Klekki*
Bærinn var uppnefndur "Hryggir" af Stokkseyringum. Bjuggu þar síðast Jón
Guðbrandsson og Guðný Gísladóttir.
15. Nýikastali - Byggður 1890 af Jóni Magnússyni, áður bónda á Efra-Seli.
16. Nýlenda - Þurrabúð í Traðarholtslandi, uppnefnd "Litla-Árnatóft" og
"Upphleypa" þegar kotið var hækkað upp sökum vatnságangs. Nýlenda var í byggð
fyrir 1888 en þá bjó þar Eiríkur Arnoddsson fyrrum bóndi í Ranakoti efra.
Nýlenda fór í eiði 1907 eftir Sigurð Jónsson er þá fluttist að
Eystri-Rauðarhól.
17. Ólafshús - Byggt 1895 af Ólafi
kaupmanni Árnasyni, var það bæði verslunar og íbúðarhús hans. 1907 Keypti Kf.
Ingólfur húsið og bjó helgi Jónsson verslunarstjóri þar. Þá var húsið kallað Helgahús*. Húsið stóð syðst í
Þingdalnum og sunnan við hann.
18. Ólafsvellir - (Stundum ritað Ólafsvöllur) Byggt árið 1899 af Ólafi
Sæmundssyni frá Húsagarði á Landi.
19. Pálmarshús - Byggt 1911-12 af Pálmari Pálssyni bónda á Stokkseyri. Þorkell
Guðjónsson rafveitustjóri bjó þar mörg ár.
20. Pálsbær - Byggt fyrir 1891. Húsið er kennt við Pál Gíslason Thorarensen
frá Ásgautsstöðum. Bærinn hét í eina tíð Tjörn* en það nafn festist síðar við
annan bæ. Í Pálsbæ bjó eitt sinn orðlagður ræðari, Guðmundur Snorrason frá
Eiði-Sandvík, Bjarnasonar í Eystra-Stokkseyrarseli. Þá fluttur til
Hafnafjarðar, tók hann þátt í kappróðri og réri vík á keppinauta sína. Komst þá
Guðmundur svo að orði "Svona var nú róið á Stokkseyrarsjónum".
21. Pálshús - Byggt árið 1881 af Páli Stefánssyni. Fór í eiði 1931 eftir
Jóhann Jónsson áður bónda á Grjótlæk.
22. Pungur -
Var uppnefni á Stokkseyrarselskoti*
09.05.2019 23:21
Húsanöfn á Stokkseyri, fyrir 1950/ S
1. Sanda -
Byggt löngu fyrir 1823 af Jóni Brandssyni yngri frá Roðgúl og Guðnýju
Jónsdóttur er þar bjuggu þá. Sanda fór í eiði eftir 1825, en byggt upp aftur
árið 1884 af Torfa Nikulássyni frá Eystra Stokkseyrarseli og kallaðist þá
Torfabær, en nafninu var aftur breytt í Söndu árið 1888 svo sem heitir enn í
dag.
2. Sandfell - Byggt árið 1898 af Guðmundi
Guðmundssyni fyrrum bónda á Efra-Seli.
3. Sandgerði - Byggt árið 1893 af Gísla Guðnasyni frá Þverspyrnu í Ytrihrepp
4. Sandprýði - Byggt árið 1898 af Þorkeli
formanni Magnússyni frá Brandshúsum í Flóa. Hann drukknaði á Stokkseyri árið
1889.
5. Sandvík - Byggð árið 1911 af Guðjóni Þorkellssyni frá Gamla-Hrauni.
Fluttist til Reykjavíkur 1927.
6. Sauðagerði - Byggt árið 1899 af Guðna
Jónssyni frá Iðu. Fór í eiði 1934.
7. Selkot - Sama og Stokkseyrarselkot*
8. Setberg - Byggt 1920 af Guðmundi Ólafssyni úr Holtum.
9. Sigurðarhús - Byggt árið 1899 af Eiríki Jónssyni trésmið frá Ási í
Holtum.Jón Adólfsson kaupmaður og Sigurgeir Jónsson verslunarmaður bjuggu þar
fyrst, en húsið er kennt við Sigurð Einarsson verslunarmanns.
10. Símstöð - Sama og Skálafell*
11. Sjóbúð I - Búðin var hjá Söndu* 1896 bjó þar Þuríður Einarsdóttir ekkja
og sonur.
12. Sjóbúð II - Bær sem stóð gegnt Kirkjubóli* og byggð upp af sjóbúð handa
Guðmundi Jónssyni danska og Láru Sveinbjarnardóttur. Bærinn var stundum
uppnefndur Lárubúð* Þar voru síðar fjárhús frá Sandgerði*
13. Sjólyst - Byggð árið 1902 af þeim Þórði Björnssyni frá
Móheiðahvolshjáleigu, en fluttist til Rvíkur 1927 eins og svo margir á þeim
árum, og Sigurði Magnússyni, síðar í Dvergasteinum
14. Sjónarhóll - Bæjarþorp sem reist var um
og eftir aldamótin 1900. Fyrstu tvö húsin voru byggð árið 1897 af þeim Sigurði
Bjarnasyni í Búð og Sigurði Magnússyni frá Háfshól í Holtum, en það þriðja af Halldóri
Magnússyni árið 1899, en hann var bróðir Sigurðar. Síðar bættust þrjú hús við
sem aðgreind voru með nöfnunum: Bakki* Eiríksbakki* og Jaðar*
15. Skálafell - Byggt um 1943 af Axel
Þórðarsyni símstjóra og fyrrum kennara. Einig nefnt Símstöð*
16. Skálavík - Byggt um 1918 af systkynunum Magnúsi Gunnarssyni kaupmanni og
Þuríði Gunnarsdóttur, ekkju Páls í Brattholti Þórðarsonar.
17. Skipagerði - Byggt árið 1901 af Eyjólfi Bjarnasyni frá Símonarhúsum. Árið
1950 er byggt steinhús í Stokkseyrarhverfi með þessu nafni. Það lét
Byggingafélag verkamanna byggja og fluttist Eyjólfur Bjarnason með fjölskyldu
sinni í það.
18. Slóra -
Var einsetukot á Stokkseyrartúni. Saga þess er óþekkt, en síðar var þar
byggt hús nefnt Bjarnahús*
19. Smiðshús - Byggð 1898 af Guðjóni Björnssyni, síðar í Stardal.
20. Sólbakki - Áður Ívarshús* en Karl Fr. Magnússon skýrði húsið upp 1915.
21. Sólskáli - Sumarbústaður byggður fyrir 1930 af Hjálmtý Sigurðssyni.
22. Sólvangur - Byggður árið 1941 af Ásgeir Hraundal
23. Stardalur - Byggður árið 1888 af Guðmundi Bjarnasyni fyrrum bónda
Vestri-Rauðarhól.
Starkaðarhús - Hjáleiga frá Stokkseyri (Mynd)
SS Stíghús - Byggt árið 1899 af Helga Halldórssyni, síðar bónda á Grjótalæk.
25. Stjörnusteinar - Upphaflega
skólastjórabústaður byggður um 1950 af ríkinu.
26. Stokkseyrarselkot - Byggt af Sigurði
Björnssyni, fyrrum bónda frá Efra-Seli. Var í byggð 1869-93 og 1897-1900,
þurrabúð frá Vestara-Stokkseyrarseli, einig nefnt Selkot* eða uppnefnt Pungur*.
Síðast bjó þar Bjarni Bjarnason, síðar bóndi í Indriðakoti undir Eyjafjöllum.
27. Stokkseyri - nefndust einu nafni mörg
hús sem risu smám saman hið næsta Stokkseyrarbæjunum gömlu, 15-20 að tölu sem
fengu sérstök nöfn, en flest hafa horfið úr sögunni. Síðasta húsið sem kallað
var Stokkseyri var verslunar og íbúðarhús Ásgeirs kaupmanns Eiríkssonar er stóð
á sama stað og gamli Stokkseyrarbærinn eystri. Þetta hús brann í
Stokkseyrarbrunanum mikla 1926, en Ásgeir byggði þar nýtt hús eftir brunann.
28. Strönd -
Byggt árið 1896 af þeim svilum Sigurði Hannessyni frá Hjalla og Guðna
Árnasyni Söðlasmið.
29. Stærri-Bræðraborg
- Sama og Bræðraborg I*
30. Sunnuhvoll - Byggður um 1912 af Sigurði Ingimundarsyni kaupmanni. Guðmundur
trésmiður Sigurjónsson frá Gamla-Hrauni og ekkja hans Guðríður Jónsdóttir frá
Túnprýði Hinrikssonar bjuggu þar lengi.
31. Sunnutún - Byggt um 1948 af Þórði
Guðnasyni frá Keldnaholti.
32. Sæból -
Byggt árið 1901 af Þorsteini Ásbjörnssyni trésmið frá Andrésfjósum á
Skeiðum.
33. Sæborg -
Byggð árið 1904 af Ingimundi Guðmundssyni trésmið og bjó hann þar sína
tíð. Húsið var rifið skömmu eftir 1936
34. Sæhvoll - Byggður árið 1935 af
Páli Guðjónssyni bílstjóra.
35. Sætún - Byggt um 1945 af Guðmundi
Valdimarssyni frá Norðurgarði á Skeiðum upp úr elsta Beinteigsbænum. [Var lítið
eitt færður úr stað]
St
09.05.2019 23:06
Húsanöfn á Stokkseyri, fyrir 1950/ T-Ö
1. Tíðaborg - Í byggð 1820-1822. Þar bjó
Jón Brandsson yngri frá Roðgúl, áður bóndi í Ranakoti-efra. Sagt er að byggð
þar hafi laggst af vegna reimleika.
2. Tjarnarkot - Byggt árið 1887 af
Gamalíel Jónssyni frá Oddagörðum. Kotið fór í eiði 1933. Gamalíel var hringjari
í Stokkseyrarkirkju. Hann var stór maður vexti, söngmaður góður og leikari í
eðli sínu og þótti vinsæll. Tvíbýlt var í Tjarnarkoti 1899-1926 og bjuggu þar í
annari þurrabúðinni Guðmundur Vigfússon frá Valdakoti í Flóa og Jóhanna
Guðmundsdóttir í Útgörðum.
3. Tjarnir - Byggðar árið 1899 af
Þorsteini Jónssyni úr Landeyjum. Árið eftir kom Guðmundur Pálsson, einig
Landeyingur og skírði bæinn upp og kallaði Vatnsdal*
4. Tjörn -
Byggð árið 1884 af Ingibjörgu, ekkju sr. Gísla Thorarensen á Ásgautsstöðum
og Páli syni hennar. Seinna var bærinn nefndur Pálsbær* Annar bær var byggður
þar hjá er fékk nafnið Tjörn.
5. Torfabær - Byggður árið 1884 af Torfa
Nikulássyni frá Eystra-Stokkseyrarseli. Þar stóð áður bærinn Sanda* og var það
nafn tekið aftur upp árið 1888.
6. Traðarhús - Einn af Beinteigsbæjum, byggður árið 1891 af Gústaf Árnasyni trésmið
og nefndist bærin þá Ártún* Árið 1898 keypti Brynjólfur Gunnarsson bæinn og
kallaði Traðarhús. Stundum uppnefnt Brynkahús.
7. Trýni - Sama og Heiði* sjá þar.
8. Tún -
Byggt árið 1901 af Jóni Vigfússyni frá Borgarholti. Jón dó 1936 þá
búsettur í Reykjavík, en jarðsettur á Stokkseyri, skammt frá sáluhliði þar sem leiði
hinnar fjölkunnugu Stokkseyrar-Dísu hafði verið. Fram að því höfðu
Stokkseyringar sneitt hjá að grafa lík nærri leiði Stokkseyrar-Dísu sökum
hjátrúar.
9. Túnprýði - Byggt árið 1900 af Jóni Hinrikssyni
formanni frá Ranakoti.
10. Töpp -
Þurrabúð sennilega byggð eftir 1703, en fór í eiði árið 1706. Ekki er
vitað um nánari staðsetningu.
11. Unhóll -
Byggður árið 1898 af Jóni Benediktssyni frá Unhól í Þykkvabæ. Þar stóð
áður sjóbúð Jóns Guðmundssonar frá Gamla-Hrauni. Árið 1901 kom þangað Jón
Gíslason af Þykkvabæ og lét rífa bæinn. Síðan byggði hann þar timburhús í
staðinn.
12. Unukot -
Sama og Auðnukot* - sjá þar
13. Upphleypa - Sama og Nýlenda* - sjá
þar
14. Útgarðar - Byggðir árið 1870 af Guðnýju Kjartansdóttur, ekkju Einars
loftssonar í Ranakoti. Hét fyrst Móhúsarhjáleiga, en síðan um tíma Móhús. Um 1873
nefnt eða uppnefnt "Ölhóll" og síðan "Hóll". Útgarðar voru annað elsta
þurrabúðarbýli sem var í byggð á 20. öld, en hitt var Móakot. Í Útgörðum bjuggu
meðal annars, Guðmundur Steindórsson, Magnús Kristjánsson mormóni og Bárður
Diðriksson.
15. Varmidalur - Hét áður Aftanköld* og
breytti Einar Ólafsson nafninu árið 1900. Bærinn brann í Stokkseyrarbrunanum
mikla árið 1926 og var síðan byggt íbúðarhús þar eftir brunann.
16. Vegamót - Byggt árið 1906 af Gunnari Gunnarssyni frá Byggðarhorni.
17. Vestri-Bræðraborg
- Sama og Bræðraborg I* - sjá þar
18. Vinaminni - Byggt árið 1898 af Jóni Sturlaugssyni hafnsögumanni og
bjargvætti. Nafnið er svo til komið að Jón bauð nakkrum kunningjum til sín í
innfluttningspartý og stakk Ólafur kaupmaður Árnason upp á nafninu til að
minnast þessa vinafundar.
19. Þingdalur - "Íbúðarhús" byggt árið 1907
og bjó þar Edvald Möller verslunarmaður um tíma. Hús þetta var í raun skúr, eða
útbygging áföst áföst við Ólafshús og nefndist síðar Helgahús* -sjá þar. [Þingdalur er gamallt örnefni á
Stokkseyri og var þingstaður hins forna Stokkseyrarhrepps og sér þessari lægð
engann stað framar, þar sem hún var smásaman fyllt upp fyrir húsabyggð. Síðasta
uppfyllingin á dalnum eða lægðinni var þegar Alþýðuhúsið* var byggt.
20. Þóruhús - Byggt fyrir árið 1681 og var í byggð fram um 1703. Bjó þar
Þórunn Jónsdóttir ekkja, ásamt syni sínum Jóni Eyjólfssyni, síðar bónda á
Syðsta-Kekki.
21. Ölhóll -
Sama og Útgarðar*
Heimild: Guðni jónsson magister-Bólstaðir og Búendur í Stokkseyrarhreppi 1952, Sjá einig: http://timarit.is/view_page_init.jsp?pageId=3297622
02.05.2019 22:14
Þurrabúðir á Stokkseyri
1. Beinteigur
- Í eiði fyrir 1880
2. Hvíld
- í eiði fyrir 1880
3. Hviða
- Í eiði fyrir 1880
4. Tröpp
- Í eiði fyrir 1880
5. Þóruhús
- Í eiði fyrir 1708
6. Hólahjáleiga
- Í eiði fyrir 1708
7. Keldnakotshjáleiga
-Örfá ár á 18. öld.
8. Móakot
- Örfá ár á 18. öld, fer aftur í byggð á 19. öld og byggt 3. sinn um miðja 19.
öld
9. Tíðaborg
- í byggð á 19. öld, en í eiði fyrir 1850
10. Sanda
- Í byggð á 19. öld, en í eiði fyrir 1850
11. Hraukur
- Í byggð á 19. öld, en í eiði fyrir 1850 - Byggt öðru sinni eftir miðja 19.
öld.
12. Kumbaravogskot
- Í byggð á 19. öld, en í eiði fyrir 1850
13. Litla-Ranakot
- Í byggð um miðja 19. öld
14. Árnatóft
- Í byggð um miðja 19. öld
15. Heiði
- Í byggð um miðja 19. öld
Alla 19. öldina var íbúatala á Stokkseyri á
bilinu 300-500 manns. Flestir voru Íbúar á Stokkseyri árið 1901 þá 943 en fór
síðan stöðugt fækkandi fram á miðja 20. öld. Íbúatala hefur síðan verið í
jafnvægi u.þ.b. 500 manns.
Heimild: Guðni Jónsson
01.05.2019 23:38
Hjáleigur á Stokkseyri
1. Eystra
(Austara) Íragerði
2. Austur
(Austari) Móhús
3. Baugstaðahjáleiga
4. Bergstaðir
5. Borgarholt
6. Brattholtshjáleiga
7. Brautarholt
8. Breiðamýrarholt
9. Brú
10. Brúarhóll
11. Bræðratunga
12. Baugar
13. Dvergasteinar
14. Efra-Ranakot
15. Eystra
- Stokkseyrarsel
16. Eystri
-Grund
17. Eystri
- Móhús
18. Eystri
- Rauðarhóll
19. Fram-Ranakot
20. Gata
21. Gerðar
22. Gerði
23. Gljákot
24. Grímsfjós
25. Grjótlækur
26. Grund
27. Gömlufjós
28. Heimahjáleiga
29. Hellukot
30. Hólahjáleiga
31. Hóll
32. Holtshjáleiga
33. Hraukhlaða
34. Hraunshlaða
35. Hæringsstaðafjárhús
(Löllukot) (Rögnvalskot)
36. Hæringsstaðahjáleiga
37. Hæringsstaðakot
38. Írgerði
39. Kaðlastaðir
(Kalastaðir)
40. Keldnakot
41. Kotleysa
(Kotsleysa)
42. Kumbaravogur
43. Litla-Gata
44. Litli
- Rauðarhóll
45. Litlu-Móhús
46. Minni-Gata
(Roðgúll)
47. Moshús
48. Norðurhjáleiga
49. Norðurkot
50. Oddagarðar
51. Ranakot
52. Ranakot
Efra
53. Rauðarhóll
54. Símonarhús
55. Snorrakot
56. Sólheimar
57. Starkaðahús
58. Stokkseyrar-Gerðar
59. Stokkseyra-Hóll
60. Stokkseyrarsel
61. Stóra
- Ranakot
62. Stóru
-Móhús
63. Suðurhjáleiga
64. Suðurkot
65. Teitssel
66. Upp-Ranakot
67. Út-Gerðar
68. Vatnsdalur
69. Vestra
- Íragerði
70. Vestra-Stokkseyrarsel
(Vestursel - Ytra Stokkseyrarsel))
71. Vestri-Grund
72. Vestri-Móhús
(Vestur-Móhús)
73. Vestri
- Rauðhóll
74. Þingholt
01.05.2019 23:03
Lögbýli í Stokkseyrarhreppi
Í Landnámabók er getið um 8 jarðir í Stokkseyrarhreppi hinum
síðari, sem byggst hafa á Landnáms og Söguöld: (röð eftir aldri)
I. Stokkseyri - Hásteinn Atlason byggir. Tvíbílisjörð
á 18. öld. Í eigu Jóns Ólafssonar sýslum. og Stokkseyringa og síðar ríkisjörð.
II. Stjörnusteinar -Ölvir Hásteinsson byggir. Í eigu
Stokkseyringa
III.
Traðarholt - Atli Hásteinsson byggir. Tvíbýlisjörð
á 18. öld og í eigu Stokkseyringa
IV.
Baugstaðir - Baugur leysingi. Tvíbýlisjörð frá
1775. Skálholtveldi eignast jörðina 1270-1788
V.
Brattsholt - Brattur leysingi -Jörðin í eigu
Stokkseyringa.
VI.
Leiðólfsstaðir - Leiðólfur leysingi. Jörðin féll
síðar undir Skálholtveldi til 1788
VII.
Ásgautsstaðir - Ásgautur leysingi. Í eigu Jóns
Ólafssonar sýslum. og Stokkseyringa.
VIII.
Hæringsstaðir - Hæringur Þorgrímsson frá Traðarholti byggir
árið 970. Skálholtsveldi eignast jörðina og heldur til 1788
Yngri lögbýli 10-12 öld
1. Skipar
- Féllu undir Skálholtveldi til 1788
2. Hólar.
Tvíbýlisjörð. Jörðin féll síðar undir Skálholtsveldi til 1788
3. Holt.
Jörðin í eigu Stokkseyringa.
4. Tóftar
- Skálholtsveldi eignast jörðina 1550 og heldur til 1788
5. Kökkur
- Síðar Efri Kökkur og Syðri Kökkur (Brautartunga)
Kakkarhjáleiga (Hoftún)
6. Sel
- Síðar Efra Sel og Syðra Sel. Stokkseyrarkirkja eignast jarðirnar, en síðan
ríkið.
- 1