Blog records: 2017 N/A Blog|Month_12
03.12.2017 20:39
Sú var tíðin, 1958
Ríkinu var heimilað að selja Eyrarbakkahreppi lönd jarðanna Einarshafnar, Skúmstaða og Stóru-Háeyrar. Reykvískir vörubílstjórar áttu nokkra hagsmuni gegn þessu, vegna vikurnámsins í Eyrarbakkafjörum.
Útgerð: Tveir bátar gerðir út héðan á vetrarvertíð "Helgi"og "Jóhann Þorkelsson" [sá þriðji frá Þorlákshöfn.] Aflinn var 579 lestir 104 róðrum og var Jóhann Þorkelsson aflahærri með 315 lestir í 59 veiðiferðum. Fjórir bátar voru gerðir út á humarvertíðinni. Helgi, Ægir, Faxi og Friðrik. Við humarvinnsluna störfuðu 30-40 manns, einkum konur og börn.
Atvinna: Við Plastiðjuna störfuðu 15 manns og unnu 8 þeirra í vöktum í kjallara frá kl. 7.30 til kl. 6 og síðari vaktin til kl. 3.30 um nóttina. Nokkrir höfðu vinnu við símalagnir og raflagnir og allmargir störfuðu við virkjanaframkvmdir í Soginu. Frystihúsið veitti allnokkrum vinnu þegar afli barst á land. Litla-Hraun örfáum og allmargir tímabundið við landbúnað, útgerð, hafnarbætur og viðhald á bátum í slippnum. Nokkrir sjálfstætt starfandi vörubifreiðastjórar, aðrir við kennslu, verslun og opinber störf.
Stjórnmál: Sveitastjórnarkosningar voru á árinu og voru eftirtaldir í framboði á Eyrarbakka:
Fyrir Sjálfstæðisflokkinn voru 7
efstu, Sigurður Kristjánsson kaupmaður, Bjarni Jóhannsson skipstjóri, Bragi
Ólafsson héraðslæknir, Hörður Thorarensen sjómaður, Eiríkur Guðmundsson trésmiður,
Jóhann Jóhannsson bifreiðastjóri og Ásmundur Eiríksson bóndi. Alþýðu og
Framsóknarflokkur buðu fram sameiginlegan A-lista þannig skipaðann efstu 7
mönnum, Vigfús Jónsson oddviti, Sigurður Ingvarsson bílstjóri, Þórarinn
Guðmundsson bóndi, Ólafur Guðjónsson bílstjóri, Ragnar Böðvarsson verkamaður,
Magnús Magnússon framkv.stj. og Vilhjálmur Einarsson bóndi. Á Eyrarbakka voru
311 á kjörskrá og kusu 262. A-listinn fékk 5 menn kjörna og D-listi 2 menn. [Bjarni Jóa og Bragi læknir settust í
hreppsnefnd fyrir D-listann, en mikið var um að kjósendur breyttu röðun]
Félagsmál: "Fundur í Verkamannafélaginu Báran á Eyrarbakka, 5. okt
1958 lýsti fyllsta trausti á framkvæmd ríkisstjórnarinnar við útfærslu
fiskveiðitakmarkanna í 12 milur. Jafnframt fordæmdi fundurinn framkomu Breta,
sem einir allra þjóða höfðu sýnt málinu verulegan mótþróa með hernaðaraðgerðum
í íslenzkri landhelgi.
Afmæli:
90. Ólöf A. Gunnarsdóttir,
Simbakoti/Vinaminni, [Ólöf náði 101 árs
aldri og var heiðursborgari- Ólöf
í Simbakoti ]
80. Böðvar Friðrikson, Einarshöfn. [Pabbi Ragnars, Reynis, Fríðu, Óskars, Lilju og Guðlaugu Böðvarsbarna] Elísabet Jónsdóttir. [alþingismanns Þórðarsonar Eyvindarmúla Ísmús] Guðný Jónsdóttir, Simbakoti. bjó í Rvík. Guðríður Jónsdóttir, Einarshúsi. [Kona Diðriks Diðrikssonar sama stað]
70 Ágústa Ebenesardóttir, Deild. [Maður hennar var Sigurður Daníelsson gullsmiður sama stað] Jón Axel Pétursson Rvík. Kristín Vilhjálmsdóttir, Blómsturvöllum. Ólafur Helgason, Túnbergi. [Pálssonar og Önnu Diðriksdóttur Jónssonar. -Hreppstjóri og kaupmaður í Ólabúð] Sigurveig Magnúsdóttir, bjó í Rvík. Sigurður Jónsson, Steinsbæ. [Skósmiður og trésmiður. Kona hans var Regína Jakopsdóttir] Þorleifur Guðmundsson, Simbakoti. Þorleifur Halldórsson, Einkofa. [Kona hans var Ágústa Þórðardóttir- brýnsteinn Þorvaldar ] Þuríður Björnsdóttir, Einarshúsi. [Maður hennar var Sæmundur Jónsson].
60. Elínborg Kristjánsdóttir, [Var
á sínum tíma formaður kvennfélagsins og menningarfrömuður í þorpinu. bjó síðast
í Rvík]. Finnbogi Sigurðsson,
Suðurgötu [Sýsluskrifari, bjó síðast
í Rvík.] Gíslí Ólafsson bakari,
bjó í Rvík. [Árnasonar og Guðrúnar Gísladóttur
Einarshöfn/ áður Gamla-hrauni-bróðir Sigurjóns myndhöggvara] Halldóra Ágústa Jóhannesdóttir, Brennu.
[Fósturdóttir Þórdísar Símonardóttir
ljósmóður.] Marel Ó Þórarinsson,
[ Kona hans var Sigríður Gunnarsdóttir Prestshúsi. Runólfur Jóhannsson skipasmiður frá Gamla-Hrauni. [Guðmundssonar formanns og Guðrúnar
Runólfsdóttur mbl
]
50. Ármann Guðmundsson, Vorhúsum. [garðyrkjubóndi.] Guðmundur Einarsson, Ásheimum. [Trésmiður Þorgrímssonar og Guðrúnar Magnúsdóttur, Götuhúsum.] Jón Guðjónsson, Litlu-Háeyri. [bóndi, Jónssonar og Jóhönnu Jónsdóttur frá Minna-Núpi] Lára Halldórsdóttir, Eimu. [Þorvaldssonar og Guðrúnu Á Guðmundssonar frá Bryggju í Biskupstungum.] Sigurjón Ólafsson myndhöggvari frá Einarshöfn. [[Árnasonar, Eiríkssonar frá Þórðarkoti og Guðrúnar Gísladóttur Einarshöfn/ áður Gamla-hrauni, -bróðir Gísla bakara Rvík.] Sigurbjörg Bergþórsdóttir, Grímstöðum. [Jónssyni og Sigríði Guðmundsdóttur] .
Andlát: Anna Þórðardóttir, Borg (f.1870). Gróa Gestsdóttir, Eyvakoti (f.1874). Guðrún Gísladóttir frá Einarshöfn /Gamla-Hrauni. [Andréssonar, Gíslasonar í Stóru Sandvík. Börn hennar og Ólafs Árnasonar voru: Magnea, Árni, Gísli, Sigurjón myndhöggvari, Sigríður og Guðni. abl. ] Guðrún Ásmundsdóttir, Gunnarshólma (f.1893). Haraldur Guðmundsson, Stóru-Háeyri, bjó í Merkisteini en síðar í Rvík. [f.1888 sonur Sigríðar Þorleifsdóttur og Guðmundar Ísleifssonar formanns og kaupmanns. Önnur börn þeirra voru Guðbjörg, Guðmundur, Þorleifur, Sylvía, Geir, Sólveig og Elín ] Jónína Guðmundsdóttir.
Ólöf Andrésdóttir frá Litlu-Háeyri [f.1868 dóttir Andrésar Ásgrímssonar Eyjólfssonar og Guðbjargar Árnadóttur. Andrés giftist síðar Málfríði Þorleifsdóttur ríka á Stóru-Háeyri. Málfríður giftist síðar Jóni Sveinbjörnssyni á Bíldsfelli. Ólöf giftist Guðna Jónssyni verslunarmanni við Lefolii verslun. Ólöf átti barn fyrir með Sveinbirni, bróður Jóns á Bíldsfelli, sá hét Andrés, hafnsögumaður í Rvík, hann dó barnlaus. Börn Ólafar og Guðna voru, Elín og Þórdís] Sigríður Hannesdóttir, Sandprýði. (f.1892) [Maður hennar var Þorbergur Guðmundsson. Börn þeirra voru Hannes, Elín, Bergþóra, Gunnar og Ólöf] Sigríður Loftsdóttir, Ásgarði (f. 1895) [Kona Júlíusar Ingvarssonar] Valgerður Grímsdóttir, Óseyrarnesi [Gíslasonar, Þorgilssonar og Elínar Bjarnadóttur Hannessonar. Maður hennar var Gísli Gíslason skósmiður, Skúmstöðum. Fluttu til Rvíkur.]
Hjónaefni:
Vilborg Vilbergsdóttir, Helgafelli og Magnús G Ellertz búfræðingur.
Halldóra Ævarr, Vatnagarði og Karl Ó Ólsen. Viðar Ingi Guðmundsson og Auður Haraldsd. frá Akureyri.
Sandkorn:
- Álfhildur Bentsdóttir. 3 ára vann píanó á DAS miða keyptum á Eyrarbakka. Umboðsmaður DAS á Eyrarbakka var Sigurður Andersen.
- 4 ára drengur féll í sjóinn af Vesturbúðarbryggjunni, Bjargað með snarræði og lífgaður við í fjörunni. [tm]
- Kvenfélagið Á Eyrarbakka 70 ára.
- Árnesingafélagið kaupir píanóið úr Húsinu, en það var úr búi Guðmundar Thorgrímsen.
- "Hringur" foli Steins Einarssonar gerir það gott í kappreiðum fáks. 1. sæti í stökki.
- Eyrbekkingafélagið kom í gróðursetningaferð.
- Frystihúsið setur upp matvörubúð með kjöt, fisk og
nýlenduvörum. [ Fyrir voru útibú KÁ,
Laugabúð og Ólabúð]
- Eldur kviknaði í fangaklefa á Litla-Hrauni. Fangi
kveikti í dýnu. Fangastrok voru tíð.
- Eldur var laus í Beinamjölsverksmiðjunni. Orsök
talin sjálfsíkveikja í mjöli. Töluverðar skemdir urðu á húsinu.
- Plastiðjan framleiddi 300 fm af 2"
einangrunarplasti á dag og hafði hvergi undan eftirspurn eftir þessu nýja
einangrunarefni til húsbygginga.
- Því var spáð að árið 2000 yrði stór-Eyrarbakka og
Ölfussvæðið með 22.000 íbúa.
- Elsa Sigfúss og Páll Ísólfs héldu tónleika í troðfullri
Eyrarbakkakirkju. [Sigfús Einarsson
faðir Elsu og tónskáld var fæddur á Eyrarbakka, Jónssonar kaupmanns í
Einarshúsi. Sigfús samdi meðal annars lagið "Á Sprengisandi" Móðir Elsu
var Valborg Einarsson söngkona]
- Guðni Jónsson gaf út bók sína "Saga Hraunshverfis"
- Óskar Magnússon, var formaður Ungmennafélags Eyrarbakka.
- Guðmundur Danílesson var skólastjóri barnaskólanns, nemendur voru 70.
- Í fjósinu á Litla-Hrauni voru 30 mjólkandi kýr.
Heimild:
Alþýðubl. Gardur.is, Morgunbl. Tíminn, Vísir, Þjóðviljinn, Ægir.
- 1