04.01.2011 00:21

Bakkakonur-Ingileif

Ingileif Eyjólfsdóttir/Mynd Jóhann ÞórIngileif Eyjólfsdóttir f. 15.10. 1885 kom á Bakkann árið 1907 er hún gerðist bústýra hjá Ágústínusi vagnstjóra (Kallaður Ágúst) Daníelssyni í Steinskoti sem þá var hjáleiga frá Háeyri í tíð Guðmundar Ísleifssonar. Þau giftust síðar. Hún segir svo frá flóðinu mikla 1925:

Í febrúar 1925 gerði feykilega hafátt og varð svo mikið flóð að sjórinn gekk óbrotinn inn í Hópið og upp á glugga í Steinskoti og allt í kríngum bæinn. Það braut á bænum eins og skeri í hafinu, og svo mikið var sædrifið að ekki sást til barnaskólanns. Stórgrýtið úr sjógarðinum dreifðist um öll tún og girðingar eiðilögðust. Símastaur sem lá suður í kampi flaut upp í hraun. Um þetta orti einn drengur í barnaskólanum vísu sem er svona:

 


Nú er dapurt drengjum hjá,

dimmt að vaka sjónum á.

Nú er hríðin næsta dimm
1925.

Heimild: Guðmundur Daníelsson- Þjóð í önn 1965

Flettingar í dag: 144
Gestir í dag: 11
Flettingar í gær: 2255
Gestir í gær: 33
Samtals flettingar: 505138
Samtals gestir: 48643
Tölur uppfærðar: 8.7.2025 08:33:00