26.05.2025 22:47
Síðasta humarvertíðin
![]() |
Humarveiðar á Eyrarbakka hófust formlega til útflutnings árið 1954. Á þeim tíma varð humarinn mikilvægur fyrir Eyrarbakka, eins og síldin var áður fyrr fyrir Siglufjörð, og var honum jafnvel lýst sem slíkum í Morgunblaðinu 29. ágúst 1954, þar sem einnig birtist ljósmynd af humri til að kynna hann fyrir landsmönnum. Íslenski humarinn, sem kallast leturhumar (fræðinafn: Nephrops norvegicus), er minni en aðrar humartegundir og verður að jafnaði 16–18 cm að lengd. Humar er afar verðmæt sjavarafurð. Eyrarbakki var upphaflega mikilvægur staður fyrir humarveiðar, en í dag eru Þorlákshöfn og Höfn í Hornafirði helstu miðstöðvar humarveiða á Íslandi. Veitingastaðurinn Rauða Húsið á Eyrarbakka, sem er þekktur fyrir sjávarrétti, fær megnið af sínum humri frá Þorlákshöfn. Humarveiðar á Eyrarbakka tengjast sögulega sterkri sjávarútvegsmenningu þorpsins, sem var eitt sinn helsti verslunar- og hafnarstaður Suðurlands. Hins vegar dró úr útgerð á Eyrarbakka, m.a. vegna hafnleysis, og humarveiðar færðust smám saman annað. Á árunum 1957 til 1960 stunduðu að jafnaði 3-5 bátar humarveiðar á Eyrarbakka og svipaður fjöldi á Stokkseyri og Þorlákshöfn. Að öllu jöfnu síðan 2-3 bátar, en mesti humaraflinn var árið 1963 á landsvísu 6000 tonn en síðan þá hefur humarafli farið stöðugt minnkandi. Árið 2021 aðeins 110 tonn.
Síðasta humarvertíðin þar sem aflinn var unnin á Eyrarbakka var hjá Bakkafisk árið 1991 og skaffaði 20- 30 manns einkum konum atvinnu og þá helst skólafólki, en í heldina unnu um 70 manns hjá fyrirtækinu við hefðbundna fiskvinnslu. Það voru bræðurnir Hjörleifur og Magnús Bryjólfssynir eigendur Stakkavíkur sem stofnuðu það fyrirtæki sem lauk með gjaldþroti beggja fyrirtækjanna. Einkum var það fortiðarvandi Hraðfrystihús HE og óþol lánadrottna sem dró fyrirtækin í gjaldþrot. Þannig hurfu aflaheimildir tveggja skipa burt úr bænum, Stakkvavíkur og Freys. Hreppurinn samdi síðar við Ísfold hf. um yfirtöku fiskvinnsluhúsanna en fyrirtækið stundaði einkum loðnufrystingu og vinnslu á markaðsfiski, en gerði ekki út báta.
Heimild: https://timarit.is/page/3538578#page/n10/mode/2up https://sunnanpost.blogspot.com/1992/11/eyrarbakki-margur-atvinnulaus. html?m=0
https://raudahusid.is/skemmtilegar-stadreyndir/humarveidar-a-islandi/
https://timarit.is/page/4868162#page/n6/mode/2up https://brim.123.is/blog/2017/11/19/772054/
https://eyrbekkingur.blogspot.com/2011/03/eyrarbakka-annall.html?m=1
http://www.aflafrettir.is/frettir/grein/arid-2021-versta-humarveidi-i-yfir-80-ar-/7372