Gústi greiskinn
Saga þessi er eftir Sigurð Andersen fyrrum símstöðvarstjóra á Eyrarbakka.
Þetta er saga af manni.
Maður þessi var silalegur í gangi og hjó ölduna í hverju spori með derhúfu á höfði svo kallaðan sixpensara sem flestir báru í þá daga nema þeir sem báru hatt en það gerðu víst aðeins heldri menn.
Það var sérstakt lag á húfuderinu sem hann lét slúta niður á vinstra gagnaugað og ef svo bar undir að hann fengi nýja þá hnoðaði hann húfuna þar til rétta lagið var komið á hana.
Hann var aldrei kallaður annað en Gústi greiskinn og því var fleigt að hann hafi verið sendur til höfuðstaðarins og verið þar í reiðileysi á velmerktardögum Hriflu-Jónasar. Hafi hann sent Gústa á Littla-Hraun þegar nóg rými var í fangelsinu, líklega fyrir orð hreppstjórans í sveitinni þaðan er Gústi átti uppruna sinn.
Víst er að ef angur var í karli lagði hann þannig orð til hreppstjórans.
''Hann stal frá mér kærustunni bölvað beinið'' kvað þá stundum við en ekki lét hann sér ljótari orð en þessi um munn fara.
Gústi greiskinn var eitt af olnbogabörnum samfélagsins og þótt hann hafi aldrei brotið af sér svo vitað væri þá var honum komið fyrir á Litla-Hrauni innan um aðra afbrotamenn. Upphaflega til bráðabirgða en dagaði síðan uppi og gerðist mjólkurpóstur á setrinu, en þar var stundaður nokkur búskapur í þá tíð. Gústi ók skröltandi handvagni sínum í gegnum þorpið og færði viðskiptavinum ríkisins sína daglegu mjólk hvernig sem viðraði. Stórhríð og grimmdar frost öftruðu honum hvergi í þessum efnum.
Gústi samdi sínar egin umferðareglur. Það var nefnilega ekki sama hvernig menn mættu Gústa. Þegar einhverjum varð á að fara öfugu meginn við hann þá spretti hann úr spori til að leiðrétta ruglinginn. Verra var við bílana að eiga. Þó var bót í máli að þeir fóru hægar í þádaga og skröltu hávaðasamir eftir holóttum veginum. Þannig gat Gústi oft séð í tíma hvert stefndi og hlaupið yfir götuna ef svo stóð á en fyrir kom að hann þurfti að setja kerruna þvert á veginn til að stöðva umferð svo hann kæmist réttu meginn við bílanna. Aldrei hlaust þó slys af þessari sérvisku hans því bílstjórar höfðu varann á ef karlinn var frammundan. Flestir Eyrbekkingar lærðu fljótt hinar ófrávíkjanlegu umferðareglur Gústa og fáir gerðust svo framir að brjóta þær vísvitandi.
Annað sem var sérkennilegt í háttum Gústa var stappið. Stigi hann ekki rétt á einhvern blett á götunni varð hann að stappa eða þjappa staðinn oft góða stund. Fór hann þá afturábak og áfram sitt á hvað þar til rétt var stigið.
Það var undantekning að hann færi inn á heimili fólks. Gamla bakaríið var eitt þeirra, en þangað kom hann oftast daglega. Stundum bæði kvölds og morgna. Var þá eldhúshurðin opnuð hægt og rólega. Gústi gægðist inn og skaust í hornið sitt við dyrnar og stóð þar þögull, átti hann þó til að hlæja kumrandi inn í sjálfan sig og segja síðan afsakandi ''Það var ekkert greiskinnið''.Oftast þáði hann mola kaffi en meðlæti ekki drakk það svart og helst brennheitt og vakti það oft furðu hversu heitt hann gat drukkið kaffið.
Bæri svo við að verið væri að sjóða hrossabjúgu þá gerði hann sig blíðan í rómi og spurði húsfrúna,''Ertu að elda grjúpán gæskan?" - "Já viltu bita Gústi minn?" spurði húsfrúinn og Gústi þáði það og um varir hans lék dularfullt bros sem minnti á Mónu Lísu.
Við eldhúsborðið settist hann aðeins þegar tefld var skák, en eftir því sóttist hann á kvödin. Gústi setti þó sínar eigin reglur og eftir þeim urðu allir að fara. Hann lék alltaf svörtu mönnunum og fyrstu þrjá leikina í röð. Síðan mátti andstæðingurinn leika næstu þrjá, svo var frammhaldið frjálst. En lokaskákina varð hann alltaf að vinna, undan því varð ekki vikist.
Færi svo að andstæðingurinn ynni af honum drottninguna þá kvað hann jafnan við "Þú stalst frá mér frúnni greiskinnið, það máttirðu ekki gera greiskinnið".
Að taflmensku lokinni hélt hann heim á Hælið eins og hann kallaði það en hét opinberlega Vinnu-hælið á Litla-Hrauni. Almenningur kallaði það Letigarðinn en öldungarnir í þorpinu kölluðu það hinsvegar Fælu.
Þar var upphaflega fjárrétt Bakkamanna og þótti reimt á þeim stað. Síðar var byggð þar þurrabúð af margdæmdum sakamanni. Nokkuð táknrænt fyrir staðinn nú. Sakamaður þessi hafði víða flækst og þótti hirðusamur á eigur annara. Hann dó á Fælu á 45. afmælisdegi sínum árið 1865.
En aftur að Gústa. Hann átti heimatilbúið ökuskirteini sem hann var hreikinn af og aðeins útvaldir fengu að sjá. Gústi var oft að slæpast úti á Bakka á kvöldin og sniglast í kringum samkomur sem algengar voru í þádaga og iðuglega var hann að sníkja sér sígarettur. Á seinni árum voru fangarnir farnir að láta hann færa sér fenginn með hótunum og var einn þeirra sínu verstur í þessum efnum, hejarmenni að burðum en hafði þó ekki pláss fyrir neina góðmennsku þó kroppurinn væri stór.
Hann gekk eitt sinn svo í skrokk á Gústa að stór sá á, en Gústi gerði gott úr öllu og sagði við fólk,
"Það var mér að kenna,hann fékk ekki nógar sigarettur greiskinnið.
Gústi var kattþrifinn alltaf vel rakaður og þveginn. Fengi hann nýja flík var hann alltaf að dusta hana og strjúka til að vekja á sér athygli, brosleitur og ánægður með sjálfan sig.
Á helgum dögum bjó hann sig í sparifötinn og setti á sig hálsbindi og spókaði sig á Bakkanum.
þeir sem töldu sig umkomnir að sétja sig á háann hest gagnvart Gústa, riðu honum ekki alltaf feitum frá þeim viðskiptum. Hann kunni að svara fyrir sig, óvænt og meinlega. Enginn var kjarnyrtari en Gústi þegar svo bar við. En innan stundar stytti upp og sólin skein á ný. Þá brosti Gústi, klappaði á öxl og baðst fyrirgefningar.
Í ársbyrjun 1955 var farið að draga af Gústa. Hann hætti að koma út á Bakka og var sagður lasinn.
Svo rann upp mánudagurinn 24. janúar. Það hafði verið ólund í veðrinu eins og svo oft á þessum árstíma. Að kvöldi þess dags vissu vist fáir út á Bakka hvað Gústa leið. Margir voru uppteknir af því að taka á móti fyrstu fimm færeyingunum af þeim fjórtán sem sem koma áttu til að fullmanna fiskibáta Eyrbekkinga. Það var fyrst tveim dögum síðar að fréttist að Gústi sem þá var kominn á sextugs aldur hefði dáið á Lítla Hrauni þetta kvöld, útför hanns var gerð frá Eyrarbakkakirkju laugardaginn 29.janúar.
Stóðu presthjónin að erfisdrykkju fyrir líkmenn og nákomna. Hann var grafinn í Eyrarbakkakirkjugarði skammt innan sáluhliðs. Á 111 afmælisdegi Gústa lét Árni Valdimarson menningarfrömuður á Eyrarbakka reisa honum veglegan legstein.
Allir Eyrbekkingar sem lifðu á þessum tíma þekktu til Gústa og þeir vissu eins örugglega og að nótt fylgir degi að þannig var eins víst að þeir mundu sjá Gústa aka mjólkurbrúsum sínum í litlu kerrunni sinni á hverjum morgni þau 20 ár sem hann þjónaði sem mjólkurpóstur.
Gústi greiskinn hét réttu nafni Ágúst Jónsson og var hann frá Torfastöðum í Fljótshlíð og líklega sérstæðasti persónuleiki þorpsins á sinni tíð. Maðurinn sem batt suma bagga sína öðrum hnútum en fjöldinn en gengdi þó ávalt skildu sinni tryggur og trúr verkamaður sem aldrei varð misdægurt fyrr en undir það síðasta.
Þó að fjallahringurinn sé jafn blár og áður og ströndin jafn klettótt og brimið jafn tilkomumikið þá hvarf eitthvað með Gústa, þessi undarlegi blær, skröltið í vagninum hans Gústa var hljóðnað.