Færslur: 2015 Nóvember
08.11.2015 22:20
Skip Þorleifs ferst
Þorleifur Kolbeinsson kaupmaður á Háeyri átti skip, sexæring eins og flest
þau skip sem gerð voru út á Eyrarbakka á þessari tíð. Þessi skip voru á ýmsan
hátt hentugri hér við ströndina en hinir stóru tólfæringar sem hér einig
þekktust. Sexæringarnir voru léttari til uppdráttar í sandinn eftir veiðiferð
og léttari til róðrar. Það þurfti aðeins 7 menn í áhöfn, eða helmingi færri en
á tólfæring. Sexæringarnir voru notaðir allt árið þegar veður var gott og sjór
stiltur. Helstu ókostirnir voru þó þeir að þessi skip vörðust ekki eins vel sjó
og tólfæringarnir þegar eitthvað gerði að veðri.
Á skipi Þorleifs var formaður Magnús Ingvarsson, en hann byrjaði ungur formennsku á Eyrarbakka og var formaður fram á elliár. Var hann með fremstu formönnum á Bakkanum, aflasæll, aðgætinin og vaskur í öllum verkum.
Skömmu fyrir skírdag á vetrarvertíðinni 1870 sendi Þorleifur formann sinn, Magnús Ingvarsson til Reykjavíkur að versla nokkuð smáræði til útgerðarinnar, öngla og þessháttar og aukinheldur eitt og annað sem búðinni vanhagaði um [kaffi og sykur eða brennivínskút að einhverjir töldu, en Guðni Jónsson sagnfræðingur frá Gamla-Hrauni dró það þó vínkaupin í efa.]. Á meðan Magnús var í þessum erindum vestur fyrir fjall var háseti nokkur, Sveinn Arason í Simbakoti settur formaður. Sveinn var þó óvanur skipstjórn en þótti djarfur og áræðinn og því líklega vel til þess fallinn að taka við stjórn að mati Þorleifs. Á meðan á útilegunni stóð hafði brim tekið sig upp en Sveinn lagði á sundið, þrátt fyrir brimhroðann. Það hefur ef til vill vakað fyrir Sveini að sanna sig sem formanns, ekki bara fyrir Þorleifi heldur og öðrum formönnum á Bakkanum og ekki síst Magnúsi, um að hann væri enginn veifiskati og full klár að sigla brimsundin. Svo óheppilega vildi þó til að skipinu hlekktist illa á í brimgarðinum og fórst það með allri áhöfn, en þeir voru auk Sveins, Ólafur Björgólfsson (46) Sölkutóft, Jón Árnason (18) frá Þórðarkoti, Oddur Snorrason (48) í Einkofa, Sigmundur Teitsson (31) Litlu-Háeyri og Jón Guðmundsson (59) Litlu-Háeyri. Önnur Bakkaskip leituðu þrautalendingar í Þorlákshöfn þennan dag. Að öllum líkindum hafði áhöfn Sveins misst undan árum í brimhroðanum og skipið fallið flatt og hvolft.
Þorleifur var þó ekki af baki dottinn, því strax eftir páskana útvegaði hann annað skip handa Magnúsi Ingvarssyni og nýja áhöfn.
- 1