Færslur: 2015 Júní
21.06.2015 17:07
Jónsmessuhátíðin, miðsumarhátíð Eyrbekkinga
18.06.2015 20:12
Sú var tíðin, 1949
Íbúatala þorpsins var í ársbyrjun 542 íbúar, eða 14 fleiri en árið áður.
Helstu atvinnuvegir þorpsbúa voru allmikill landbúnaður, sjávarúvegur, verslun
og þjónusta og dálitill iðnaður. Allnokkur kúabú voru á Eyrarbakka og nánasta
umhverfi, svo sem á Gamla-Hrauni, Litla-Hrauni, Smiðshúsum, Litlu Háeyri,
Gunnarshúsi, Traðarhúsum, Einarshöfn og Sólvangi. Mun fleiri stunduðu
sauðfjárbúskap og eða hrossarækt. Hænur voru víða við hús og hunda eða ketti
áttu margir. Stórtæka garðyrkju stunduðu nokkrir aðilar. Kartöflu og
gulrófnagarðar voru víðast þar sem hægt var að koma fyrir. Af lax, sel og
grásleppuveiðum höfðu fáeinir mismikil búdrýgindi. Fiskvinnslan var helsta
atvinnutækifæri ungs fólks, en vinnan þó ætíð stopul vegna misjafnra gæfta.
Hreppnum var stjórnað af Alþýðuflokksmönnum er höfðu hreinan meirihluta.
Útgerð: Frá Eyrarbakka, Stokkseyri og Þorlákshöfn
voru gerðir út samt. 16 bátar. Af þeim voru 4 Bakkabátar. Lítt var róið á
vertíðinni fram í apríl sökum stöðugs brims og ógæfta. [Nú var á döfinni frumvarp fyrir Alþingi um stofnun hlutatryggingasjóðs
til að bæta útgerðum og skipshöfnum tjón vegna aflabrests.] Til
lendingarbóta fengu Eyrarbakki og Stokkseyri 35.000 kr. hvort.
Eyrarbakkahreppur nýtti féð til stækkunar á ytri bátabryggjunni
[Einarshafnarbryggju, en þar var dýpi 2 m á stórstraumsfjöru]. Síldartorfur
gengu hér með ströndum fram að áliðnu hausti og síldarbátar hvaðanæfa að eltu
hana um allann sjó. Sum síldarskipin lögðu aflann upp í Þorlákshöfn, en önnur í
Grindavík og Sandgerði.
Verkalýðsmál: Báran á Eyrarbakka hélt aðalfund sinn 3. febr. og þar var eftirfarandi tillaga samþykkt: "Aðalfundur Verklýðsfélagsins "Báran", Eyrarbakka, haldinn 3. febr. 1949, mótmælir eindregið, vegna sívaxandi dýrtíðar, lögfestingu vísitölunnar [Hin svonefndu "Kaupránslög"frá 1947] og skorar á Alþingi það er nú situr, að samþykkja framkomið frumvarp þeirra Sigurðar Guðnasonar og Hermanns Guðmundssonar um það efni". [Afnámi kaupránslaganna] Eftirtaldir kosnir í stjórn: Kristján Guðmundsson formaður, Jóhann Jóhannsson varaformaður, Guðlaugur Eggertsson ritari, Jón Guðjónsson gjaldkeri og Gestur Sigfússon meðstjórnandi. Í júní samdi Báran um kauphækkun í almennri dagvinnu úr kr. 2,80 í kr. 3,08 á klst. Félagsdómur dæmdi Vlf. Þór á Selfossi til að veita 6 mönnum inngöngu í félagið, þeim er félagið hafði áður hafnað um inngöngu. Á næsta aðalfundi var Einar Jónsson kosinn formaður Vlf. Þórs.
Pólitík: Þjóðvarnarfélagið hélt einn fund á
Eyrarbakka og voru ræðumenn: Klemens Tryggvason
hagfr., dr. Matthías Jónasson og Ólafur Halldórsson. Fundarstjóri var Vigfús
Jónsson oddv. Á fundinum á Eyrarbakka var samþykkt svofelld ályktun: "Almennur fundur, haldinn á Eyrarbakka
sunnudaginn 13. febrúar 1949 að tilhlutun Þjóðvarnarfélagsins, lýsir sig
mótfallinn hvers konar þátttöku Íslands í hernaðarbandalagi. Fundurinn skorar á
Alþingi að hvika ekki frá yfirlýstri hlutleysisstefnu, nema málið hafi áður
verið lagt undir dóm þjóðafinnar í almennri atkvæðagreiðslu".
Frú Jóhanna Hallgrímsdóttir (hjúkrunarkona) bauð sig fram til
alþingiskosninga fyrir Sósialistaflokkinn í Árnessýslu. Hún skipaði 3ja sæti
listans og var hún einn að stofnfélögum. Áður hafði hún starfað með
verkakvennafélaginu Snót í Vestmannaeyjum. [Jóhanna
var Skagfirðingur að ætt. Maður hennar var Guðjón Guðjónsson, ættaður frá
Brekkum í Hvolhreppi. Þau störfuðu bæði í kirkjukór Eyrarbakkakirkju.]
Í oktober var kosið til Alþingis og fór kjörsókn á Eyrarbakka og í grendarþorpunum þannig: Á Eyrarbakka kusu 314 af 352, eða 89,2 %. Á Selfoss voru 512 á kjörskrá, og af þeim kusu 468 eða 92.7%. og á Stokkseyri 298 af 352, eða 84.7%.
Ungir Sjálfstæðismenn í sýslunni héldu aðalfund sinn á Selfossi, en þar var m.a. kosinn í stjórn Jóhann Jóhannsson af Eyrarbakka.
Alþýðuflokkurinn sem hafði
hreinann meirihluta í hreppsnefnd, bjó sig nú undir nýjar
hreppsnefndarkosningar sem fara átt fram snemma árs 1950. [Efstu frambjóðendur voru: Vigfús Jónsson oddviti Garðbæ, Jón
Guðjónsson bóndi Skúmstöðum, Ólafur Guðjónsson bifreiðastjóri Mundakoti, Guðmundur
J Guðmundsson forstjóri og Eyþór Guðjónsson verkamaður Skúmstöðum.]
Afmæli:
90 Þorbjörg Jónsdóttir frá Strönd. [Bjó þá hjá Halldóru dóttur sinni í Rvík.]
Rannveig Sigurðardóttir frá Vegamótum. [
Maður hennar var Þórarinn Jónsson sjómaður, foreldrar Kolfinnu í Bakaríinu.]
80 Margrét Guðmundsdóttir, bjó þá í Rvík.
Sigríður Bárðardóttir, Káragerði.
70 Bergsteinn Sveinsson trésmíðameistari í Brennu og
framkv.stj. Trésmiðju Eyrarbakka. [Bergsteinn
var á sínum tíma frumkvöðull í kartöflurækt í stórum stíl.]
Jónína Margrét Þorsteinsdóttir frá Sölkutóft, bjó þá í Höfnum.
Aðalbjörg Jakopsdóttir, Læknishúsi bjó þá í Rvík. [Ekkja Gísla læknis Péturssonar.]
Guðmundur Þórðarson, Gýjasteini.
Halla Jónsdóttir, Búðarstíg.
Jóhanna Jónsdóttir, Litlu-Háeyri.
Jónína Jóndsdóttir, Skúmstöðum.
Margrét Gísladóttir Ísaksbæ.
Þorbjörn Hjartarson Akbraut.
60 Oddný Magnúsdóttir í Stígprýði. [Dóttir Magnúsar Magnússonar formanns og Ingigerðar Jónsdóttur í Nýjabæ
Eb. Árið 1912 giftist Oddný Þórarni
Einarssyni sjómanni/form. frá Grund á Eyrarbakka, og eignuðust þau sjö börn.
Oddný og Þórarinn byggðu upp húsið Stigprýði í Nýjabæjarlandi og hófu búskap
þar. Þórarinn dó 1930 frá sjö börnum, því elzta 14 ára og varð Oddný eftir það
að sjá fyrir barnahópnum af eigira rammleik. Son hennar Ingvar tók hafið 1940
(sjá 1940) Einar tók við Stígprýði eftir móður sína.]
Jakobína G Jakopsdóttir, Einarshöfn.
Jón B Stefánsson, Hofi.
Kolfinna Þórarinsdóttir,
Bakaríinu [ frá Vegamótum, en hún var gift Lars Andersen bakarameistara]
50 Guðmundur H Eiríksson, trésmiður Merkigarði og
Sigurlína Jónsdóttir kona hans.
Guðrún I Oddsdóttir, Bráðræði.
Regína Jakopsdóttir, Steinsbæ.
Gullbrúðkaup áttu: Þuríður
Magnúsdóttir og Guðlaugur Guðmundsson Mundakoti.
Silfurbrúðkaup áttu: Guðlaug Brynjólfsdóttir og Guðmundur J
Guðmundsson.
[Guðmundur var forstjóri
Bifreiðaverkstæðis Eyrarbakka hf.]
Hjónaefni: Sigurður Sigurðarson í Túni og Jóhanna
Guðmundsdóttir frá Hurðabaki. Heimili stofnuðu þau á Sólbakka, Selfossi.
Sigurjón Þorvaldsson frá Gamla-Hrauni og Lóa Bergman frá Fuglavík í Sandgerði.
Pálína Pálsdóttir í Sandvík Eb. og Gunnar B Salómonsson Seltjarnarnesi. Ólöf
Margrét Þorbergsdóttir [Guðmundssonar og
Sigríðar I Hannesdóttur] frá Sandprýði og Bergþór Karl Valdimarsson Rvík.
Bornir til grafar: Loftur
Arason sjómaður í Inghól [Kona hans var Ragnhildur Einarsdóttir]. Anna Tómasdóttir í
Garðbæ. [Eftirlifandi maður hennar var
Sigfús Árnason trésmiður og bóndi. Dóttir þeirra, Aðalheiður í Ásgarði.] Guðmundur
Höskuldsson í Zephyr, fv. bókbindari Eb. [Hann
var ættaður frá Kumla á Rángárvöllum, kona hans var Oddný Helgadóttir. Hann var
jarðsettur í Rvík.] Helga
Magnúsdóttir, símavörður. [Ekkja Odds
Oddssonar símst.stj.en hann var einig gullsmiður og fræðimaður. Dóttir þeirra
Jórunn var símstöðvarstjóri á Eyrarbakka um þessar mundir. Oddur byggði húsið
"Regin" ásamt Helga Magnússyni d.1918 en hann var fyrri maður Sigríðar dóttur
Odds og Helgu. Önnur börn þeirra voru Magnús og Anna. Áður hafði Oddur byggt
hús austur við Hóp, en það brann til kaldra kola.] Mrs. Sigríður Runólfsdóttir (60) í Calgary, Alta. (CA) [Foreldrar hennar voru Runólfur Eiríksson og
Elín Ólafsdóttir í Bjarghúsum Eyrarbakka. Maður Sigríðar var Benedikt
Sæmundsson og áttu þau 7 börn.] Bjarghildur
Magnúsdóttir í Skuld. [Hún var fædd í
Oddakoti A/Landeyjum, giftist Hróbjarti Hróbjartsyni (d.1934) frá Simbakoti og
stofnuðu þau heimili á Eyrarbakka.] Jóhann G Jónsson (54) frá Mundakoti,
jarðs. í Rvík. [Foreldrar Jóhanns voru
Guðrún Jóhannsdóttir og Jón Einarsson hreppstj. í Mundakoti. Jóhann starfaði að
þýðingum og kennslu í Vestmannaeyjum og Reykjavík. Jóhann átti ætíð við heilsuleysi að stríða
sökum brjósthimnubólgu, er hann fékk 17. ára gamall. Allt frá unglingsárum lét hann
mjög að sér kveða í trúmálum, en hann var meðlimur Sjöunda dags aðventista.].( Um 1918
reis á Eyrarbakka mikil trúarbragðaalda
sem var einsdæmi í sögu þorpsins og skoðanir aðventista áttu þar töluverðu
fylgi að fagna.) Árelíus Ólafsson (45) bjó í
Rvík. [Sonur Ólafs söðlasmiðs
Sigurðssonar og Þorbjargar Sigurðardóttur.] Jónína Sverrisdóttir. [ Dóttir Sverris Bjarnfinnssonar og
Guðlaugar Böðvarsdóttur. Þau bjuggu þá í Bræðraborg.]
Sandkorn:
Sigurður Guðjónsson skipstjóri á Litlu-háeyri var félagsmaður
í Hinu íslenska fornleifafélagi. Sigurður safnaði einkum fornmunum sem tengdust
útgerð á Eyrarbakka og nágreni, það var vísirinn að sjóminjasafni sem hann
reisti á Eyrarbakka mörgum árum síðar.
Flugvél tveggja sæta, (Harvard) nauðlenti (magalending) í
fjörusandinum rétt austan við Eyrarbakka 7. janúar, menn sakaði ekki og vélin
skemdist lítið. Flugvélin var í eigu Flugmálastjórnar, en leigð til Loftleiða
h.f. [Flugmaðurinn hét Hart Ranft]
Guðmundur J Gíslason, Jónssonar og Þórunnar Guðmundsdóttur í Steinsbæ
gerðist leikskáld og tók sér skáldnefnið Guðmundur Steinsson.
Guðlaugur Eggertsson var formaður slysavarnardeildarinnar
Bjargar á Eyrarbakka.
Í Stjórn Bifreiðaverkstæðis
Eyrarbakka hf. sátu: Guðmundur J Guðmundsson forstj. Vigfús
Jónsson oddviti, Guðjón
Guðmundsson, Helgi Vigfússon kaupf.stj. og Ólafur Guðjónsson
bifr.stj. [36 ár voru frá því að Sveinn
Oddson prentari í Rvík. ók fyrsta Ford bílnum á íslandi, frá Reykjavík til
Eyrarbakka og til baka og 44 ár frá því að Thomsens-bílnum var ekið þessa sömu
leið. Þá voru 3 ár frá því að fyrsti jeppinn fékk aðsetur sitt á Eyrarbakka.]
Kvikmyndin,"Björgun við Látrarbjarg" var sýnd hér á Eyrarbakka sem víðar um
Suðurland.
Eyrbekkingar í útrás.
Vilhjálmur S Vilhjálmsson rithöfundur frá Eyrarbakka var meðal farþega í
fyrstu hópferð íslendinga til Skotlands, (Glasgow og Edinborgar) þar sem
búðargluggar heilluðu íslenskt kvenfólk. Farið var með Es. Heklu. Hann gaf út
skáldverk sitt "Kvika" á þessu ári, en þar tekur hann fyrir verkalýðshreyfinguna
í Skerjafirði. Áður gaf hann út skáldverkið "Brimar við Bölklett" en þar er
Eyrarbakki sögusviðið.
Skúli (Gissurarson) Bjarnason frá Litla-Hrauni lifði og starfaði í Los Angeles U.S.A. Skúli var sonur Gissurar Bjarnasonar frá Steinsmýri í Skaftafellssýslu, er síðar bjó að Litla-Hrauni á Eyrarbakka og konu hans Sigríðar Sveinsdóttur. [Skúli starfaði hjá Van de Kamp-Holland Deuch Bakeries]
Einar Siggeirsson ættaður af Eyrarbakka, fór vestur um haf og hóf nám í landbúnaðarháskóla Norður-Dakóta árið 1944. Lauk hann þar kandidatsprófi og síðan magistersprófi vorið 1949. Síðan hóf hann nám við Cornell-háskólann, einkum í búfjár-næringarefnafræði.
Úr
grendinni:
Selfoss 879 íbúar: Íþróttavöllur byggður á Selfossi. Nýtt
sláturhús tekið í notkun. Kona féll í Ölfusá og druknaði. [Hún hét Þórunn Bjarnadóttir] Á Selfossi voru starfandi nokkrar
svokallaðar "Pokalöggur". [Þeir sem sáust
ölvaðir á skemtunum, eða samkomum, voru geymdir í poka á þokkalegum stað, þar til ölvíman var runnin af
þeim. Talsverð unglingaölvun var til staðar á þessum tímum.] Ráðherra
heilbrigðismála veitti Kaupfélagi Árnesinga lyfsöluleyfi að Selfossi, en átta
lyfjafræðingar höfðu sótt um leyfið. Í kjölfarið tilkynntu lyfjafræðingar
tveggja daga mótmæla verkfall vegan þess að ófaglærðum aðila var veitt
lyfsöluleyfið á Selfossi. [Ráðherran var
Eisteinn Jónsson m.m.r.h. Framsóknarflokks.]
Stokkseyri 419 íbúar: Héraðsþing "Skarphéðins" (H.S.K.) var
haldið að Stokkseyri um miðjan janúar. Stjórn var endurkjörin: Sigurður
Greipsson, formaður, Eyþór Einarsson, ritari og Magnús Guðmundsson, gjaldkeri.
Á Stokkseyri voru 9 bændur er höfðu súgþurkunarbúnað í hlöðum sínum, en
Stokkseyrarhreppur seldi þeim afgangsrafmagn á lágu verði. [15au/kwst]
Þuríðarbúð var vígð þetta ár (26. júní 1949) á þeim slóðum sem sjóbúð Þuríðar formanns stóð fyrum (1820) og var búðin byggð með samskonar byggingalagi og Þuríðarbúð eldri.
Sandvíkurhreppur: Ragnhildur Ísleifsdóttir (85) í
Hreiðurborg andaðist, en hún var systir Guðmundar á Háeyri. Í hreppnum var
starfrækt vikursteypa. [Ari Páll
Hannesson og fl.] Vikurinn var fenginn ofan af Laxá á Skeiðum til
plötugerðar, en Eyrarbakkavikur til holsteinsgerðar. Jörðina Kaldaðarnes seldi
ríkið Jörundi Brynjólfssyni. [Á
stríðsárunum lagði breski flugherin jörðina undir hernaðarmannvirki]
Hveragerði 472 íbúar: 7. Landsmót U.M.F.Í, var haldið í
Hveragerði. [Landsmótið átti að fara fram
á Eiðum, en vegna ótíðar var það flutt til Hveragerðis.] Leikfélag
Hveragerðis sýndi "Karlinn í kassanum" á Eyrarbakka og Stokkseyri.
Þorlákshöfn: Þar er verið að byggja hafskipabryggju um
þessar mundir.
Gaulverjabæjarhreppi bast tæplega 300 bækur að gjöf frá ekkju
V-íslendings. [Gefandinn var Kristín
Þorsteinsson, ekkja Guðna Þorsteinssonar póstmeistara í Gimli CA. Guðni var
fæddur að Haugi í
Gaulverjarbæjarhreppi 1854, en fór vestur um haf 1885 og dvaldi síðan vestra
alla ævi.]
Tíðin: Febrúar var óvenju snjóþungur á Bakkanum og var Bakkavegurinn ófær
um tíma. Mikil snjóalög í austursveitum og tregt um mjólkurfluttninga.
Krísuvíkurvegur var oft farinn vegna ófæru á Hellisheiði. Hrönn stíflaði Hvítá á
svæðinu frá Brúnastöðum austur fyrir flóðgáttina, svo mikið vatn flæddi niður
Flóann. Flaut yfir Eyrarbakkaveg á löngum kafla þar sem hann lægst stóð. Í Mars þurftu Bátar frá Eyrarbakka og
Stokkseyri að leita hafnar í Þorlákshöfn sökum brims. Voru gæftir yfirleitt
afleitar. Heyfengur var sem í meðalári en þeir dagar í neðan verðum
Flóanum, sem þurrir voru til kvölds um heyskapartímann, voru þó teljandi. [Heyskapurinn stóð nær í tíu vikur í stað
4-5 vikna venjulega vegna votviðra, þá varð að slá talsvert með orfum, sökum
þess að vélum varð ekki við komið sökum bleytu. Allnokkrir bændur hér um slóðir
er höfðu aðgang að rafmagni voru komnir með súgþurkun]
Heimild: Alþýðubl. Árbók Háskóla Íslands. Árbók hins íslenska forleifafélags. Frjáls Verslun, Heimskringla, Morgunbl. Tíminn, Skinfaxi, Veðráttan, Þjóðviljinn. Þjóðvörn.
07.06.2015 22:39
Sjómannadagurinn
- 1