30.07.2009 12:52
Heitast
Eyrarbakki er heitasti staðurinn á landinu í dag með 17,7°C en sá kaldasti er á Miðdalsheiði 3°C en mesti hiti sem mælst hefur 30.júlí á Eyrarbakka 1957 til 2008 var í
fyrrasumar 27.5°C
28.07.2009 23:18
Nú fór að rigna
Spurning hvað svo gerist þegar þetta er einu sinni byrjað :/
25.07.2009 10:57
Kartöflunum bjargað
Það gerði næturfrost á Eyrarbakka í nótt. Um kl 3 hafði hitinn fallið niður fyrir frostmark og var lágmarkinu náð um kl.5 -2.2°C sem var næstmesta frost á láglendi í nótt, en á Fáskrúðsfirði var -2.3°C.
Ekki veit ég til að svona mikið frost hafi áður komið í júlí á Eyrarbakka. Gögn um lægsta hitastig á Eyrarbakka 25. júlí sem ég hef var 1.9°C árið 1967.
Minsti hiti í júlí sem mælst hefur áður á Eyrarbakka var þann 15.júlí 1979 þegar lágmarkið var 1,4°C og í öðru sæti yfir lágmarkshita í júlí var 8.júlí 1973 og 18. júlí 1983 þegar lágmarkið var 1,5°C.
Um miðnætti var dagljóst að næturfrost var í vændum og varð því að gera tilraun til að bjarga kartöflugarðinum hér á bæ frá áfalli. Brugðið var á það ráð að setja upp garðúðarann og láta hann vökva alla nóttina. Tókst sú aðgerð með ágætum og sá ekki á grösum þrátt fyrir tveggja stiga frost um nokkurn tíma.
24.07.2009 09:08
Kuldakastið
Hæð við Grænland og Lægð á Noregshafi sáu til þess að heimskautaloftslag færðist yfir landið síðasta sólarhringinn með kulda og snjókomu á hálendinu.
Um kl.4 síðdegis í gær höfðu hitatölur á Eyrarbakka þokast upp í 13°C sem þykir ekki mikið á þessum árstíma, en þá tók hitastigið að falla hratt, eða um eina gráðu á hverri klukkustund og var lágmarkinu náð um kl 3 í nótt. Hitafallið hafði stöðvast í tæpum 2°C og tók að stíga á ný.
Víða á Rángarvöllum var frost í stutta stund í nótt. Í þykkvabæ var -1.1°C og á Hellu -1.6°C. Kartöflugrös eru viðkvæm og falla jafnan við fyrstu frost, en ekki hafa borist spurnir af því hvernig horfir með uppskeruna í kartöflubænum.
23.07.2009 14:21
Miðsumarhret
Nú þegar miðsumarhretið gengur yfir norðlendinga er tilvalið að rifja upp eitt versta miðsumarhret sem yfir landið gekk þennan dag 1966. Köldustu dagarnir voru 23. og 24. júlí það ár.
Eins og sjá má á kortunum hér til hliðar frá Veðurstofunni, þá eru þau nokkuð lík, annað frá hádegi í dag en fyrir neðan frá hádegi 23.júlí 1966 en þá var vindur heldur meiri en nú, en hitastigið með svipuðu móti. þá fuku hey víða og girðingar lögðust niður. þá skemdust kartöflugarðar á nokkrum stöðum. Nokkuð var um ungadauða norðan heiða og sumstaðar króknaði fé auk ýmis annars tjóns sem hretið olli. Hitinn var fyrir neðan frostmark á Hveravöllum þessa daga 1966 en komst lægst í rúma +1°C í morgun, hvað sem verður næstu nótt. Minnsti hiti í dag var á Gagnheiði -2°C
heimild: Veðráttan júlí 1966
22.07.2009 14:34
Ótíðindi
Framundan er sólarlítil helgi hjá okkur. Hitinn verður slakur í norðanáttinni á fimmtudag og föstudag en við gætum verið að tala um eins stafs tölu í því samhengi. Þá mun eitthvað skvettast úr honum , einkum á sunnudagsmorgun. Þeir sem hyggja á ferðalög til fjalla þurfa vetrarútbúnað, því gert er ráð fyrir snjókomu á hálendinu norðanverðu.
21.07.2009 15:18
Hvað verður gert við kvótann?
Fyrir skemmstu fékk Eyrarbakki úthlutaðan byggðakvóta frá Sjávarútvegsráðuneytinu. Þannig hefur nú skipast til að hér er ekki lengur rekin fiskvinnsla, en samkvæmt skilyrðum um úthlutun verður svo að vera. Hvað gera menn þá?
21.07.2009 11:22
Höfn horfið

Húsið Höfn í Einarshafnarhverfi var rifið nú í vikunni og er það fimmta jarðskjálftahúsið í þorpinu sem hlýtur þau örlög. Húsið var steinhús frá 5. áratug 20.aldar.
16.07.2009 08:57
Milt sumar
Fram til þessa hefur sumarið á Bakkanum verið með ágætum, fremur þurt og nokkuð sólríkt og hægviðrasamt, en engin hitamet sleginn. Í gær var mestur hiti um 18°C, en 20°C í dag. Mesti hiti sem mælst hefur á Eyrarbakka var 29.9°C þann 30.júlí árið 1924. Á sjálfvirku stöðinni sem sett var upp 2005 mældist mesti hiti 28.4°C sama mánaðardag (30.júlí) í fyrrasumar.
Á vef veðurstofunnar má nálgast hitametstölur alstaðar af landinu http://www.vedur.is/vedur/frodleikur/greinar/nr/1615
01.07.2009 15:42
Fólkið við ósinn-Drepstokkur
Drepstokkur var landnámsjörð og nam þar land Herjólfur Bárðarson, frændi Ingólfs Arnarsonar, gaf Ingólfur honum land úr landnámi sinu milli Vágs og Reykjaness. Bær Herjólfs stóð örskammt til suðausturs frá þeirri hæð, sem Óseyrarnesbærinn stóð á spölkorn austan við Ölfusárósinn og rann lækur fyrir framan túnið og var kallaður Síkið. Hann var afrensli Einarshafnar-flóðanna. Eigi er hægt að segja um, hvort Síkið rann vestur í Ölfusá eða fram í sjó.
Þess er getið í Biskupasögum (I., bls. 388), líklega snemma á 13. öld, að maður á Drepstokki tæki hest »ok riði út til óss«. Síðan þá hefur ósinn brotið mikið land til austurs svo vart tæki því í dag að leggja á hest þennan spöl. Herjólfur yfirgaf Drepstokk ásamt búaliði og flutti til Grænlands um 984-985 og fylgdi Bjarni sonur hans í kjölgfarið, en sem kunnugt er fann hann Ameríku í þeirri ferð.
Í Árbók hins íslenska fornleifafélags frá 1927 segir m.a. að þegar Ölfusið tók að byggjast, hefur orðið meiri þörfin þeim megin fyrir ferju yfir ána, til samgagna við næstu aðalbygðina og til aðdrátta frá Eyrarbakka. Áður en landnámi var að fullu lokið, er líkast að verzlun hafi byrjað á Eyrum. Eyrarnafn Lofts gamla í Bæ gæti vel verið dregið af verzlun hans þar, því varla þarf að efa það, að hann hafi flutt mjöl í sekkjum ásamt fleiri vörum, er hann fór þriðja hvert ár til Noregs, eins og síðar flutti Þórólfur sonur hans, og Bjarni Herjólfsson á Drepstokki annað hvert ár, til 985. Þegar á þessum árum (eða árla á 10. öld) má því gera ráð fyrir, að staðföst ferja sé komin á Ölfusá. Full vissa um þetta fæst þó ekki fyr en um 1011, þá er Skafti lögsögumaður á Hjalla »sá frá ferjunni« hesta Þorgils örrabeinsstjúps í Traðarholti, við ána »nær Kallaðarnesi «. Skafti snéri þá heim frá ánni (af hræðslu við Þorgils). En »kvaðst frétt hafa, að síðar mundu betri kaupin«. (Flóamannasaga 30. kap.).-
Nes, síðar Óseyrarnes var upphaflega kot frá Drepstokki eða Rekstokki, sem síðar er farið að kalla þá jörð og hafði það verið fært fjórum sinnum undan ánni fyrir 1708, og eftir það
þurfti að færa bæinn í fimmta sinn undan ánni ca 20 árum síðar, en þá var Nesbæririn byggður uppi á túninu á Rekstokki, og var Nes (eða Óseyrarnes eins og það hét nú) upp frá-því aðaljörðin, en Rekstokkur (Refstokkur sem þá hét) kotið, og hést það svo, meðan þær jarðir voru byggðar. Í tíð Herjólfs hafði ósinn verið mun vestar og skipgengur, en síðan hafði áin brotið nýjan ós sem nú er, en hinn vestari fyllst upp af sandi. Hét þá hólminn milli ósanna "Skerðingarhólmi".
29.06.2009 11:50
Jónsmessuhátíð nr.11

Jónsmessuhátíð var haldin á laugardaginn í 11 sinn frá því að þessi gamalkunna dansk-íslenska miðsumarhátíð var endurvakin á Bakkanum. Það var mikið um að vera og þorpið iðaði af mannlífi. Hátíðinni lauk svo með brennu og söng í fjörunni.
25.06.2009 22:02
Fólkið við ósinn- Óseyrarnes
Vestasta jörðin í Eyrarbakkahreppi heitir Óseyrarnes, en hefur áður heitið Nes og Ferjunes og sameinast gömlu landnámsjörðinni Drepstokki. Nesbærinn hafði verið fluttur fimm sinnum frá ánni, síðast 1728. Þar var ferjustaður og þjóðbraut allt frá miðöldum og oft tvíbýlt. Lögferjan gaf vel af sér í eina tíð en með tilkomu brúar yfir Ölfusá við Selfoss náði ferjubóndinn vart upp í kosnað við ferjuhaldið. Má enn sjá rústir þar sem bærinn stóð síðast nokkuð austan við ósinn. Sjávarflóð höfðu alloft valdið tjóni á slægjulöndum og kálgörðum Óseyrarness, eða allt þar til sjóvarnargarður var byggður laust eftir aldamótin 1900, en allt kom þó fyrir ekki því sjóvarnargarður þessi sópaðist burt að stórum hluta árið 1916 og tók þá út annann ferjubát staðarins og tíndist hann.(Ferjubátar í Óseyrarnesi voru jafnan 17 manna far, róinn 4 árum.) Í kjölfarið átti landið undir högg að sækja sökum sandblásturs. Garðurinn var endurbyggður og uppgræðsla hófst, en í stóraflóðinu 21.janúar 1925 hrundi garðurinn í annað sinn og sagan endurtók sig. Óseyrarnesi fylgdi góð laxveiði og fengust jafnan 200 til 500 laxar á sumri þegar best lét, en einnig var stunduð þar selveiði í stórum stíl og var selnum smalað niður ánna með bátum og mannsöfnuði.
Jón hét maður og var Ketilsson (1710-1780) hreppstjóri, formaður í Þorlákshöfn og ferjubóndi í Ferjunesi eins og bærinn hét í þá daga, faðir Hannesar lögréttumanns í Kaldaðarnesi, er bjó í Ferjunesi 1778-1782. Þess skal getið hér til gamans, að árið 1789 skipaði Steindór sýslumaður Finnsson þá Hannes lögréttumann og Þórð bónda Gunnarsson í Þorlákshöfn til þess að vera "forstjórnar og forgangsmenn" til undirbúnings og varnar gegn erlendum sjóræningjum, ef þeir legðu að landi í Þorlákshöfn á vertíðinni.
Jón Jónsson hét einn afkomandi Jóns Ketilssonar og var hann óðalsbóndi á Óseyrarnesi á fyrri hluta 19.aldar, ekkjumaður með 5 fyrrikonubörn öll ung að árum, en kona hans var Ólöf Þorkellsdóttir frá Simbakoti. Eitt þeirra barna var Þorkell (d.1897) sem síðar var hreppstjóri og bjó hann alla tíð á Óseyrarnesi. Annar sonur Jóns hét einnig Jón og var hann formaður á Farsæl í Þorlákshöfn og fræðimaður í Simbakoti á Eyrarbakka. (Jón í Simbakoti var af ríku fólki kominn, en dó sjálfur í fátækt. Bækur hans og rit voru boðin upp ásamt kistunni sem þær voru geymdar í, en hana keypti Gísli Eiríksson í Bitru). Jón eldri giftist aftur 1836 Guðrúnu Guðmundsdóttur f.1801 frá Arnarholti í Biskupstungum og áttu þau saman 4 börn, en eitt dó í æsku. Jón dó 1858 en Guðrún hóf þá búskap með Sigurði syni sínum (1843-1876) og konu hans Ragnheiði Hannesdóttur frá Kaldaðarnesi að Björk í Grímsnesi. Guðrún dó 1871. Bjarni Hannesson hét maður fæddur á Baugstöðum í Stokkseyrarhreppi (1816-1878). Um vorið 1839 flutti hann til vinnumensku að Óseyrarnesi, en árið eftir giftist hann heimasætunni á bænum Sigríði Guðmundsdóttur (1817-1901). Sigríður fæddist á Sléttum í Hraunshverfi, en flutti með foreldrum sínum að Óseyrarnesi 1823. Bjarni tók síðan við búi af tengdaföður sínum árið 1842 og bjó á Óseyrarnesi í 33 ár. Bjarni og Sigríður eignuðust eina dóttur, Elínu f.1842. Hún giftist Grími ríka Gíslasyni (1840-1898) frá Syðra-Seli á Stokkseyri sem þá var vinnumaður á Óseyrarnesi, en hann tók við búinu af tengdaföður sínum 1875. Bjarni Hannesson var hreppstjóri Stokkseyrarhrepps um nokkur ár. Aðfararnótt 8. nóvember árið 1900 brann íbúðarhúsnæðið að Óseyrarnesi til kaldra kola ásamt öllum innanstokksmunum og vetrarforða, en mannbjörg varð. Þá bjuggu þar bændunir Gísli Gíslason formaður í Þorlákshöfn og Eiríkur Jónsson. Eftir brunann var bærinn endurbyggður og árin 1912- 1915 bjuggu á öðru býlinu Vilhjálmur ferjumaður Gíslason Felixsonar frá Mel i Ásahreppi og kona hans Guðbjörg Jónsdóttir. Móðir Vilhjálms var Styrgerður Filippusdóttir frá Bjólu í Rángárvallasýslu, en hún bjó í Einarshöfn hin síðari ár. Vilhjálmur tók jafnan skrýngilega til orða. Bjarni Eggertsson á Eyrarbakka sauð saman þessa vísu upp úr sumum skringilyrðum hans: Skjóðuglámur skjótráður skýzt yfir ána í kasti glyrnupínu grjótharður gefur í rótarhasti. Einhvern tímann um svipað leiti átti heima á Óseyrarnesi Magnús mormóni Kristjánsson, en hann hafði áður búið í Stokkseyrarhverfi og í Vestmannaeyjum. Hann var hér orðinn gamall og þrotinn heilsu og kominn á sveitina. Hann þótti einkennilegur maður en var gáfaður að upplagi þó ekki hefði gengið menntaveginn. Til var handrit af söguþætti um Magnús mormóna, (Íslenskir sagnaþættir II eftir Brynjúlf Jónsson). Eiríkur Jónsson frá Hlíð í Skaftártungu bjó um hríð i Óseyrarnesi en hann druknaði á Ísafirði. Kona ein Margret að nafni sem átti heima á Óseyrarnesi 1931 náði eitt sinn í landselskóp og tamdi hann sem gæludýr. Fór kópurinn aldrei í sjó né vatn en fékk þó bað á hverjum degi. Lifði kópurinn þar góðu lífi eins og einn af hundunum á bænum. Ekki er vitað um hvort selur þessi hafi orðið gamall. Margt fleira fólk en hér er greint frá átti heimili á Óseyrarnesi í lengri eða skemmri tíma, svo sem vinnuhjú og afkomendur ferjubændanna. Óseyrarnes mun hafa farið í eyði um seinna stríð. Eyrarbakki.is. Þjóðólfur , 5. tölublað 1864 Þjóðólfur , 12.-13. tölublað 1873 Þjóðólfur , 15. tölublað 1880 Þjóðólfur , 11. tölublað 1898 Fjallkonan , 19. tölublað 1901 Suðurland , 11. tölublað 1910 Suðurland , 32. tölublað 1912 Lögrétta , 30. tölublað 1919 Morgunblaðið , 286. tölublað 1926 Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1927 Alþýðublaðið , 196. Tölublað 1931 Sjómannablaðið Víkingur , 21.-24. Tölublað 1940 Lögberg , 27. tölublað 1952 Sjómannablaðið Víkingur , 11.-12. Tölublað 1944.
Eitt barna Þorkells Jónssonar hreppstjóra í Óseyrarnesi hét Þorkell og var hann m.a. formaður í Þorlákshöfn. Á vertíðinni 1883 hvarf skip Þorkels í vonsku veðri og var talið af, en skipshöfnin bjargaðist í erlent skip og kom fram að mörgum dögum liðnum.
Grímur óðalsbóndi í Óseyrarnesi var atorkusamur bóndi og aflasæll formaður. Hann átti m.a. aðkomu að Stokkseyrarfélaginu, (1889-1895) sem var nokkurskonar undanfari Kaupfélags Árnesinga ásamt hafnarbótum, vöruhúsbyggingum (Ingólfshúsið og Zöllnershúsið sem brunnu 1926) og sjóvörnum þar á Stokkseyri. Börn Gríms og Elínar urðu 8. Meðal þeirra voru Páll hreppstjóri í Nesi í Selvogi en síðar að Flóagafli. Bjarni yngri f.1870 ferjumaður, formaður í Þorlákshöfn, verslunarmaður á Stokkseyri og stjórnarmaður Flóaáveitufélagsins en síðar fiskmatsmaður í Reykjavík. Guðmundur en hann gekk í lærða skólann í Reykjavík, Sigríður kona Þorkells Þorkellssonar frá Óseyrarnesi og Valgerður kona Gísla skósmiðs í Íragerði.
Árið 1898 var Eyrarbakkahreppi veitt heimild til að kaupa Óseyrarnes og gekk það eftir árið 1906.
17.06.2009 19:31
Fólkið frá Flóagaflshverfi- Þórðarkot
Norður af Gerðiskotsmóa við hreppamörk Sandvíkur og Eyrarbakka er Þórðarkot. þar eru miklar rústir eftir fallin hús og eydda byggð.
Á Þórðarkoti bjó Eiríkur Árnason (f.1854 d.1943) en hann tók við búi föður síns Árna Eiríkssyni á Þórðarkoti. Kona Árna var Margrét Gísladóttir. Eiríkur stundaði búskap þar til 1935 er hann flutti niður á Bakka. Bróðir Eiríks var Ólafur (d.1935) faðir Sigurjóns myndhöggvara. Eiríkur þótti góður bóndi og komst því vel af þó jörðin væri smá. Kona hans var Helga Guðmundsdóttir. Synir þeirra voru Ásmundur bóndi á Háeyri og Guðmundur trésmiður á Eyrarbakka, en þau tóku einnig börn í fóstur eða réðu til vinnu.
Hin 3. apríl 1882 handsamaði bóndinn í Þórðarkoti lifandi sefhænu í einni heytóft sinni, en það var í fyrsta sinn sem Sefhæna fannst hér á landi.
Árin 1935 til 1937 stunda búskap í Þórðarkoti Valdimar Þorvarðsson frá Klasbarða V-Landeyjum (Síðar trésmiður í Kirkjuhúsi á Eyrarbakka) og kona hans Elín Jónsdóttir frá Laug í Biskupstungum. Þá Ólafur Gíslason frá Björk og Guðbjörg Pálsdóttir frá Halakoti í Biskupstungum til 1941 er þau fluttu þaðan og lagðist þá bærinn í eiði.
Heimildir: Morgunblaðið , 82. tölublað 1943 Tíminn , 58. tölublað1957 Eyrarbakki.is
16.06.2009 18:59
Fólkið frá Flóagaflshverfi- Hallskot
Hallskot er syðstur þeirra bæja er eitt sinn stóðu í Flóagaflshverfi og dregur líklega nafn sitt af Halli þeim er þar fyrstur byggði og sést þar enn móta fyrir bæjarstæðinu. Þar er brunnur góður sem aldrei þraut og nutu nágranar jafnan góðs af. Á fyrrihluta 19. aldar var bóndi í Hallaskoti Gísli Hannesson, síðar bóndi á Kotferju og kona hans Anna Jóhannsdóttir frá Kotferju. Um 1850 bjuggu hjón að nafni Vilhjálmur Kristinn Vilhjálmsson, Sigurðssonar og Guðný Kristín Magnúsdóttir Skaftfeld, Magnússonar í Hallskoti. Þá bjó til ársins 1901 Guðmundur bóndi Jónsson er lést það ár, Magnússonar í Koti á Rángárvöllum. Þá synir hans Einar d.1940 og Jón d.1933, en þeir voru síðustu ábúendur í Hallskoti sem fór í eiði 1924. Dætur Guðmundar voru Sigríður,Guðrún, Halldóra og Halla,(d.1964) en hún gifti sig í annað sinn á gamals aldri (83 ára) Jóni Ólafssyni útgerðarmanni úr Þorlákshöfn.
Eyrarbakkahreppur keypti hálfa jörðina undir slægjuland en á helmingi hennar stendur nú sumarbústaður. Jarðarkaup Eyrbekkinga hófst með kaupum á Óseyrarnesi og Gamla-Hraun eystri um aldamótin 1900, en síðan jafnharðan og eftirtaldar jarðir féllu úr ábúð: Flóagafl, Gerðiskot, Valdakot og hálft Hallskot eins og fyrr er getið. Þessar jarðir voru síðan með lögum frá 6. maí 1946 innlimaðar í Eyrarbakkahrepp og fékk Eyrarbakkahreppur þannig að auki töluverð veiðiréttindi í Ölfusá með þessum jarðarkaupum sínum. Hinn 1. janúar 1959 urðu svo eigendaskipti að jarðeignunum Einarshöfn, Skúmstöðum og Stóru-Háeyri, ásamt hjáleigunum Litlu-Háeyri, Sölkutóft, Mundakoti og Steinskoti, eystra og vestra eftir kaup Eyrarbakkahrepps á þeim.
Heimild: m.a. Fjallkonan , 1. tölublað 1901 Suðurland , 32. tölublað 1912 Morgunblaðið , 259. tölublað 1940 Alþýðublaðið , 181. Tölublað 1955 Eyrarbakki.is Morgunblaðið , 70. tölublað 1997 Alþýðublaðið , 5. Tölublað 1959
16.06.2009 12:10
Fólkið frá Flóagaflshverfi- Flóagafl
Flóagafl var elstur bæja á Flóagaflstorfunni og hefur sennilega verið byggður nokkuð snemma á 10 öld í upphafi. Árið 1857 bjuggu á Flóagafli Þorsteinn Guðmundsson frá Svarfhóli og Guðrún Bjarnadóttir. Þau bjuggu við talsverða rausn og voru stöðugt með hæstu gjaldendum í Sandvíkurhreppi. Sonur hans Sigurður Þorsteinsson og Ingibjörg Þorkellsdóttir frá Óseyrarnesi, (sjá Gerðiskot) tóku við búinu árið 1898 en Þorsteinn hafði þá látist úr lungnabólgu á 70 aldursári Sigurður flutti síðar til Reykjavíkur og gerðist rithöfundur og útvarpsmaður ásamt pólitísku vafstri fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Þá bjó þar um tíma Páll Grímsson bóndi, sem kenndur var við Nes. 1903 bjó á Flóagafli Guðmundur Ólafsson sjómaður og fátækur barnamaður. Eyrarbakkahreppur kaupir svo jörðina sem og aðrar í nágreninu undir slægjulönd og Flóagafl fer þá í eiði.
Heimild: m.a. Þjóðólfur , 16. tölublað 1898. Fjallkonan 10. tölublað 1903