16.03.2010 23:43
Hjálparinn
Hinum óar útá sjó,
ýtir Jóhann djarfur nóg,
aflakló um ýsumó
aldrei þó hann bresti ró.
Hafs um leiðir Hjálparinn
hraður skeiðar vélknúinn.
Hrannir freyða um hástokkinn,
hvín í reiða stormurinn.
M/b Hjálparinn var 13,20 tonn, byggður á Borgmundarhólmi og seldur, þá nýr árið1907 til Lefolii verslunar á Eyrarbakka. Vélin var af gerðinni Alfa 16-20 hestafla lágþrýstivél. Hlutverk hans var að vera lóðsbátur og til aðstoðar kaupskipunum sem þurftu að athafna sig á Einarshöfn. Þar að auki var Hjálparinn hafður til flutninga til næstu verstöðva svo sem með salt og annan varning til Vestmannaeyja og Grindavíkur. Áður höfðu tveir gufubátar gengt þessu starfi. Annar var M/S Njáll, en hann slitnaði af legufærum sínum í sunnan fárviðri og rak á land, en þó án þess að brotna og náðist hann á flot vorið eftir. Á undan Njáli var gufuvélbáturinn Oddur við þessi störf til fjölda ára, en hann rak á land í Grindavík árið 1904. Þar var hann að losa vörur frá Eyrarbakka, en átti að því loknu að halda til Reykjavíkur og hafa þar vetursetu.
Þó Hjálparinn væri minni en fyrirrennarar hans og vélarafl takmarkað, þá reyndist hann furðu vel. Í hjáverkum átti Hjálparinn að stunda fiskveiðar í þorskanet, sem þá voru svo til ný af nálinni, en þegar fram liðu stundir var lítið úr fiskveiðum sökum anna. Á haustinn var Hjálparinn tekinn upp í Skúmstaðalendingu, en þar hafði verið komið fyrir dráttarbraut og gangspili og dráttarbáturinn látinn standa þar inn af sjógaðshliði fram á næstu vertíð.
Þeir sem sigldu Hjálparanum heim frá Borgmundarhólmi þann 18. maí 1907 voru: Sigurjón P Jónsson skipstjóri frá Skúmstöðum, Friðrik Bjarnason og Vilhelm Jakop Andeas Olsen, vélamaður frá Fredrikshavn og komu þeir til Eyrarbakka 13.júní og unnu þeir á skipinu það árið, en síðasta kaupskip héðan þá um haustið var skonnortan "Svend".
Næsta ár var formaður á Hjálparanum, Jón Sigurðsson í Túni (Síðar Melshúsi) og vélstjóri var Brynjólfur Vigfússon í Mekisteini, en til skams tíma var Jóhann Bjarnason í Einarshöfn með bátinn og eru formannsvísur hans hér að ofan kveðnar á vertíð 1914. Af öðru tilefni kvað Magnús Teitsson þessa vísu:
Hjálparinn um fiskafrón
flytur drengi ósjúka.
Buddunum hann Brennu-Jón
biður upp að ljúka.
Tilefnið var að ferjutollur var rukkaður af farþegum með Hjálparanum til og frá Þorlákshöfn og sá um það Jón Ásbjörnsson í Brennu. Tollinum var síðan skilað til ferjubóndans í Óseyrarnesi. Þegar styrjöldin skall á 1914-1916 voru siglingar frá útlöndum aðeins heimilar á ákveðnar tollhafnir og var ákveðið að Reykjavík yrði tollhöfn fyrir Suðurland og lögðust þá Eyrarbakkasiglingar af. Hjálparinn var of lítill til að sinna strandsiglingum með vörur frá Reykjavík og var hann því seldur til Vestmannaeyja til fiskiveiða. Í stríðslok höfðu þau stakkaskipti orðið að Reykjavík hafði alfarið tekið við því hlutverki sem Eyrarbakki hafði áður sem höfuðstaður verslunar og menningar og þess skamt að bíða að saga Eyrarbakkaverslunar tæki enda.
Meira: Brimbarinn
Heimild: Sjómannablaðið Víkingur 2.tbl.1980- Sigurður Guðjónsson Litlu Háeyri.
Þennan dag:1764 Konungsveiting: Þorleifur Nikulásson á Eyrarbakka sótti um til konungs að verða vicelögmaður. 1972 Flæddi inn úr sjógarðshliðum. 1986 100 ára afmælisminning Guðmundu Nílsen í kirkjunni. 1987 Vetur gengur í garð.
15.03.2010 00:00
Gletta
Einhvern tímann fyrir langa löngu komu menn frá heilbrigðiseftirlitinu til þess að ransaka vatn í brunnum þorpsbúa og reyndist það misjafnlega, til dæmis í Steinskoti, en þar var vatnið talið ónothæft og jafnvel eitrað. Þá sagði Ágústínus (Gústi í austurbænum) það er nú varla bráðdrepandi því hún hefur drukkið vatnið í yfir 90 ár og benti á Guðbjörgu húsfreyju í vesturbænum og hafði hann greinilega ekki mikið álit á mælingum embættismanna.
14.03.2010 00:09
Þennan dag 1968
Á þessum degi: 14. mars 1968 Mb Fjalar ÁR 22 frá Eyrarbakka rak upp í fjöru eftir að vél bátsins bilaði. Engann mann sakaði enda gott veður þegar strandið varð. Gert var við bátinn í fjörunni og hann síðan sjósettur. Fjalar var 49 tonna eikarbátur. Eyrar hf gerðu bátinn út.
11.03.2010 23:33
Kaupfélagið Hekla
Verslunarfélagið Hekla var í upphafi hlutafélag stofnað af Gesti Einarssyni (1880-1918) á Hæli, en samvinnufélag var stofnað 26.janúar 1907 og keypti það verslunina sem þá fékk nafnið Kaupfélagið Hekla. Með Gesti voru 15 bændur af Suðurlandi. Framkvæmdarstjóri félagsins var Guðmundur Guðmundsson glímukappi. Ársvelta félagsins var rúm 184 þúsund krónur og skilaði umtalsverðum hagnaði fyrstu árin. Árið 1913 greiddi félagið 11% arð til skuldlausra félagsmanna. Samkeppni á Eyrarbakka var enn nokkuð mikil, en áður hafði Lefolii verslun verið ein og ráðið lögum og lofum í verslunarviðskiptum, en 1.sept.1909 hafði þeirri verslun verið breytt í hlutafélagið Einarshöfn hf til þess aðalega að fríska upp á ímyndina. Árið 1919 keypti kaupfélagið Hekla allar eignir Einarshafnarverslunar hf, þar með talið jarðirnar Einarshöfn og Skúmstaði á 80 þúsund krónur. Þá fluttu samvinnumenn stöðvar sínar í vesturbúðirnar, en aðstaða Kf. Heklu austan Gónhóls var seld.
Það var margt sem var farið að hamla gegn stóru versluninni á Bakkanum og var það ekki síst fyrri heimstyrjöldin, en á styrjaldarárunum voru skipaferðir á Bakkann orðnar strjálar vegna víðsjár stríðsins og vörur af skornum skamti. Eftir stríð voru skipin orðin stærri og flest of stór fyrir hafnarlægið á Eyrarbakka. Þá voru samgöngur orðnar betri til Reykjavíkur og höfn þar í byggingu. Vaxandi samkeppni við smá kaupmennina og samvinnuverslunina varð til þess að draga máttinn úr verslunarrisanum. Danir höfðu séð sæng sína útbreidda, þróun verslunar til framtíðar yrði ekki umflúin. Heklumenn sem sátu nú einir að bændamarkaðnum austanfjalls hugðu því gott til glóðarinnar.
Kaupfélagsmenn áttuðu sig of seint á aðstæðum og sátu nú fastir eins og mús í gildru. Árið 1920 varð mikið verðfall á vörum og fasteignum og sat því félagið uppi með óvinnandi skuldir. Það varð ekki til að bæta stöðuna að bændur fóru í æ meira mæli að sækja til Reykjavíkur sem var í örum vexti með tilkomu hafnar og aukinnar verslunar. Á meðan kaupfélagsmenn börðust í bökkum setti Egill Thorarensen í Sigtúnum upp verslun við Ölfusá (Selfoss) sem var í vegi bænda er komu austan úr héraðinu og gerði það útslagið. Bændaverslunin á Eyrarbakka hrundi síðla árs 1925 þegar Kf Hekla hætti starfsemi. Aftur kom það Reykvíkingum til góða, því þangað urðu sunnlenskir bændur að fara með afurðir sínar fyrst um sinn.
Heimild: Árnesingur II Lýður Pálsson Morgunb. 91 tbl 1914 Þjóðólfur 1-2. tbl 1919
09.03.2010 00:34
Guðmundubúð
Á árunum eftir aldamótin 1900 voru allmargar verslanir á Eyrarbakka, svo sem Verslunin Einarshöfn, Verslunin Hekla, Verslun Andrésar Jónssonar frá Móhúsum ofl. Um 1920 stofnaði Guðmunda Nielsen (1885-1936) verslun í nýbyggðu steinhúsi er hún lét sjálf reisa og húsinu var gefið nafnið Mikligarður. Hún hugðist fara í samkeppni við risan á markaðnum, kaupfélagið Heklu sem þá nýverið hafði tekið yfir verslunina Einarshöfn, hina fornu Lefolii verslun. Verslun Guðmundu lifði aðeins í tvö ár, en þá varð hún gjaldþrota. Eyrarbakkahreppur eignast húsið á stríðsárunum. Fyrir tilstuðlan hreppsins setti Hampiðjan á stofn netagerð í Miklagarði árið 1942 en síðan hófst þar framleiðsla á einangrunarplasti. Eftir að Plastiðjan hf var seld í burtu stóð húsið autt um tíma. Mikligarður komst aftur í eigu Eyrarbakkahrepps eftir að hreppurinn og pönnuverksmiðjan Alpan hf. höfðu makaskipti á eignum. Við sameiningu sveitarfélaganna færðist Mikligarður til Árborgar. Þar á bæ stóð hugur til að rífa bygginguna, en sem betur fer voru til menn sem töluðu um varðveislugildi þess út frá sögulegu sjónarhorni svo sem Lýður Pálsson safnvörður. Þá varð úr að hlutafélagið Búðarstígur 4 ehf eignast húsið árið 2005 með því skilyrði að gera það upp og hefur Rauða Húsið haft þar aðsetur síðan.
Guðmunda var einstök hæfileikakona á sinni tíð, safnaði m.a. nótum og uppskriftum, samdi ljóð og gaf út matreiðslubók. þá æfði hún talkór líklega þann fyrsta á Íslandi, sem talaði kvæði í stað söngs. Hún var organisti Eyrarbakkakirkju til fjölda ára. Eftir að verslun hennar varð gjaldþrota hóf hún að reka Hótel í Tryggvaskála við Ölfusá. því næst flutti Guðmunda til Reykjavíkur og stofnaði heimabakarí að Tjarnargötu 3. Guðmunda var afkomandi faktoranna í Húsinu.
Heimild: Morgunbl. 173 tbl 1928 36.tbl.1986 C2 1989 98 tbl.1999 http://husid.com/i-deiglunni/
Þennan dag:1685, Góuþrælsveðrið, teinæringur fórst á Eyrarbakka með 9 mönnum.
06.03.2010 18:15
Beðið eftir gosi
Eyjafjallajökull (1,666m) hefur gosið á sögulegum tíma en síðasta eldgos í jöklinum var árið 1821 til 1823 og þar á undan árið 1612. Síðasta hlaup vegna gosa í Eyjafjallajökli var árið 1822 og fyllti það alla farvegi Markarfljóts. Gos í tindi Eyjafjallajökuls verða á nokkur hundruð ára fresti en þau eru yfirleitt mun minni en Kötlugos. Hermilíkön hafa sýnt að hlaup ú Eyjafjallajökli næðu víðast hvar niður að fjallsrótum aðeins 15-30 mínútum eftir að gos hefst. Hlaup vegna goss í norðvestanverðum Eyjafjallajökli gæti náð að varnargörðum við Fljótshlíð á 45-60 mínútum. Gert er ráð fyrir að hlaup af þessu tagi fari yfir þá varnargarða sem nú eru milli Fljótshlíðar og Stóru Dímonar og flæmist til vesturs um eldri farvegi Markarfljóts. Margir telja að skjálftavirknin í Eyjafjallajökli að undanförnu sé fyrirboði um eldgos undir jöklinum.
Heimild: HÆTTUMAT VEGNA ELDGOSA OG HLAUPA FRÁ VESTANVERÐUM MÝRDALSJÖKLI OG
EYJAFJALLAJÖKLI
Þennan dag: 1967 mb. Bjarni frá Dalvík strandar framan við Baugstaðarós. Mannbjörg varð.
04.03.2010 23:32
Ólabúð
Árið 1920 setur Ólafur Helgason upp verslun í Túnbergi á Eyrarbakka en húsið var byggt af Eiríki Gíslasyni smið í Gunnarshólma 1914. Ólafur var fæddur 21. júlí 1888 að Tóftum í Stokkseyrarhreppi (d. 19.9. 1980). Hann fluttist til Eyrarbakka 1912 og réðist þá í þjónustu kaupfélagsins Ingólfs, en því veitti forstöðu Jóhann V. Daníelsson, síðar tengdafaðir Ólafs, en árið 1914 kvæntist hann Lovísu dóttur hans. Ólafur var meðal fyrstu manna í þorpinu sem eignuðust bíl og meðfram kaupmennskunni var Ólafur nokkurskonar leigubílstjóri á árunum 1919 1932 og ók farþegum út um sveitir eða flutti lækni og sýslumann erinda sinna um héraðið. Síðar var Ólafur oddviti Eyrarbakkahrepps og þar eftir hreppstjóri um áratuga skeið. Með versluninni hafði hann útsölu fyrir Olíuverzlun Íslands og voru dælurnar við götuna framan við búðina. Samkeppni í verslun var hörð á Bakkanum enda kepptu enn þrjár verslanir um hilli þorpsbúa, en það var auk Ólabúðar, Verslun Guðlaugs Pálssonar og Kaupfélag Árnesinga. Árið 1966 ákvað Ólafur að auglýsa verslunina til sölu og setjast sjálfur í helgan stein.
Árið 1971 setur kaupmaður úr Reykjavík upp lampa og gjafavöruverslun í Túnbergi og var hún í rekstri nokkur ár.
Frá 1. febr 1989 og fram til 1990 ráku hjónin Hjálmar Gunnarsson og Guðrún Melsteð verslun í Túnbergi undir sínu gamla nafni Ólabúð. Árið 2006 keypti svo þekktur listamaður Túnberg en ekki er þar lengur verslun.
Heimild: Mbl. 223 tbl 1990 44 tbl 1989 Alþbl. 157 tbl.1963 161 tbl 1958
02.03.2010 00:39
Verzlun Guðlaugs Pálssonar
Þann 4. desember 1917 fékk Guðlaugur Pálsson (f. Á Blönduósi 1896) leyfi til að reka verslun á Eyrarbakka. Áður en Guðlaugur hóf rekstur eigin verslunar hafði hann unnið við verslunarstörf í tvö ár hjá Sigurði Guðmundssyni kaupmanni á Eyrarbakka, en þá bauðst honum að kaupa verslunina. Fyrstu tvö árin rak Guðlaugur verslun sína í Kirkjuhúsi sem er skammt vestan við verslunarhúsið sem kent er við hann (Laugabúð),en leiguna fyrir Kirkjuhús greiddi Guðlaugur með póstferðum á Selfoss og til Stokkseyrar tvisvar í mánuði á vetrum og fjórum sinnum á sumrin. Árið 1919 keypti Guðlaugur Sjónarhól, þar sem hann rak verslun sína allt til síðasta dags. Í upphafi var verslun hans nær eingöngu vöruskipptaverslun, þar sem íbúar nærsveitanna lögðu inn kartöflur, ull ofl sem hann svo kom í verð í Reykjavík. Á síðari tímum var Laugabúð helsta aðdráttarafl ferðamanna á Eyrarbakka, enda búðin nánast óbreytt frá fyrstu tíð og ekki þótti það síður athyglisvert sú hátta kaupmannsins að nota ekki reiknivélar, heldu voru öll verð lögð saman í hugarreikningi með aðstoð blýants og kartonpappírs. Guðlaugur andaðist 1993, en í lifanda lífi var hann þjóðkunnur og handhafi fálkaorðu fyrir að helga sig verslunarstörfum nær alla sína starfsæfi, sem spannaði 76 ár fyrir framan búðarborðið. Kona hans var Ingibjörg Jónsdóttir frá Garðhúsum(d.1984) Búðarborðið er til sýnis í Húsinu, en búðin stendur á sínum stað. Fyrir nokkrum árum lét Magnús K Hannesson gera húsið upp í sinni upprunalegu mynd. Í búðarglugga kaupmannsins má nú oft sjá ýmislegt bregða fyrir frá fornu fari.
Heimild Morgunbl. 167 tbl 1978 versl.blað 62 tbl 1983 267 tbl 1987
Á þessum degi:1976 Hafrún ÁR 28 ferst út af Reykjanesi með 8 mönnum. Skipið var stálskip smíðað í Þýskalandi 1957. 1987 Vinna hefst við Óseyrarbrú.
27.02.2010 16:39
Þrumuveður
Það hefur gengið á með þrumuveðri, dimmum éljum og haglveðri í dag. Þórsdrunurnar hafa verið óskaplegar með suðurströndinni, svo að hús hafa nötrað með öflugustu þrumunum. Búist er við að þetta veður vari fram á kvöld.
Þennan dag: 1762 Jón Teitsson prófastur kærir 28 menn fyrir helgidagsbrot, en þeir unnu við slátrun fyrir Thomas Windekilde á Eyrarbakka. 1968 Ölfusá flæðir yfir bakka sína og inn í hús á Selfossi.
25.02.2010 17:37
Fannfergi

Það kom alvöru vetur í dag og götur orðnar þungfærar í þorpinu.

Á þessum degi: 1933 Trésmíðafélag Árnessýslu stofnað. 1980 Þrumuveður,stormur og járnplötufok.
24.02.2010 23:21
Skírnarvatnið sótt í brunn á Eyrarbakka
Þegar Árni Ricther ferjubóndi á hinni amerísku Washingtoneyju í Michiganvatni tók í notkun nýja ferju árið 1970 var skírnarvatnið sótt í gamlann brunninn við Nýjabæ á Eyrarbakka. Ferjan fékk svo nafn með rentu, nefnilega Eyrarbakki(mynd). Það voru þau Sigurður Magnússon frá Loftleiðum og Pálína Pálsdóttir í Hraungerði sem sáu um að sækja vatnið í brunninn góða, en sú sem fékk þann heiður að skíra ferjuna þessu góða nafni var fyrsta barnið sem fæddist á eyjunni "Amma Geirþrúður" fædd 1874. Árni ferjubóndi á ættir að rekja til Eyrarbakka, en saga íslendingabyggðarinnar á Washingtoneyju hófst á Eyrarbakka um 1865.
Heimild: Morgunbl.149/167 tbl 1970, Washington Island Ferry Line. http://www.boatinfoworld.com/registration.asp?vn=205842 http://www.inl.is/eggjaskur.htm
Þennan dag: 1980 Eldingaveður og stórhagl (0,7mmØ)
20.02.2010 22:52
Gletta
Jónas frá Hriflu var dómsmálaráðherra í þá tíð. Hann var í eftirlitsferð á vinnuhælinu (Litla Hrauni) á Eyrarbakka, og var að spígspora þar í fangagarðinum meðal fanganna. Starfsmaður á vinnuhælinu gengur til hans og segir: "Ert þú búinn að vera lengi hérna?"
Spaug
Þennan dag: 1965 m.b. Þorlákur Helgi bætist við bátaflota Bakkamanna. mb. Jón Helgason strandar í innsiglingunni./1967 Nýr bátur þorkell Jóhannson bætist við flotann í stað eldri báts með sama nafni. /1972 var óhemju brim
18.02.2010 23:35
Búðargletta
Karl einn er Jón hét, þótti bæði auðtrúa og fljótfær og höfðu gárungarnir gaman af að glettast við hann af þeim sökum. Eitt sinn er Jón var staddur á Eyrarbakka í kaupstaðarferð, vatt sér að honum kunningi hans og spurði með alvöruþrungnum ákafa, hvort hann (Jón) hafi heyrt um hvalrekann. Nei, Jón hafði ekkert heyrt, og hóf þegar að spyrja kunningjann í þaula um þennan merkisatburð, en hinn ansaði engu. Loks þagnaði Jón. Þá sagði hinn með mestu hægð: "Ja, ég hefi nú reyndar ekki heyrt það heldur."
Spaug
Þennan dag: 1973 12 Vestmannaeyjafjölskyldur setjast hér að eftir að gos hófst í Eyjum.
15.02.2010 22:09
Rok & Rúll
Hvítfext brimaldan berst á móti norðan bálinu sem dunið hefur yfir okkur síðasta sólarhringinn. Þrátt fyrir kuldabola má þó alltaf njóta fegurðinnar sem vindarnir móta í hafflötinn.
13.02.2010 23:54
Jón Helgason frá Bergi
Einn hinna fræknu formanna í upphafi vélbátaaldar var Jón Helgason frá Bergi. Hann var fæddur í Nýjabæ á Eyrarbakka 24.janúar 1886 sonur Helga Jónssonar bónda og formanns í Nýjabæ (síðar á Litlu Háeyri) og Guðríðar Guðmundsdóttur frá Gamla Hrauni.
Árið 1915 lét Jón smíða sér skip á Eyrarbakka stórt og veglegt með kútterlagi, því honum líkaði ekki alskostar við hið Sunnlenska skipslag, en Jón hafði varið sínum ungdómsárum á þilskipum við Faxaflóa og þekkti því vel til skútulagsins. Hann fékk því smið sem kunni til verka á kantsettum skipum með skútulagi og lét búa skip sitt seglum eins og þilskipunum. Kútterarnir þóttu góð sjóskip og vildi Jón geta bjargað sér á seglunum ef vélin bilaði. Skip hans var það stæðsta sem gert var út héðan á þessum árum.
Freyr hét skipið góða og stýrði Jón því í hart nær 30 ár, bæði héðan frá Eyrarbakka og Sandgerði. Jóni farnaðist alltaf vel þó fast væri sótt á sjóinn og Freyr reyndist happasælt og aflaskip mikið. Dag einn varð Jón þó að sjá á eftir þessu happaskipi sínu í fang Ægisdætra þar sem það lá við festar í Þorlákshöfn. Það hafði brostið á aftaka veður með austan roki og stórsjó sem varð til þess að Freyr slitnaði upp af legufærum sínum og rak upp í kletta og brotnaði í spón. Það var bæði honum og áhöfn hans mikill harmur að missa Frey, enda þót Jón léti ekki árar í bát, þá varð engin af bátum hans eins aflasælt og Freyr.
Jón var fróður um margt, gjafmildur þeim er þurftar voru og glettin við börn, enda eltu þau hann gjarnan í halarófu. Jón lést 81 árs að aldri (10.10.1967), en hann hafði átt við vanheilsu að stríða hin síðari ár.
Heimild: Morgunblaðið.239 tbl.
Fólkið.