06.06.2010 14:47
Björgunarsveitin með nýjan bát
Björgunarsveitin Björg á Eyrarbakka hefur keypt notaðn björgunarbát frá Konunglega breska sjóbjörgunarfélaginu (RNLI) en Landsbjörg hefur keypt báta frá félaginu síðan árið 1929.
Hér á myndinni er hinsvegar einnn elsti Zodiac bátur sveitarinnar.
01.06.2010 21:46
Veðrið í maí
Maí var frekar þur mánuður með um 40mm heildar úrkomu. Mesta úrkoma á sólarhring var þann 19. en þá komu 13.8 mm í dolluna á 24 tímum. Yfirleitt þokkalega hlýtt og var meðalhitinn um 10°C. Hlýjast var þann 23. mánaðarins 19°C en lægst fór næturhitinn í 1.2°C þann 16. Vindur að meðallagi um 5 m/s. Mesti vindur NNA10.5 m/s 15.maí og mesta hviða NNA 13.6 m/s sama dag. Loftvog stóð lægst 12.maí. Öskufok var um miðjan mánuðinn og svo sérstaklega í gær 31.maí. Oftast bjartviðri eða hálfskýjað. Sólríkast var sunnudaginn 30.maí. Veðurspámenn hafa verið að veðja á rigningasumar hér Sunnanlands en slík sumur koma af og til. Þá byrjar þetta snemma í júní og stendur jafnan fram að hundadögum. Erlendir veðurspámenn hafa hinsvegar verið að spá því að 2010 verði heitasta ári á jörðinni.
26.05.2010 22:54
Jón Helgason ÁR 150
Smíðaður í Danmörku 1944 og keyptur frá Vestmannaeyjum 1964 af Eyrar h/f. Báturinn strandaði við Eyrarbakka 20.janúar 1965 og eyðilagðist.
26.05.2010 22:31
Öðlingur ÁR 10
Báturinn var smíðaður í Svíþjóð 1946. Árið 1962 áttu hann Sverrir Bjarnfinnsson og Vigfús Jónsson á Eyrarbakka og hét þá Öðlingur ÁR 10. Báturinn talinn ónýtur 1965. Árið 1926 var smíðaður á Eyrarbakka bátur með þessu nafni og bar hann einkennisnúmerið ÁR 183 og átti hann Árni Helgason. Sá bátur var seldur til Keflavíkur 1933 og rak hann á land þar árið 1941 og brotnaði í spón. Árið 1916 var smíðaður bátur á Eyrarbakka sem bar einnig þetta nafn og sama númer og áttu bátin saman þeir Árni Helgason, Sigurður Guðmundsson og Guðmundur Guðmundsson. Slitnaði hann aftan úr togaranum Skallagrími RE og rak á land í Grindavík 14.apríl 1926. Áhöfnin hafði áður lent í sjóhrakningum í vonsku veðri og var bjargað um borð í Skallagrím. Þar hittu þeir fyrir Eyrbekkinginn Sigurð skipstjóra Guðjónsson á Litlu Háeyri.
22.05.2010 23:51
Rimmugýgur í Reykholti
Rimmugýgur var stofnað árið 1997 og er félag áhugamanna um menningu og bardagalist víkinga.
22.05.2010 15:22
Í minningu Vesturbúðanna
Mánudagurinn 22 maí 1950 var mikill sorgardagur á Eyrarbakka, því þá fyrir nákvæmlega 60 árum var hafist handa við að rífa merkustu minjar íslandssögunnar.
Eitt sinn voru Vesturbúðirnar á Eyrarbakka mestu verslunarhús á Suður- og Vesturlandi og jafn vel þótt allt landið væri tekið til samanburðar. Til þeirra leituðu bændur og búalið með afurðir sínar alla leið austan úr Skaftafellssýslum og vestan af Breiðafjarðareyjum.
Það var því sannarlega mikil saga tengd við þennan stað eins og hér hefur oftlega verið minst á og því hörmulegt að þessi fornu hús skildu rifin vorið 1950. Þarna var ráðist á merkar fornminjar þvert ofan í vilja þorpsbúa, í trássi við lög um verndun fornminja og í algerri andstöðu við skoðanir landsmanna yfirleitt á því, hvernig við eigum að búa að fornminjum okkar og hefur það æ síðan átt að vera víti til varnaðar, en þrátt fyrir það urðu rústir gamalla sjóbúða, og þurrabúða eiðingaröflum að bráð eftir miðja síðustu öld. Niðurrif vesturbúðanna var algjört, svo meira að segja tröppur og hestasteinar voru fjarlægðir og að lokum beitt jarðítu á það sem eftir stóð.
Það var Egill Thorarensen kaupmaður í Sigtúnum og kaupfélagsstjóri KÁ sem framdi þetta mikla voðaverk á þessum sögulegu minjum íslendinga, með þöglu samþykki ráðamanna þess tíma í landinu. Eyrbekkingar börðust fyrir verndun húsanna, sem þóttu mikil staðarpríði, þó svo húsin væru rúinn öllu innanstokks, eftir að búðirnar komust í hendur Kaupfélags Árnesinga, en allt kom fyrir ekki. Þar fór forgörðum margra alda verslunarsaga á íslenskri grund og þjóðar gersemar.
Oft hafa vaknað hugmyndir um endurbyggingu Vesturbúðanna að hluta eða öllu leiti til minningar um þennan sögulega arf íslenskrar þjóðar, en þá jafnan birtast einhver ljón í veginum, sem ekki er unt fyrir áhugafólk að yfirstíga. Svo er víst að þjóðarátak þyrfti til svo að endurbyggja mætti þessi hús.
20.05.2010 21:24
Gullfoss ÁR 204
Gullfoss var 11 tn. smíðaður á Akureyri 1930 úr eik og beyki. Árið 1943 keyptu Árni Helgason í Akri og sonur hans Sveinn Árnason bátinn og gerðu út frá Eyrarbakka. 1955 var báturinn seldur til Ytri Njarðvíkur og hét þá Sigríður GK 78. Báturinn sökk við Ólafsvík 1959 og hét þá Sigríður RE 350.
15.05.2010 22:22
Emma II ÁR 19
Báturinn var smíðaður í Danmörku 1916 40tn. með 60 ha.Thuxham vél. Keypt hingað frá Vestmannaeyjum, þá með 150 ha. Hundsded vél. Eigandi Reynir Böðvarsson. Báturinn ónýttist og tekinn af skrá 1970. Rifinn í slippnum á Eyrarbakka.
14.05.2010 23:42
Öskufall
Þegar menn risu úr rekkju í morgunsárið brá mörgum í brún hér á Bakkanum, því mikið öskuský lá yfir og ringdi úr því drullug askan. Þetta voru þó smámunir miðað við það sem íbúar og bændur undir Eyjafjöllum þurfa að búa við. Þessar myndir voru teknar í gær undir Eyjafjöllum við Steina og bæinn Þorvaldseyri sem vart grillir í vegna öskufalls.
13.05.2010 22:44
Öldungur ÁR 173
Báturinn var smíðaður á Eyrarbakka 1923 úr eik. 10 tonn með Hansa vél. Guðmundur Guðmundsson á Eyrarbakka átti bátinn upphaflega. 1931 var Öldungur seldur til Stokkseyrar. Báturinn kom aftur á Bakkann 14.maí 1938 þegar Sigurður Kristjánsson, Kristinn Jónsson, Sveinn Árnason og Árni Helgason keyptu hann. 1943 var Öldungur seldur til Suðureyrar við Súgandafjörð. Báturinn var afskráður 1953.
Heimild: Íslensk skip
12.05.2010 22:46
Bakkakrían kominn
12.05.2010 22:33
Ægir ÁR 183
Smíðaður á Eyrarbakka 1940 úr eik. 15 br.l. Eigendur voru Magnús Magnússon og Jón Guðjónsson á Eyrarbakka. Báturinn var lengdur 1958 (21 br.l.) 1952 eignuðust Guðmundur Einarsson og Guðmann Valdimarsson á Eyrarbakka bátinn. Seldur 1960 til Hafnafjarðar.
12.05.2010 22:22
Freyr ÁR 150
Smíðaður í Reykjavík 1916 úr eik. 12 br.l. Eigendur af bátnum voru Jón Helgason, Kristinn Gíslason og Guðmundur Jónsson á Eyrarbakka. Báturinn strandaði og sökk í Þorlákshöfn 28.mars 1940.
Jón Helgason frá Bergi ()
11.05.2010 22:15
Freyja ÁR 149
Báturinn var smiðaður á Eyrarbakka 1916 úr eik 9.br.l. með 10 ha.Dan vél. Eigendur af Freyju voru Jóhann E Bjarnasson o.fl. Eyrbekkingar. Báturinn slitnaði af legu á Eyrarbakka í des. 1936 og sökk. Engan sakaði.
Heimild Íslensk skip.
10.05.2010 23:55
Björgvin ÁR 55
Báturinn var smíðaður á Eyrarbakka 1916 og voru eigendur Jóhannes Sigurjónsson, Þorkell Þorkellsson og Guðmundur Sigurjónsson á Stokkseyri.1942 var Báturinn seldur til Bolungarvíkur. Hét þá Björgvin ÍS 48. Báturinn slitnaði upp af festingum í illviðri og brotnaqði í spón.