Flokkur: Veðrið
16.09.2007 16:45
Hvítnar í fjöll.
Það hafði hvítnað í fjöllin eftir norðan kalsaveðrið í gær og er Ingólfsfjall og Hengillinn komin með hvítan kúf. Frost -1°C var á Bakkanum undir morgun en á Kálfhóli sem er innar í landi náði frostið -4°C.
Nú er bjartviðri og norðanátt og má búast við frosti í nótt en á morgun er það rigningin samkvæmt þessari spá norðmanna.
I morgen kl 11 | 3,0 mm | 4° | Svak vind | 1022 hPa |
---|
13.09.2007 21:15
Rjúkandi brimstrókar.
Það var með glæsilegasta móti brimið í dag þegar hvöss norðanáttin feykti brimlöðrinu á loft og myndaði fallega stróka,en það voru fáir aðrir en heimamenn sem nutu fegurðarinnar á Bakkanum í dag.
Vindrokurnar náðu mest upp í 25 m/s.
13.09.2007 16:12
Þytur í laufi.
12.09.2007 22:21
Met úrkoma?
Úrkoman sem féll á síðustu 24 klst var 75 mm samkvæmt vef veðurstofunar og telst líklega sólahringsmet fyrir þennan dag mánaðarins. Það næstmesta sem rignt hefur á Bakkanum að því er ég kemst næst var 14. nóv.1961 þegar mældist 100,5 mm á sólarhring en mesta úrkoma var mæld 6.janúar 1947 107,5mm
Á Selfossi flæddi vatn upp úr niðurföllum í kjöllurum þegar ræsi höfðu ekki lengur undan og voru slökkvuliðsmenn við dælurnar. Markaskurðurinn milli hinna fornu hreppa Eyrarbakka og Sandvíkur var svo orðinn barmafullur af vatni undir kvöld.
12.09.2007 13:39
Beljandi á Bakka.
Kotferjutjörnin í henni Litlu Sandvík og Hópið á Bakkanum ættu líka að fá sinn skamt í dag.
11.09.2007 11:04
Hvað eitt síns tíma bíður
það er bjart yfir Bakkanum í dag en þó einhver svali í lofti sem veit á haustið, en í gær blés byrlega í lofti á meðan menn funduðu um skipulagsmál frystihúsreitsins og margur maðurinn steig þar í pontu og pexaði um húsagerðalist.
10.09.2007 12:03
Þeir sem eiga rigninguna verða ríkir í dag!
Landið bláa hefur nú skipt litum og allt er orðið grátt, því í dag er það lárétt rigningin og súldin sem ræður ríkjum sem við Sunnlendingar erum ekki alls óvanir og þó því sumarið fór okkur mildum höndum. En nú er komið haustið með vætutíð og vosbúð þeim sem úti hýrast en gleði þeim sem vatnabúskapinn yrkja og virkja og verðmæti þeirra fellur af himnum í dropatali. Þeir sem telja sig eiga rigninguna verða ríkir í dag, en það er nú einhvernvegin þannig orðið um það sem goðin gáfu þessum heimi.
09.09.2007 22:09
Ágætt haustveður.
Þessi sunnudagur var með ágætum á Bakkanum og brimið gljávraði við ströndina og sólin skein á milli skýjanna. Það var semsagt ágætasta haustveður í dag en á morgun koma skýin aftur með rok og rigningu segja þeir á veðurstofuni.
Á Bakkanum vex mikil hvönn vestur undir söndum. Hvannabreiðurnar eru eins og skógur á að líta eins og sést hér á myndinni. Ef hvönn væri einhvers virði, ætti hana líklega einhver greifinn.
08.09.2007 23:38
Gabriella.
Þess hefur líklega verið beðið lengi með mikilli eftirvæntingu af veðuráhugamönnum að geta fylgst með tilurð veðurfyrirbæris sem nefnt er Subtrobical stormur og nú kemur loks einn SUBtrobical nefndur Gabriella sem á uppruna sinn til lægðar á Atlantshafi og stefnir þessa stundina til strandar í Norður Karolínu USA. Gabriella er hinsvegar ekki raunverulegur hitabeltisstormur (Trobical). Subtrobical þýðir að stormurinn hefur bæði eginleika venjulegra hitabeltisstorma og veðurkerfis svokallaðra ofurhitabeltisstorms (extratrobical storm). Einstaka sinnum getur subtrobical stormur orðið að raunverulegum hitabeltisstormi og er þá orðið "Sub" tekið framan af nafninu en það á einmitt við með Gabríellu.
Eitt athyglisverðasta við marga subtrobical storma (mætti kanski þýða sem hálfhitabeltisstorm) er að vindurinn er ekki altaf sterkastur nálægt miðju eins og í venjulegum hitabeltisstormi eða fellibyl. Þá geta subtrobical stormar "Sprungið út" mjög skyndilega eins og hitabeltis hvirfilvindar (cyclone).
Það er einnig athyglisvert að Gabríella eða "Gabby" verður til nokkuð norðarlega á Atlantshafi þar sem sjór er mun tempraðari heldur en sunnan 30 breiddargráðu þar sem hitabeltisstormar eru algengastir.
"Gabbý" mun líklega sigla eitthvað norður á bóginn á næstu dögum samkv. tölvuspám og því ekki útilokað að áhrifa hennar gæti gætt hér á landi síðar meir, en vindhraði í storminum er nú 64 km/klst en það er svona temmilegt hvassviðri 17-18m/s.
05.09.2007 09:41
Sumri hallað.
Það má segja að hið sunnlenska sumar sem nú er liðið hafi verið harla óvenjulegt hvað veðráttuna varðar. Mánuðirnir júní til ágúst 2007 voru óvenjuhlýir um allt sunnan- og vestanvert landið og sólin brosti við landsmönnum. Júlí var sá þurrasti síðan 1993 og komst hitinn hæðst í 22,4°C þann 9.júlí á Bakkanum, grasspretta var treg vegna þurkana og víða sviðin jörð. það tók loks að rigna í lok mánaðarins og má segja að ágústmánuður hafi verið í meðallagi. Júní var einig óvenju þur og hlýr og fór hitinn oft upp í 20°C.
Í lok ágústmánaðar urðu næturfrost á Suðurlandi og féll hitinn á Bakkanum amk. tvisvar niður í 2 stiga frost sem kom sér illa fyrir kartöflubændur hér við suðurströndina. Kaldast varð í Árnesi aðfaranótt 28., -4,0 stig.
Samkv. skoðanakönnun Brims þá álíta 93,1% þáttakenda að sumarið hafi verið frábærlega gott, enda var það vel fallið til útiveru.
04.09.2007 14:17
Stormurinn gnauðaði
03.09.2007 11:44
Nú er vinda von
Stormlægð nálgast nú landið vestanvert og ýfir upp báru. Veðurstofan varar við hressilegum vindi á höfuðborgarsvæðinu og hér á Bakkanum má gera ráð fyrir Sunnan18 m/s næsta sólarhringinn og þessu veðri fylgir vaxandi alda enda gerir siglingastofnun ráð fyrir ríflega 6 m ölduhæð á Eyrarbakkaflóa sem táknar að sjálfsögðu hressilegt og ógnþrungið brim á morgun.
það er því upplagt að bregða sér á Bakkan og berja augum svarrandi brimið og æðisgengin boðaföllin,sem hvergi eru tignarlegri að sjá nema einmitt þar.
02.09.2007 15:25
Felix færist allur í aukana.
Fellibylir eru einhver mögnuðustu veðurfyrirbæri á jörðinni og valda oft gríðarlegu tjóni á mannvirkjum þegar þeir skríða á land og ofsafenginn veðurhamurinn dregur á eftir sér stórsjói og risavaxnar öldur sem steypast yfir strandbyggðir eins og íbúar New Orleans í Bandaríkjunum fengu að kynnast fyrir nokkrum árum þegar fellibylurinn Katarína gekk þar af göflunum. Nú bíður fólk þar suðurfrá með ugg í brjósti, því veðurfræðingar hafa spáð því að í ár muni þessum ógnaröflum fjölga og færa íbúm á karabísku eyjunum og strandbyggðum við Mexicóflóa nýjar ógnir.
Nú beinast allra augu þar suðurfrá að fellibylnum Felix sem geysar nú á karabíska hafinu norður af Aruba og stefnir að ströndum Honduras. Talið er að Felix sem nú er 2.stigs fellibylur muni láta að sér kveða í Nicaragua, Belize og Yucatan í Mexicó og muni þá búin að ná 4.stigi, en óliklegt er talið að hann nái ströndum Bandaríkjana.
27.08.2007 09:00
Önnur frostnóttin.
18.08.2007 17:54
Það var frost í nótt!
Þó eru enn tvær vikur eftir að sumrinu sem hefur verið alveg einstaklega veðursælt á Suðurlandi og þurrviðrasamt. Nú eru hinsvegar rigningar fram undan og gætu varað út næstu viku.