Flokkur: Póstur
03.10.2021 22:37
Frá Sunnanpóstinum
08.03.2014 15:05
Línumenn af Bakkanum
Hannes Hannesson frá Eyrarbakka stendur upp á slá hornstauravirkis í línunni frá Laxárvirkjun að Akureyri. Myndin tekin sumarið 1953. Það var samkeppni meðal línumanna hver væri svalastur í svona glæfraskap.
Hannes Hannesson fæddist á Litlu-Háeyri á Eyrarbakka 1930 og starfaði hann á skrifstofu Rarík til 1967.
Heimild: Afmælisbók Rarik, Hilmar Þór Hilmarsson
18.05.2009 00:25
Eyrarbakki í sumarfötin
Eyrarbakki var klæddur í sumarfötin í blíðskaparveðri á laugardaginn 16.maí. Íbúar og velunnarar þorpsins mættu við Gónhól kl. 10 þar sem Barnaskólinn, Björgunarsveitin og Kvenfélagið skipulögðu aðgerðir. Sjálfboðaliðar hreinsuðu fjöruna, vegkanta, garða og torg allan daginn og hittust svo aftur við Gónhól kl. 16.00 þar sem var sameiginleg grillveisla í boði Vesturbúðar og Gónhóls á Eyrarbakka, Hp flatkökubaksturs á Selfossi, Kjöríss í Hveragerði Vífilfells og Atvinnuþróunarfélags Suðurlands.
Aðstandendur framtaksins og þátttakendur skiluðu okkur snyrtilegu þorpi og glöðum einstaklingum eftir vel unnið dagsverk.
06.06.2008 09:19
Himnaríki og Helvíti
Fékk þessa mynd senda frá vini í Hveragerði sem lýsir á nokkuð táknrænan hátt atburðunum á Suðurlandi í liðinni viku. Þar eins og annarstaðar fóru eigur manna til helvítis í stóraskjálftanum á þessum ágæta stað sem heimamenn vilja gjarnan líkja við himnaríki. En þar er líka sagt að afar stutt sé frá Hveragerði til Heljar.
09.05.2008 10:42
Á strandstað.
Fjalar ÁR 22 á Strandstað við höfnina í febrúar 1969 ,vélin drap á sér því fór sem fór. Engan mann sakaði. Fjalar var 49 tonna eikarbátur smíðaður í Svíþjóð 1955
Mynd: Ólafur Ragnarsson.
07.06.2007 12:43
Íslenski vindpokinn.
Það er eitt og annað sem Brimið fær í pósti, þessi mynd segir allt sem segja þarf um veðrið á Suðurlandi undanfarna daga. Horfunar framundan eru þó hægari vindur og minkandi brim en áfram súld eða skúrir og hiti breytist lítið. Á sunnudag eða einkum mánudag má þó búst við breytingum og bjartara veðri um stundarsakir.
Einu sinni var Bakkaveðrið þennan dag árið:
1997 Hvöss NNA og hitastig - 1 til 6°C og snjófukt um nónbil.
1987 Vestan gola og hiti 4 til 14°C og sól öðru hvoru.
1977 NNA kaldi og hiti 1 til 10°C
1967 NNA kaldi og 7 til 8°C
En í dag var sunnanátt 4-5 m/s og 9 til 12°C
21.05.2007 21:28
P.Nielsen brimverji no.1
Peter Nielsen veðurathugunarmaður (1880 til 1911) og faktor á Eyrarbakka athugaði sjólag flest árin þrisvar á dag (kl 8, 14 og 21 (9,15 og 22 skv. okkar tíma). Hann skipti sjólagi sem hann kallaði (brænding = brim) í 7 flokka 0 - 6 á eftirfarandi hátt
Styrkur 0 : Alsléttur sjór, þá sést ekkert brim á skerjunum.
Styrkur 1 : Rólegur sjór. Brimar á skerjum á stöku stað
Styrkur 2 : Brýtur fyrir öllum skerjum, en ekki á Sundinu.
Styrkur 3 : Brot alstaðar, einnig á mestum hluta Sundsins; þó getur það yfirleitt heppnast fyrir opna fiskibáta að stinga sér yfir brimið, með því að sæta lagi.
Styrkur 4 : Óbrotið brim yfir öllu. Inn og útsigling varasöm, Að öllu hættuleg fyrir opna báta og minni mótorbáta.
Styrkur 5 : Voldugt brim; Sjórinn brýtur við sjóvarnargarða.
Styrkur 6 : Voldugasta brim. Sjórinn gengur yfir sjóvarnargarða og langt upp á land.
Við brimstyrk 0, 1 og 2 geta róðrabátar og hæfilega djúpristir mótor og gufubátar yfirleitt siglt út og inn sundið með hliðsjón af sjávarföllum og siglingamerkjum.
Við brimstyrk 3 geta hæfilega stórir gufu og mótorbátar siglt út og inn 1-2 tímum fyrir og eftir háflóð.
Við brimstyrk 4, 5 og 6 er inn og útsigling ekki örugg fyrir farkost af nokkru tæji.
Þýtt úr dönsku.- Dönsk heimild Trausti Jónsson veðurfræðingur.
Hér er síðan samantekt fyrir hvert ár (árin sem vantar var Nielsen utanlands):
Fjöldi daga á ári (einhverjar athuganir vantar eða brotum er sleppt):
ár |
B0 |
B1 |
B2 |
B3 |
B4 |
B5 |
B6 |
alls |
1881 |
86 |
78 |
69 |
93 |
29 |
10 |
0,33 |
365 |
1882 |
104 |
55 |
73 |
83 |
43 |
7 |
0,00 |
365 |
1883 |
99 |
55 |
67 |
80 |
47 |
7 |
1,67 |
355 |
1884 |
90 |
51 |
69 |
120 |
30 |
4 |
2,00 |
364 |
1885 |
107 |
81 |
69 |
89 |
14 |
3 |
0,00 |
363 |
1886 |
109 |
70 |
73 |
94 |
16 |
3 |
0,00 |
365 |
1887 |
103 |
61 |
64 |
101 |
31 |
4 |
0,33 |
364 |
1888 |
137 |
48 |
70 |
72 |
36 |
2 |
0,67 |
365 |
1889 |
113 |
66 |
70 |
75 |
35 |
6 |
0,00 |
365 |
1890 |
92 |
61 |
75 |
83 |
46 |
8 |
0,00 |
365 |
1891 |
118 |
57 |
67 |
67 |
50 |
7 |
0,00 |
366 |
1892 |
136 |
76 |
60 |
67 |
24 |
3 |
0,00 |
366 |
1893 |
|
|
|
|
|
|
|
|
1894 |
|
|
|
|
|
|
|
|
1895 |
117 |
58 |
59 |
105 |
21 |
4 |
0,00 |
364 |
1896 |
87 |
50 |
73 |
127 |
26 |
3 |
0,67 |
366 |
Nýtt Brim þakkar Trausta Jónssyni fyrir þessar áhugaverðu og fróðlegu upplýsingar.
23.03.2007 10:15
Nú er hann á sunnan
Svefnsamt varla verður þér
vindar þjóta um grund og sker
brim mun æða
öldur flæða
uns til norðurs áttin fer.
Ingi Heiðmar Jónsson Meira
Annars á hann að hvessa lítilega aftur af sunnan á Laugardaginn með rigningu, en á sunnudag verður komið hið besta brimskoðunarveður með 6-7 metra háum öldum.
- 1