08.06.2020 22:08
Hús á Bakkanum - Gaðhús
GARÐHÚS II ........1887 Garðhús III...........1883 |
Ingibjörg[b1]
Jónsdóttir og börn Guðrún[b2]
Einarsdóttir og Halldór Gíslason Valgerður Bjarnadóttir Vilborg Ólafsdóttir Björg Jónasdóttir Magnús Magnússon Valgerður Þórðardóttir húskona Jónas[b3] Einarsson sjómaður og Guðleif Gunnarsdóttir húsmóðir Magnús Kristjánsson bílstjóri Brynjólfur Árnason skósmiður Einar[b4] Kristinn Jónasson rafvirki (Kristinn Jónasar) og Þórunn Guðjónsdóttir Magnús Karel Hannesson og Inga Lára Baldv.d. |
? ? d. 1895 -
66 d. 1896 -
40 d.1897 -
65 d.1914 -
57 d.1918 -
67 d.1927 -
60 d.1953 -
79 d.1948 - 29 ? d.1973 -
75 |
[b1]Börn
hennar: Frímann Vilhelm Frímannsson og Karolína Andrea Daníelsen. Ingibjörg var
verkakona.
[b2]Börn
þeirra: Margrét Andrea, Guðlaugur Gísli og Guðný Pálsdóttir tökubarn.
[b3]Fórst
í sjóslysi með mótorbátnum Sæfara 1927 ásamt allri áhöfn
[b4] Kristinn
lærði á orgel hjá Guðmundu Níelsen og var í hljómfræðitímum hjá Sigfúsi
Einarssyni tónskáldi og í Hafnarfirði lærði hann rafvirkjun. Hann tók svo við
rafstöðinni á Eyrarbakka, meðfram öðrum rafvirkja störfum. Hann gerði við
raftæki ýmiskonar, útvörp og sjónvörp þegar þau komu til sögunnar. Organisti í
Kirkjunni og sá um uppdrátt kirkjuklukkunnar um alllangt skeið. Í upphafi var
aðeins klukkuskífa á vesturhlið turnsinns. Kristinn tók sig til og smíðaði
skífu með vísum á eystri hlið turnsinns. Hann smíðaði einnig eftirlíkingu af áraskipi
því sem hangir yfir kirkjugólfinu. Kona hans var Þórunn Guðjónsdóttir, mikil
fróðleikskona, sem kunni ógrynni af vísum, kvæðum og ýmsan þjóðlegan fróðleik.
Kenndi hún mörgum 6 ára börnum í þorpinu að lesa og bar að þeim ýmsan fróðleik í
leiðinni. Hún var mjög trúuð og vel aðsér í kristnum fræðum. Eitt sinn bar að
ásatrúarmann sem vildi ræða við hanna um gildismat goðafræðinnar versus kristninar.
Tóta Kristinns eins og hún var ávallt kölluð sagðist ekki trúa á stokka og steina og skellti
hurðinni á gestinn.