17.11.2019 22:39
Jón í Simbakoti og bókakistan góða
Jón hét maður og
var Jónsson, Jónssonar bónda og formanns á Óseyrarnesi [Bær sá stóð út við Ölfusárósa og var ferjustaður yfir ána.] Ólöf
hét móðir hans Þorkelsdóttir frá Simbakoti á Eyrarbakka. Jón ólst upp á
Óseyrarnesi við þau handtök sem þá tíðkuðust til sjós og lands. Tvítugur að
aldri tók hann til pjökkur sínar og flutti sig í Simbakot á Eyrarbakka þar sem
hann gerðist húsmaður og átti heima lengst af síðan. Jón dó 1912 í Einarshöfn,
78 ára að aldri, (f. 1834) þurfamaður ókvæntur og barnlaus. Jón var lítill
vexti og vel að sér, hagur og stilltur.
Foreldrar Jóns
voru vel efnuð, en hann fékk í arf að þeim liðnum, hlut í jörðinni Óseyrarnesi
sem hann hélt síðar í makaskiptum fyrir Eystri-Þurá í Ölfusi. Undir það síðasta
var Jón nær félaus orðinn. Um skeið á sínum yngri árum var Jón bóndi í
Simbakoti og formaður allengi í Þorlákshöfn á skipi er Farsæll hét og hann
gerði út þar.
Jón var fróður
svo mjög að enginn jafningi hans hafi verið á Eyrarbakka á þeirri tíð og þó svo
víðar væri leitað. Hann safnaði ógrynni af bókum og handritum. Oft á tíðum hélt
hann úti skrifara til að eftirrita handrit sem hann hafi fengið lánuð í þessu
skyni. Fólk kom títt á bókasafn Jóns og fékk bækur að láni og svo fór eftir
fráfall hans að þetta mikla safn tvístraðist og sumt tapaðist áður í útlánum. Eina
stóra kistu átti Jón og fulla af bókum, Þessi kista ásamt bókum og persónulegum
eigum fóru á uppoð við verslunarhús Heklu 21.oktober 1912 og voru margir mættir
þar til að bjóða í.
Sængurföt hans
voru sleginn á kr. 19.80au. Fatnaður á kr. 6 Olíumaskína (prímus) á 45au.
lífband (notað vegna kvislits) á kr.1 eða samtals 27kr og 25aurar. Lauk þar
fyrri hluta uppboðsins, en þá kom röðin að bókunum og kistunni. Í kistunni voru
sagðar vera 177 bækur og voru boðnar upp í 88 númerum og slegnar á samtals
177kr. og 65 aura. Þá kom röðin að sjálfri kistunni stóru og var hæsta boð 2kr.
og 60 aurar. Samtals kr. 207.50 fyrir allar eigur Jóns.
Hér fer
upptalning þeirra sem fengu slegnar bækur á þessu merkilega uppboði.
Nafn |
Bækur |
Kr.,au. |
Árni Árnason í
Stíghúsi Eyrarbakka, þurrabúðarmaður |
2 |
1,50 |
Árni Helgason bóndi á Garðsstööum á Stokkseyri |
10 |
17,80 |
Einar Jónsson járnsmiður á Eyrarbakka |
4 |
4,40 |
Eiríkur Árnason bóndi í Þórðarkoti á Eyrarbakka |
2 |
1,00 |
Friðrik Sigurðsson formaður í Hafiiðakoti á Stokkseyri |
6 |
5,60 |
Guðmundur Hanncsson bóndi í Jórvík í Flóa |
6 |
6,30 |
Guðmundur Höskuldsson bókbindari í Zephyr á Eyrarbakka |
2 |
0,10 |
Guðmundur Jónsson oddviti í Einarshúsi á Eyrarbakka |
7 |
8,20 |
Hannes Jónsson bóndi á Stóru-Reykjum í Hraunhreppi |
8 |
8,70 |
Jóhann V. Daníelsson verslunarstjóri í Haga á Eyrarbakka |
2 |
1,90 |
Jóhannes Jónsson borgari í Merkisteini á Eyrarbakka |
6 |
5,00 |
Jón Helgason prentari í Samúelshúsi á Eyrarbakka |
14 |
9,80 |
Jón Ólafsson vinnumaður í Foki á Stokkseyri |
9 |
11,10 |
Jón Sigurðsson í Kaldaðarnesi í Flóa |
5 |
6,90 |
Karl H. Bjarnason prentari í Nýjabæ á Eyrarbakka |
6 |
6,90 |
Karl G. á Gamla-Hrauni á Stokkseyri |
4 |
6,20 |
Kjartan Guðmundsson ljósmyndari á Eyrarbakka |
6 |
14,20 |
Kristinn Þórarinsson bóndi í Naustakoti á Eyrabakka |
6 |
8,20 |
Magnús Magnússon yngri í Nýjabæ á Eyrarbakka |
14 |
11,50 |
Maríus Ólafsson í Sandprýði á Eyrarbakka |
19 |
12,80 |
Sigurður Magnússon smiður á Baugsstöðum |
2 |
3,80 |
Sigurður Þorvaldsson í Samúelshúsi á Eyrarbakka |
5 |
3,10 |
Tómas Vigfússon formaður í Garðbæ á Eyrarbakka |
2 |
1,60 |
Vilhjálmur Einarsson bóndi í Gerðum í Gaulverjabæjarhreppi |
6 |
5,30 |
Þorbergur Magnússon í Nýjabæ á Eyrarbakka |
2 |
1,00 |
Þorbjörn Einar Guðmundsson í Einkofa á Eyrarbakka |
2 |
1,10 |
Þórður Jónsson verslunarmaður á Stokkseyri |
12 |
7,40 |
Þorkell Þorkelsson vinnumaður á Gamla-Hrauni |
8 |
6,20 |
En kistan góða
var sleginn Gísla Eiríkssyni frá Bitru í Flóa, þá smiður á Eyrarakka.
Segir nú ekki af
kistunni í bili, en hugum nú að innihaldinu: Eitthvað af handritunum sem Jón
lét skrifa voru að tínast á Landsbókasafnið allar götur síðan 1913, en það var
Jón Sigurðsson í Kaldaðarnesi sem fyrstur reið á vaðið með þessi skil en síðan
skiluðust hvert af öðru næstu rúm 70 árin, eða samtals 20 handrit, en talið er
að handritin hafi numið nokkrum tugum eða þriðjungur þessara 177 bóka.
Skrifarar Jóns
hafa þó vart tekið mikið fyrir sinn snúð, því auðmaður var hann ekki talinn og
hefur það því líkast til helgast meira af greiðvikni.
Hér upptaldir
nokkrir af skrifurum Jóns:
Eiríkur Pálsson í Simbakoti |
2 kver og hlut
í fjórum |
Ólafur Sigurðsson í Naustakoti |
2 kver og hlut
í tveimur |
Þorsteinn Halldórsson á Litlu-Háeyri |
5 kver |
Magnús Teitsson formaður í Garðbæ og á Brún á Stokkseyri |
1 kver og hlut
í tveimur |
Gunnar Jónsson í Langholti í Meðallandi |
Hlut í þremur
kverum |
Páll Guðmundsson frá Strönd í Meðallandi |
Hlut í tveimur
kverum |
Ólafur Bjarnason á Steinum í Leiru |
1 kver |
Eyjólfur Sigurðsson á Kaðlastöðum á Stokkseyri, |
Hlut í einu
kveri |
Guðmundur Jónsson frá Sölvholti í Hraungerðishreppi, |
Hlut í einu
kveri |
Hjörleifur Steindórsson söðlasmiður á Eyrarbakka |
Hlut í einu
kveri |
Sigurður Gíslason smiður í Eyvakoti á Eyrarbakka |
Hlut í einu
kveri |
Hér eru upptaldar
nokkrir titlar af eftirritunum í safni Jóns:
Sagan af Agnari
kóngi Hróarssyni |
Sagan af Goðleifi prúða |
Sagan af Cyrusi
Persakeisara |
Sagan af Hektor og köppum hans |
Sagan af Dínusi drambláta |
Sagan af Knúti
kappsama og Regin ráðuga |
Sagan af Elís
og Rósamundu |
Sagan af Rémundi keisarasyni |
Sagan af Flóvent Frakkakonungi, |
Sagan af Sigurði turnara |
Sagan af Geirmundi og Gosiló, |
Sagan af Vilhjálmi sjóð |
Sagan af Blómsturvallaköppum |
Sagan af Sigurði kóngi og Smáfríði |
Sagan af
Fóstbræðrum |
Rímur af
Artimundi Úlfarssyni |
Sagan af Flórusi
kóngi og sonum hans |
Rímur af Kiða-Þorbirni |
Sagan af
Haraldi Hringsbana |
Kvæði af Alexander blinda |
Sagan af
Nikulási leikari |
Þýskalandskvæði |
Sagan af
Sigurði Friggufóstra |
|
Kver þessi eru
innbundinn en ekki er vitað hverja hann hafi fengið til þess, en samtíða honum
á Eyrarbakka voru kunnáttumenn eins og
t.d. Guðmundur Höskuldsson bókb. í Zephyr.
En víkjum nú að kistunni, því spurning hvort hér sé kominn kista Vigfúsar
Halldórsonar bónda í Simbakoti á Eyrarbakka er hann keypti á uppboði í
maímánuði 1888, eftir Hjört bónda Þorkelsson á Bolafæti i Ytrihrepp. Kistu
þessa ætlaði hann að höggva í eldinn, árið 1890. Hann byrjaði á þeim enda kistunnar, sem
handraðinn var í og þá varð hann þess var, að nokkrir peningar hrundu úr
leynihólfi, sem var innan á kistugaflinum undir handraðanum. Þegar hann fór að
aðgæta þetta betur, fann hann þar peningapoka með 79 spesíum 42 ríkisdölum
einum fírskilding og einum túskilding. Leynihólf þetta var fyrir öllum gafli
kistunnar, frá handraða niður að botni og út til beggja hliða. Peningunum var
raðað í pokann þannig, að þrír og þrír voru hver við hliðina á öðrum. Pokinn
var úr lérefti og var saumaður í gegn milli hverra raða, svo ekki gat hringlað
neitt í þeim. Hann fyllti einnig mátulega út i allt hólfið. 27 spesíurnar voru
frá ríkisstjórnarárum Kristjáns VII.; 48 frá ríkisstjórnarárum Friðriks VI. og
tvær frá ríkisstjórnarárum Kristjáns VIII. - Elsta spesían hefir verið slegin
árið 1787, sú yngsta 1840. Yngsti ríkisdalurinn 1842, og fírskildingurinn 1836
og túskildingurinn 1654. Allir peningarnir vógu 6 pund. Hvort Vigfús hafi að
lokum höggvið kistu sína í eldinn, eða hún gengið í endurnýjun lífdaga er
óvíst, en þó ekki útilokað. En fróðlegt væri að vita hvort kista sú sem Gísli
Eiríkson keypti á uppboðinu ætti sér lengri sögu.
Heimildir:
Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur, 12. árgangur
...
Annað: Google "Jón í Simbakoti" - bækur.is