09.05.2019 23:36
Húsanöfn á Stokkseyri fyrir 1950 / D-E
1.
Dalbær
- Byggður 1899, þar bjuggu Jón Jónsson og Helga Þorsteinsdóttir úr
Ytrihrepp. Bærinn fór í eiði 1940.
2.
Deild
- Byggð árið 1901 af Jóhanni V Daníelssyni, síðar Kaupmanni á Eyrarbakka.
3.
Djúpidalur
- Byggður árið 1891 af Jónasi íshúsverði Jónassyni frá Ranakoti*. Jónas var
kallaður "drottinn minn" af Stokkseyringum. Nikulás Helgason keypti bæinn og þá
kvað Magnús Teitsson: >Eignast fyrir aura val/ónýtt fúahreysi/Nikulás í
Djúpadal/deyr úr iðjuleysi< En Jónas Flutti að Hellukoti í þurrabúð þar, og
enn kvað Magnús Teitsson: >Ónýtt
brúka orðaval/eru hvor í sínu sloti/Nikulás í Djúpadal/og "drottinn minn" í
Hellukoti.< Nokkrum árum síðar keyptu hjón ofan af Skeiðum bæinn af Nikulási
en urðu að segja sig á sveitina árið 1916 sökum fátæktar. Rifu Skeiðamenn þá
Djúpadal og fluttu hjónin til sín.
4. Eiríksbakki - Byggður 1902 af Eiríki
Magnússyni frá Háfshól í Holtum. [Einn af
Sjónarhólsbæjum og síðar sumarbústaður]
5. Eiríkshús - Byggt árið 1898 af Eiríki
Jónssyni trésmið frá Ási í Holtum. Hann seldi húsið Daníel Arnbjörnssyni og
Eyjólfi Sigurðssyni, en þeir skírðu húsið Björgvin*