18.03.2017 17:45
Karfi í hvert mál
Um þorrakomu 1653 rak mikinn karfa austan með, á
Eyrarbakka og Hafnarskeiði, svo hann var seldur upp um sveitina, hundraðið á
fimm alnir, og var stórt gagn þeim sveitum. Á Háeyri á Eyrarbakka báru 2 menn á
lítilli stundu úr flæðarmáli og upp á meginland 16 hundruð karfa, og höfðu
helming þar af fyrir ómakið. - Þar var þriggja stafgólfa grindarhús fullt yfir
bita milli gafls og gáttar með karfakös (skemmdist þó ei, vegna kælu og
frosta). Þar af var mestu burt lógað á hálfum öðrum mánuði, ókeypis flestum,
eftir skipun Rannveigar Jónsdóttur á Háeyri, af meðaumkun við fátæka og
þurfandi, sem þá voru margir. - (Fitjaann.)
Skrifað af oka
Flettingar í dag: 1296
Gestir í dag: 247
Flettingar í gær: 2390
Gestir í gær: 1368
Samtals flettingar: 261586
Samtals gestir: 33874
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 21:00:07