12.10.2012 00:01
Prentsmiðja Suðurlands á Eyrarbakka
Það voru nokkrir Árnesingar sem keyptu prentsmiðju árið 1910 og stofnuðu í framhaldi þess, Prentfélag Árnesinga og blaðið "Suðurland",
sem þeir gáfu út á Eyrarbakka, og kom fyrsta blaðið út 13.júní 1910 og taldi 4
síður. Ritstjórar voru Oddur Oddson í Regin og Karl H. Bjarnason, en gjaldkeri
var sr. Gísli Skúlason á Stóra-Hrauni. Kom blaðið út nokkur ár en síðar var
keypt annað blað, "þjóðólfur" hinn gamli og gefinn út um tíma hér á
Bakkanum. Hann hætti að koma út 1918 og var prentsmiðjan síðan flutt til
Reykjavíkur. Prentsmiðjan á Bakkanum var til húsa í kjallara í Nýjabæ (Vestara
húsi). Oft var ekki hægt að prenta ef gerði mikið frost, því hitunarbúnaður var
ekki fyrir hendi í fyrstu, þá háði starfseminni stundum pappírsskortur á stríðsárunum
fyrri. Heimilisblaðið var einnig prentað og gefið út á Eyrarbakka auk bóka,
bæklinga og rita ýmiskonar. Prentarar voru þeir Jón Helgason og Karl H
Bjarnason. Í stjórn Prentfélags Árnesinga voru: sr. Gísli Skúlason á
Stórahrauni, Guðmundur Þorvarðarson hreppstjóri í Sandvík, og Oddur Oddson
gullsmiður í Regin. Í ritnefnd voru Gísli Skúlason áður nefndur, Guðmundur
Sigurðsson sýslunefndarmaður, Helgi Jónsson sölustjóri, Jón Jónsson búfræðingur
og Oddur Oddson áður nefndur.
Heimild: Suðurland 1910, Þjóðþólfur 1917, Skeggi 1919