03.08.2011 00:08
Tíðarfarið í júlí
Mánuðurinn hófst með brakandi þurki Sunnanlands með hlýindum og var oft á tíðum um 20 stiga hiti hér á Bakkanum. Létt hafgola lék við stöndina flesta daga um hádegisbil og fram til nóns á fyrri hluta mánaðarins. Bændur nýttu sér þurkinn og hvítar rúllur hrönnuðust upp eins og risavaxnar gorkúlur um allan Flóann. Öskufok gerði þann 23. en síðan tók veðurfarið að sveiflast til verri vegar. Hvassviðri gerði þann 26. en síðan tók við súldarloft og suddi fram til loka.
Nánar: Veðurklúbburinn Andvari.