10.04.2011 23:13
Hvellurinn
Það gekk á með vitlausu veðri um suðvesturhornið í dag, en hér í grend var einna hvassast á Hellisheiði, en þar fóru hviður yfir 40 m/s, einnig var mikið hvassviðri í Grímsnesinu og Svínavatn rauk út í veður og vind. Á Bakkanum var sunnan stormur um tíma síðdegis og náði vindhraðinn í hviðum mest 33 m/s, en sumstaðar þó hægari inn í þorpinu. Þessu fylgdi mikið brim sem fór vaxandi eftir því sem á kvöldið leið. Væntanlega mun verða stórveltubrim næstu tvo daga í kjölfarið og svo áfram út vikuna samfara éljaveðri. Um næstu helgi mun líklega bæta heldur betur í brimið á Bakkanum og hugsanlega mesta skemtun til áhorfs ef byrtir til.