Báturinn var smíðaður á Neskaupstað 1957. Hraðfrystistöð Eyrarbakka hf. átti bátinn 1968. Ragnar Jónsson og Valdimar Eiðsson áttu bátinn 1972. Báturinn brann undan Meðallandsfjörum 12. september 1974. Áhöfn 6 menn björguðust í gúmbát og um borð í Hafbjörgu VE.

Árið 1975 keypti Valdimar nýjan bát sem bar sama nafn. Báturinn var smíðaður í Þýskalandi 1957 og var 73.tn. stálbátur.Upphaflega hét báturinn Húni HU- 1, síðan Ólafur 2. KE-149
Báturinn fórst 2.mars 1976 út af Hópsnesi með allri áhöfn 8 mönnum. Voru 5 þeirra búsettir á Eyrarbakka.