08.03.2007 09:51
Hægviðri.
Á Eyrarbakka var A 5 m/s og úrkoma í grennd kl 09:00 og Skyggni 18 km Dálítill sjór. Ökumenn sem fóru til vinnu í morgun þurftu að skafa bílrúður því hitinn var rétt um frostmark og hálka á Eyrarbakkavegi.
Kl. 6 voru norðaustan 3-10 m/s og þokuloft eða súld á norðanverðu landinu, en hægviðri og léttskýjað sunnanlands. Svalast var 3ja stiga frost á Húsafelli, en hlýjast 4ra stiga hiti á Stórhöfða segir í veðurfregnum frá Veðurstofu Íslands.
Öll teikn eru á lofti um austanátt með rigningu hér sunnanlands um hádegi en í gær var útlitið nokkuð á reiki hvenær skilin bærust yfir landið.
Ps. Eyrbekkingar úti á landi eða í útlandi, endilega sendið mér línu um veðrið, einkum ef það er óvenju gott eða óvenju slæmt.
Mail. odinn@eyrarbakki.is
Íbúþróun við sjávarsíðuna.
Stöðugt fleiri kunna að meta þau lífsgæði og kosti sem sjávarþorpin hafa upp á að bjóða. Samkvæmt opinbrum tölum hefur fjölgað þannig:
Þann 5. mars sl. voru íbúar:
- Selfoss 6.057 (fjölgun um 60)
- Í Sandvík: 157
- Eyrarbakka: 581 (fækkun um 6 frá 1.des.sl.)
- Stokkseyri: 560 (fjölgun um 82)
- Óstaðsettir: 8
Samkvæmt þessum tölulegu upplýsingum af vef Árborgar hefur orðið athyglisverð sprenging í fólksfjölgun á Stokkseyri sem er meiri en á selfossi frá sama tíma. En það kemur líklega til af því að breytingar hafa verið gerðar á skráningu íbúa í dreifbýli eins og marka má af heimasíðu Árborgar.