13.02.2006 12:36

Eyrarbakki

Eyrarbakki

Þetta verk var keypt árið 1989 af Lista- og menningarsjóði Seltjarnarness.

Verkið heitir Eyrarbakki og er eftir Magnús Tómasson (f. 1943) er helst þekktur í dag fyrir að vera einn af stofnendum SÚM-hópsins, fyrir ljóðræna skúlptúra úr óhefðbundnum efnum, svo og fyrir öflug útilistaverk.  þessi mynd Eyrarbakki, gerð 1963, þegar Magnús var að hefja listnám í Kaupmannahöfn, rétt tvítugur að aldri. Í meðferð myndefnisins gætir áhrifa frá íslensku módernistunum, t.d. Gunnlaugs Schevings og Þorvaldar Skúlasonar, sér í lagi í bátnum sem er einfaldaður og séður ofan frá, að kúbískum hætti. Aftur á móti minnir mynduppbyggingin, gerð úr heilum, einföldum flötum og litanotkunin fremur á verk Nínu Tryggvadóttur frá sama tíma. Hér er um að ræða fallegt verk frá upphafi ferils listamannsins, þegar hann var enn nátengdur íslensku myndefni og listasögu, áður en hann varð einn af helstu merkisberum alþjóðlegra strauma hér á landi.

Heimild: Seltjarnarnesbær http://www.seltjarnarnes.is/

Flettingar í dag: 556
Gestir í dag: 168
Flettingar í gær: 2390
Gestir í gær: 1368
Samtals flettingar: 260846
Samtals gestir: 33795
Tölur uppfærðar: 21.11.2024 19:35:48