Blogghistorik: 2016 N/A Blog|Month_1
03.01.2016 19:19
Skipasmíðar á Eyrarbakka, Öldungur ÁR
ÖLDUNGUR ÁR: Báturinn var smíðaður á Eyrarbakka 1923 úr eik. 10 tonn með Hansa vél. Guðmundur Guðmundsson á Eyrarbakka átti bátinn upphaflega. Var þá formaður Jón Bjarnason í Björgvin /Litlu Háeyri. 1931 eða fyr var Öldungur seldur til Stokkseyrar. Báturinn kom aftur á Bakkann , sennilega 1938 þegar Sigurður Kristjánsson, Kristinn Jónasson, Sveinn Árnason og Árni Helgason í Akri keyptu hann. Árni var þá skipstjóri á bátnum. 1943 var Öldungur seldur til Suðureyrar við Súgandafjörð. Báturinn var afskráður 1953. Aðrir í samtímaflota Eyrbekkinga voru þá Freyr ÁR 150, og Freyja ÁR 149. Hægt er að sjá ljósmynd af bátnum við bryggju í Þorlákshöfn, hér :http://www.sarpur.is/Adfang.aspx? og nánar um sögu hans. Allmargir mótorbátar voru smíðaðir á Eyrarbakka á fyrri hluta 20. aldar allt fram til 1940.
N/A Blog|WrittenBy oka
- 1
Antal sidvisningar idag: 481
Antal unika besökare idag: 31
Antal sidvisningar igår: 1063
Antal unika besökare igår: 91
Totalt antal sidvisningar: 514200
Antal unika besökare totalt: 49145
Uppdaterat antal: 14.7.2025 22:40:30