Það hefur verið haustlegt í lofti síðasta sólarhringinn með NV kalda, eða 5 gömul vindstig og öðru hvoru hefur rokið upp í stinningskalda. Eins stafs hitatölur sjást nú um allt land um miðjan daginn og sumarið virðist vera að renna sitt skeið. Það var kaldranalegt fyrir norðan í dag eins og sjá má hér.
Árið 1805 útbjó Francis Beaufort vindgreinitöflu um veðurhæð á sjó. Hann var þá kortagerðamaður breska flotans. Vindstiga taflan var fljótlega tekinn í notkun um allann heim:
Beufort skali
Vindlýsing |
Hraði m/s |
Vindstig |
Logn |
0,2 |
0 |
Andvari |
0,3 - 1,5 |
1 |
Kul |
1,6 - 3,3 |
2 |
Gola |
3,4 - 5,4 |
3 |
Stinningsgola |
5,5 - 7,9 |
4 |
Kaldi |
8,0 - 10,7 |
5 |
Stinningskaldi |
10,8 - 13,8 |
6 |
Allhvasst |
13,9 - 17,1 |
7 |
Hvassviðri |
17,2 - 20,7 |
8 |
Stormur |
20,8 - 24,4 |
9 |
Rok |
24,5 - 28,4 |
10 |
Ofsaveður |
28,5 - 32,6 |
11 |
Fárviðri |
32,7 - 36,9 |
12 |